Hestamannafélagið Hörður í Mosfellsbæ hefur um langt árabil haldið uppi öflugu æskulýðsstarfi og verður veturinn í vetur engin undantekning. Hér að neðan má sjá þau námskeið sem eru í boði í vetur. Þegar líða fer á veturinn verður boðið uppá fleiri námskeið og framhald á öðrum, verður auglýst þegar líða fer á veturinn. Vekjum athygli á því að hægt er að nota frístundarávísanir frá Mosfellsbæ sem greiðslu á námskeiðin. Síðasti skráningardagur á námskeiðin er mánudagurinn 7.janúar 2013
Keppnisnámskeið 16 tímar
kennari Halldór Guðjónsson
verð 40.000 þús
10 ára og eldri sem eru komin með þó nokkra reynslu í keppni.
Kennt verður á þriðjudögum frá 15 – 20, fer eftir skráningu
2-3 í hóp / kennari áskilur sér rétt á að breyta hópunum
Þjálfun og uppbygging keppnishests og knapa
Heimaverkefni frá kennara
Almennt reiðnámskeið 8 tímar /8.-10.ára
Kennari Line Norgaard
Byrjar miðvikudaginn 16.janúar kl 17 og 18:00
Verð 12.000 þúsund
Áseta og stjórnun
Skil á gangtegundum
Reiðleiðir og umferðarreglur
Ásetuæfingar
Gaman
Kennt í 8 skipti
Almennt reiðnámskeið 8 tímar /10.-14.ára
Kennari Súsanna Ólafsdóttir
Byrjar fimmtudaginn 17.janúar kl 17 og 18
Verð: 12.000 þúsund
Markmið:
Nemendur læri undirstöðuatriði reiðlistar og öryggi til að sitja hest
Stjórnun og áseta
Nemandi þekki gangtegundir og læri að ríða þær
Nemandi þekki gangtegundir hjá öðrum í reið
Umgengni við hestinn (fætur teknar upp, teyming osvfrv)
Nemandi kunni að leika sér við hestinn, hvað má og hvað má ekki
Kennt er í 8 skipti
Seven games 6 tímar / 12.ára og eldri
Byrjar mánudaginn 21.janúar kl 19:00
Kennari Ragnheiður Þorvaldsdóttir
Verð: 9.000
– Að spila Parelli sjö leiki með hestinum þínum er frábær leið til að vinna sér inn virðingu hestsins. Hestar hafa náttúrulegt hjarðeðli, og þessir sjö leikir hjálpa þér að verða leiðtogi hestsins þíns. Sjö leikirnir eru: 1. Vina leikurinn 2. Pota leikurinn 3. Ekki snerta leikurinn 4. Fram og til baka leikurinn 5. Hringtaums leikurinn 6. Hliðargangs leikurinn 7. Troða sér leikurinn. – Kennt í sex skipti
Knapamerki 1 og 2
Byrjar mánudaginn 14.janúar kl 17
Kennari Oddrún Ýr Sigurðardóttir
Verð: 26.000
Stig 1.
Á þessu stigi á nemandinn að hafa þekkingu á eftirfarandi þáttum:
Skilji grunnþætti í atferli, eðli og hegðun hesta
Þekkja líkamsbyggingu og heiti á líkama hestsins
Kunna skil á helstu öryggisatriðum er lúta að hestahaldi og búnaði fyrir hest og knapa
Þekkja gangtegundir íslenska hestsins
Þekkja helstu reiðtygi, notkun þeirra og umhirðu
Þekki helstu ásetur og rétt taumhald
Verklega á knapinn að hafa vald á eftirfarandi þáttum:
Að undirbúa hest rétt fyrir reið
Geti teymt hestinn á múl eða beisli við hlið sér á feti og brokki/tölti
Geti stigið á og af baki beggja megin
Kunni rétt taumhald og að stytta rétt í taumi
Geti setið hest í lóðréttri (hlutlausri) ásetu á feti, tölti/brokki og hægu stökki
Geti framkvæmt nokkrar sætisæfingar í hringtaum skv. stjórnun frá kennara
Geti skipt á milli hlutlausrar ásetu, hálfléttrar og stígandi ásetu (1. stig stígandi ásetu)
Kunni að skilja rétt við hestinn og búnað að reiðtíma loknum
Stig 2.
Á þessu stigi á nemandinn að hafa þekkingu á eftirfarandi þáttum:
Sögu íslenska hestsins
Réttu viðhorfi til hestsins með tilliti til skaps og skynjunar hans
Þekkja helstu ábendingar og notkun þeirra
Vita hvernig á að ríða hestinum áfram og stoppa hann
Þekkja reiðvöllinn og notkun hans
Kunna skil á réttu taumhaldi og taumsambandi
Þekkja grunnatriði sem gilda þegar unnið er við hönd
Þekkja æfinguna “að kyssa ístöð”
Þekkja einfaldar gangskiptingar
Þekkja reglur sem gilda um útreiðar á víðavangi
Verklega á knapinn að hafa vald á eftirfarandi þáttum:
Geta látið hestinn kyssa ístöð á baki og við hönd, til beggja hliða
Riðið einfaldar gangskiptingar
Riðið helstu reiðleiðir á reiðvelli
Geta riðið í hlutlausri lóðréttri ásetu, hálfléttri og stígandi ásetu
Hafa gott jafnvægi á baki hestsins og nota rétt taumhald
Látið hestinn stoppa, standa kyrran og ganga aftur af stað
Geta riðið á slökum taum
Sýna það í reiðmennsku og umgengni við hestinn að hann hafi tileinkað sér rétt viðhorf til hans
Geta riðið hesti á víðavangi, haft góða stjórn og gætt fyllsta öryggis
Knapamerki 3
Byrjar mánudaginn 15. janúar kl 18:00
Kennari Ragnheiður Þorvaldsdóttir
Verð: 30.000 kr
Á þessu stigi á nemandinn að hafa þekkingu á eftirfarandi þáttum:
Þekkja vel allar gangtegundir íslenska hestsins
Kunna skil á helstu þáttum er lúta að fóðrun hesta og umhirðu
Þekkja rólegan hest frá spenntum
Þekkja helstu þætti í byggingu hestsins og þvi hvernig hann hreyfir sig rétt
Þekkja helstu þjálfunarstig og hugtök þeim tengd
Þekkja einfaldar fimiæfingar og grundvallaratriði þeirra
Baugavinna
Framfótarsnúningur
Krossgangur
Vita hvað liggur til grundvallar gangtegundaþjálfun
Vita hvernig á að undirbúa og ríða hesti yfir slár og hindranir
Verklega á knapinn að hafa vald á eftirfarandi þáttum:
Að láta hestinn víkja um fram og afturhluta
Knapinn hafi vald á lóðréttri ásetu, stígandi ásetu og hálfléttri ásetu
Knapinn geti riðið gangskiptingar markvisst og af nákvæmni
Knapinn geti riðið við slakan taum og langan taum
Knapinn geti látið hestinn fara krossgang áfram og til hliðar á sama tíma
Knapinn hafi gott vald á að nota reiðvöllinn rétt
Knapinn hafi tileinkað sér rétt viðhorf gagnvart hestinum bæði í reiðmennsku og umgengni
Knapinn geti látið hestinn fara rétt yfir slár og stökkva yfir litla hindrun
Knapamerki 5
Kennsla hefst 17. Janúar kl 16:00
Kennari Súsanna Ólafsdóttir
Verð: 50.000 þús
Á þessu stigi á nemandinn að hafa þekkingu á eftirfarandi þáttum:
Þekkja grunn í sögu reiðmennsku og þróun fram á daginn í dag
Kunna skil á helstu þáttum þjálfunarlífeðlisfræði og þjálfunar hesta
Skilja hvað liggur til grundvallar æfingunum opnum sniðgangi og að láta hestinn ganga aftur á bak
Þekkja mjög vel gangtegundir íslenska hestsins og hvað liggur til grundvallar þjálfunar þeirra
Þekkja og skilja virkni íslenskra stangaméla
Þekkja helstu stofnanir og félagskerfi íslenskrar hestamennsku
Verklega á knapinn að hafa þekkingu á eftirfarandi þáttum:
Hafa mjög gott vald á öllum ásetum og kunna að beita þeim rétt við þjálfun hestsins
Geta notað sér reiðvöllinn og fjölbreyttar reiðleiðir markvisst við þjálfun hestsins
Hafa vald á gangtegundaþjálfun og geta riðið allar gangtegundir nema skeið
Hafa gott vald á hraðastjórnun og gangskiptingum
Geta látið hestinn stækka og minnka rammann, á feti og brokki
Hafa vald á æfingunum opnum sniðgangi (á feti) og að láta hestinn ganga aftur á bak
Geta framkvæmt réttar gangskiptingar í jafnvægi
Knapi og hestur í andlegu og líkamlegu jafnvægi
Skráning og upplýsingar um námskeiðin er hjá Oddrúnu Ýr yfirkennara æskulýðsnefndar Harðar, oddasig@gmail.com
Öll námskeið eru auglýst með fyrirvara um næga þátttöku og jafnframt með fyrirvara um innsláttarvillur í auglýsingatexta.
Námskeið æskulýðsnefndar Harðar 2013
Hestamannafélagið Hörður í Mosfellsbæ hefur um langt árabil haldið uppi öflugu æskulýðsstarfi og verður veturinn í vetur engin undantekning. Hér að neðan má sjá þau námskeið sem eru í boði í vetur. Þegar líða fer á veturinn verður boðið uppá fleiri námskeið og framhald á öðrum, verður auglýst þegar líða fer á veturinn.
Vekjum athygli á því að hægt er að nota frístundarávísanir frá Mosfellsbæ sem greiðslu á námskeiðin.
Síðasti skráningardagur á námskeiðin er mánudagurinn 7.janúar 2013
Keppnisnámskeið 16 tímar
kennari Halldór Guðjónsson
verð 40.000 þús
Almennt reiðnámskeið 8 tímar /8.-10.ára
Kennari Line Norgaard
Byrjar miðvikudaginn 16.janúar kl 17 og 18:00
Verð 12.000 þúsund
Almennt reiðnámskeið 8 tímar /10.-14.ára
Kennari Súsanna Ólafsdóttir
Byrjar fimmtudaginn 17.janúar kl 17 og 18
Verð: 12.000 þúsund
Markmið:
Seven games 6 tímar / 12.ára og eldri
Byrjar mánudaginn 21.janúar kl 19:00
Kennari Ragnheiður Þorvaldsdóttir
Verð: 9.000
– Að spila Parelli sjö leiki með hestinum þínum er frábær leið til að vinna sér inn virðingu hestsins.
Hestar hafa náttúrulegt hjarðeðli, og þessir sjö leikir hjálpa þér að verða leiðtogi hestsins þíns.
Sjö leikirnir eru:
1. Vina leikurinn
2. Pota leikurinn
3. Ekki snerta leikurinn
4. Fram og til baka leikurinn
5. Hringtaums leikurinn
6. Hliðargangs leikurinn
7. Troða sér leikurinn.
– Kennt í sex skipti
Knapamerki 1 og 2
Byrjar mánudaginn 14.janúar kl 17
Kennari Oddrún Ýr Sigurðardóttir
Verð: 26.000
Stig 1.
Á þessu stigi á nemandinn að hafa þekkingu á eftirfarandi þáttum:
Verklega á knapinn að hafa vald á eftirfarandi þáttum:
Stig 2.
Á þessu stigi á nemandinn að hafa þekkingu á eftirfarandi þáttum:
Verklega á knapinn að hafa vald á eftirfarandi þáttum:
Knapamerki 3
Byrjar mánudaginn 15. janúar kl 18:00
Kennari Ragnheiður Þorvaldsdóttir
Verð: 30.000 kr
Á þessu stigi á nemandinn að hafa þekkingu á eftirfarandi þáttum:
Verklega á knapinn að hafa vald á eftirfarandi þáttum:
Knapamerki 5
Kennsla hefst 17. Janúar kl 16:00
Kennari Súsanna Ólafsdóttir
Verð: 50.000 þús
Á þessu stigi á nemandinn að hafa þekkingu á eftirfarandi þáttum:
Verklega á knapinn að hafa þekkingu á eftirfarandi þáttum:
Skráning og upplýsingar um námskeiðin er hjá Oddrúnu Ýr yfirkennara æskulýðsnefndar Harðar, oddasig@gmail.com
Öll námskeið eru auglýst með fyrirvara um næga þátttöku og jafnframt með fyrirvara um innsláttarvillur í auglýsingatexta.
Nýjustu fréttir
Fréttaflokkar
Fréttasafn