Þau skötuhjú Helgi Björnsson og Vilborg
Halldórsdóttir ferðast um landið í júní og taka hús á nokkrum af þeim
fjöldamörgu einstaklingum sem eru að undirbúa sig fyrir Landsmót hestamanna,
hápunkt hestamennskunnar á Íslandi. Fjöldi viðmælenda prýða þáttinn, sem verður
einkar áhugaverður fyrir hestaáhugafólk sem og hina sem langar að fræðast meira
um Landsmót og allt það sem lítur að hestamennsku hér á landi.
Meðal viðmælenda
eru reiðkennarar og dómarar, frægir knapar, aðstandendur Landsmótsins og
vonarstjörnur Landsmótsins, auk þess sem rætkunarbú verða heimsótt og
hestalitir teknir til umfjöllunnar svo fátt eitt sé nefnt. Þá verður stiklað á
stóru í sögu Landsmóts hestamanna.
Þættirnir sem verða sýndir á stöð 2, verða á léttum og skemmtilegum nótum og eru fullkomin upphitun fyrir
Landsmótið og hestamennskuna í sumar.
Fyrsti þátturinn verður sunnudaginn 3.júní klukkan 19.40 … ekki missa af því !
Sprettur – upphitun fyrir landsmót

Skoðaðu myndskeið með því að smella hér.
Nýjustu fréttir
Fréttaflokkar
Fréttasafn