Hestamannafélagið Hörður · Mosfellsbær 864 7753 hordur@hordur.is

Aðalfundur 2011

22. febrúar 2012 Hestamannafélagið Hörður Comments Off

Hestmannafélagið Hörður Hestamannafélagið
Hörður


Aðalfundur 2011

Dags.
24. nóvember 2011

Haldinn í Harðarbóli kl. 20.00

 

Mættir 54 manns,
þar með talið aðalstjórn. Mættir frá aðal- og varastjórn: Guðjón Magnússon
formaður (GM),  Guðný Ívarsdóttir
gjaldkeri.(GÍ) ), Gyða Á. Helgadóttir meðstj.(GAH)., Sigurður Guðmundsson
meðstj.(SG), Sigurður Ólafsson meðstj.(SÓ), Sigurður Teitsson meðstj. (ST),
Ragnhildur Traustadóttir varam.(RT),  

 

Fjarverandi frá
aðal- og varastjórn: Ingimundur Magnússon varam. Guðmundur Björgvinsson varam.
og Hörður Bender meðstj.

Dagskrá skv.5. grein laga Hestamannafélagsins
Harðar:

1)     
Formaður
setur fund og tilnefnir fundarstjóra og fundarritara.

2)     
Formaður
flytur skýrslu stjórnar.

3)     
Gjaldkeri
skýrir reikninga félagsins og
kynnir 9 mán. milliuppgjör.

4)     
Umræður
um skýrslu stjórnar og reikninga félagsins.

5)     
Reikningar
bornir undir atkvæði.

6)     
Fjárhagsáætlun
næsta árs og umræður.

7)     
Árgjald
ákveðið.

8)     
Lagabreytingar.

9)     
Kosningar
samkvæmt 6. grein.

10)  
Önnur
mál.

11)  
Fundarslit.

1. Formaður setur fund og tilnefnir fundarstjóra
og fundarritara

Formaður setur
fund og stingur upp á Marteini Magnússyni sem fundarstjóra og Gyðu Árnýju
Helgadóttur sem fundarritara sem er samþykkt af fundarmönnum.

Fundarstjóri
þakkar traustið og kynnir dagskrá fundarins.

2. Formaður flytur skýrslu stjórnar

Fundarstjóri
kynnir Guðjón formann sem flytur skýrslu stjórnar:

Haldnir voru 9
formlegir stjórnarfundir á starfsárinu og funduðu nefndir reglulega um sín
málefni.  Heimasíðan var notuð fyrir
upplýsingaflæði til félagsmanna og upplýsingataflan  er einnig mikið notuð, upplýsingatöflu var
bætt við, við innganginn í reiðhöllina. Fréttir af félagsstarfinu hafa svo
birst reglulega í Fréttabréfi Harðar sem birtist reglulega í Mosfellingi en það
samstarf hefur tekist vel.

 

Þau ár sem ég hef
setið hér í stjórn hafa flest verið átakaár, það var barist við að fjármagna og
undirbúa byggingu reiðhallarinnar, gengið var í gegnum erfiða samninga og mál
sem drógu á tímabili úr manni allan mátt. Áskorunin að leiða félagið í gegnum
hrunið og koma farssællega út úr byggingu reiðhallarinnar þrátt fyrir þær
gríðarlegu forsendubreytingar sem fylgdu þessu svarta tímabili Íslandssögunnar.
Eins og þið vitið sum sem hér sitjið, en ekki öll, þá munaði ekki miklu að hætt
yrði við byggingu reiðhallarinnar haustið 2008, en þá átti ég örlagaríkt samtal
við Harald bæjarstjóra, þegar hann sagði:" Guðjón, við erum ekki að fara að
byggja reiðhöll núna, það er allt í rúst" og ég svaraði: „jú, við erum að fara
að gera það". Það varð smá þögn, en svo svaraði hann: allt í lagi, ef þið treystið
ykkur í það þá mun bærinn standa við sitt. 
Þetta stutta samtal sýnir meira en nokkuð annað það traust sem
hestamannafélagið Hörður nýtur hjá bæjaryfirvöldum, en þau hleyptu okkur af
stað með framkvæmd sem á þeim tíma þótti óðs manns æði og við ollum þeim ekki
vonbrigðum. Við þekkjum svo öll hvernið stór hópur félagsmanna innréttaði
reiðhöllina og kláraði þar með dæmið, en nú eigum við eina glæsilegustu
reiðhöll landsins.

Liðið ár hefur
verið öðruvísi, margt er komið á lygnan sjó, stórframkvæmdunum er að mestu
lokið svo hægt hefur verið að beita sér enn meir að félagsstarfinu, en það blés
út og blómstraði samhliða átökunum við að koma reiðhöllinni upp.  Það er gott merki um velgengni þegar fólki
finnst það geta gefið af sér til annarra, en það hefur Hörður svo sannarlega
gert á liðnu ári, en félagsandinn sem hér ríkir er löngu orðinn landskunnur og
samheldnin öðrum félögum fyrirmynd, en það kom berlega í ljós á formannfundi
hestamannafélaga landsins sem haldinn var í byrjun nóvember. Þar voru
fjölmargir sem ræddu við mig um þann frábæra félagsanda sem þau höfðu frétt af
hér í félaginu.  Það sem ég er þó
stoltastur af er það sem fær okkur til að gefa frá okkur til annarra. Við höfum
það gott, höfum farið skynsamlega í okkar mál og erum með sterkari íþróttafélögum
landsins hvort heldur að litið er til efnahags eða félagslegrar samstöðu. Það
er okkur því ljúft og skylt að gefa frá okkur til samfélagsins. Við gerum það á
ýmsan hátt í Herði. Við söfnum fé fyrir líknarfélög, við rekum heilbrigt barna
og unglingastarf, við höldum reiðnámskeið fyrir fatlaða og reynum með því að
auka hreyfigetu þeirra með aðstoð hestsins, 
við höldum góð íþróttamót og styðjum okkar keppnisknapa til að standa
sig í íþróttinni, við vinum að því að koma á kennslu í hestafræðum við framhaldsskóla
landsins og fleira og fleira. Þessi vilji okkar til að gefa frá okkur hefur
vakið athygli og má segja að það streymi til okkar viðurkenningar, nú síðast
erum við tilnefnd til hvatningaverðlauna Öryrkjabandalags Íslands fyrir að
stuðla að breytingu á ímynd fatlaðra og Samfélagssjóður Landsbankans veitir
okkur 250.000.- kr. styrk til fræðslunefndar fatlaðra. Auk alls þessa er rekið
blómlegt félagsstarf í félaginu  fyrir
þann breiða hóp hestamanna sem þar eru félagsmenn, en félögum fjölgar stöðugt
og eru nú komnir í á níunda hundraðið.

Á áðurnefndum
formannafundi var okkur svo afhentur æskulýðsbikar Landssambands hestamanna, en
það er æðsta viðurkenning sem hestamannafélag getur fengið fyrir vel unnið
æskulýðsstarf og af öllum þeim viðurkenningum sem eru í boði í félagsstarfinu
þá þykir mér best að fá þessi og hef litið þennan bikar löngunaraugum þegar
honum hefur verið útdeilt til annarra félaga á liðnum formanna og landsfundum
Landssambands hestamanna. En nú er hann kominn í hús.

Kvennadeildin
stóð fyrir reiðtúrum fyrir Harðarkonur, annan hvern þriðjudag í vetur og voru
þeir vel sóttir, þetta var nýjung í starfinu sem margar konur nýttu sér til
æfinga, stuðnings og samveru. Endapunkturinn á þessu var svo
formannsfrúarreiðin sem vikið verður að hér síðar.

Langbrókarmótið
var haldið í Varmadal að þessu sinni og tóku húsráðendur vel á móti
Harðarfélögum eins og svo oft áður.

Vetrarmótin voru
öll haldin í reiðhöllinni og voru flestir fegnir að geta verið innan dyra, en
veður voru með leiðinlegra móti í vetur. 
Það var áberandi hvað margir nýir kepptu á mótunum og eru þau greinilega
að þjóna þeim tilgangi sínum að koma fleiri að keppnisíþróttinni.

Páskaratleikurinn
var haldinn þann 10. Apríl og er nú orðinn árlegur viðburður í starfi
æskulýðsnefndar.

Þann 16. Apríl
var riðið í Fák og fór Lilla þar fremst í flokki með stóran hóp félagsmanna.

Þann 30. Apríl
tókum við á móti Fáksfélögum í kafaldsbil og kulda. Hópur reið á móti Fáki
neðri leiðina, en þegar komið var upp fyrir Korputorg og ekkert bólaði á Fáksmönnum
var snúið við, enda hafði þá borist boð frá þeim að þeir hefðu snúið við vegna
veðurs.  Fararstjórinn okkar ætlaði ekki
að trúa þessu á félaga sína í Fáki og þótti þetta ekki karlmannlegt.
Mótreiðarhópurinn reið svo til baka og hitti um 20 Fáksfélaga í Harðarbóli sem
höfðu komið akandi að þessu sinni.

Firmakeppni
Harðar fór fram þann 1.maí að venju

Þann 13.-15. Maí
var haldið opið WR íþróttamót Harðar

Formannsfrúarreið
Harðarkvenna var farin 21.maí og tókst vonum framar. Hestar Harðarkvenna voru
keyrðir á Skógarhóla um morguninn af Harðarmönnum og voru rúmlega 70 hross
flutt á Þingvöll.  Eftir got stopp á
Þingvöllum var riðið til baka í Mosfellsbæ, bill með kerru, járningartólum og
fl. fylgdi hópnum, en lítið var fyrir hann að gera nema deila út kaffi og öðrum
veitingum.  Síðan var haldin veisla í
Harðarbóli langt fram á kvöld.

Náttúrureið var
riðin í Kjalarnesrétt þann 28. Maí, þar var 
grillvagninn mættur og fólk skemmti sér við gítarspil og söng fram eftir
degi.

Kirkjureið var
þann 29. Maí hún var með hefðbundnu sniði, riðið til kirkju að Mosfelli og að
því loknu buðu Harðarkonur í kirkjukaffi í Harðarbóli.

Gæðingamót Harðar
var haldið3.-5. Júní, en mótið var einnig úrtaka fyrir Landsmót

Landsmót á
Vindheimamelum var haldið daganna 26. Júní – 3. Júlí, það er ánægjulegt frá því
að segja að þar slógu Harðarfélagar met hvað varðar þátttöku í
sjálfboðaliðastarfi af félögunum hér sunnanlands.  Landsmót ehf er að færa Landsmótin aftur til
félaganna en liður í því er að bjóða félagsmönnum að vinna í sjálfboðavinnu á
Landsmótinu við lét störf, 4 til 8 tíma hver. Landsmót greiðir síðan því félagi
sem sjálfboðaliðinn er í 1500 kr. Fyrir hvern unninn tíma.  Eðli málsins samkvæmt þá voru félögin í
Skagafirði með flesta tíma, en fast í hæla þeirra kom Hörður.             

Harðarkrakkar
náðu frábærum árangri á Íslandsmótinu þetta árið.

Hörður heldur
áfram með námskeið fyrir fatlaða og verða haldin 4 námskeið fram að jólum.

Markmið
námskeiðsins:


  • Eiga
    frábæra stund saman í skemmtilegur umhverfi

  • Geti
    umgengist hesta af öryggi og óttaleysi

  • Að
    kynnast hestinum og læra undirstöðuatriði í umhirðu hestsins.

  • Lært
    undirstöðuatriði í reiðmennsku eftir getu hvers og eins

  • Auka
    sjálfstæði og færni í samskiptum við hesta

  • Að
    bæta líkamsvitund

  • Að
    auka samhæfingu handa, fóta og skynfæra.

  • Styrkja
    leiðtogahlutverk í samskiptum við hestinn.

Lagt er áhersla á
fjölbreytni og að allir nemendur fái sem mest út úr námskeiðinu eftir þörfum
hvers og eins.

Kennslan er í
höndum reyndra leiðbeinanda með margra ára reynslu í reiðkennslu fatlaðra,
sjúkraþjálfari verður til taks sem og aðrir aðstoðarmenn eftir þörfum.

Samdar voru og
samþykktar reglur um það hvernig félagið tekur á einelti og áreiti ef það
skyldi koma upp í félagsstarfinu.

Félagið hefur
ráðið Rekstrarstjóra, en það stóð alltaf til með tilkomu reiðhallarinnar og
hefur sýnt sig að vera nauðsynlegt. Reiðhöllin var farin að láta á sjá, enda
ekki sinnt nema í sjálfboðaliðastarfi, en slíka vinnu er ekki hægt að fara fram
á að menn vinni í sjálfboðavinnu til lengdar. Rekstrarstjórinn er Ragna Rós
Bjarkardóttir.

Harðarból hefur
verið málað og tekið í gegn eins og þið sjáið og verið er að undirbúa
viðbyggingu hér vestan við húsið sem mun stækka salinn þannig að hann tekur um
150 manns þegar hann er full setinn. Þetta mun gera húsið leigjanlegra til
veisluhalda, en það þykir full lítið eins og er fyrir margar veislur.

Framhaldsskólinn
og Hörður hafa tekið upp samstarf og eru nú kenndar 4 stundir í viku í hestafræðum
við skólann. Verið er að undirbúa viðamikið nám með 70 einingum til stúdents í
samráði við Búnaðarsambandið og Félag tamningarmanna, en stefnt er á að full
kennsla við þessa nýju braut hefjist haustið 2013. Ef vel gengur mun námið svo
vera yfirfært á aðra framhaldsskóla landsins.

Samningum og
öðrum formlegheitum varðandi skítalosun í Sogunum hér uppi við Stardal er nú
lokið og er Herði heimillt að losa allan þann skít sem kemur frá hesthúsunum
þar.  Um er að ræða metnaðarfullt
samstarf Harðar, Mosfellsbæjar og skóræktarfélagsins um sjálfbæra förgun á skít
og uppgræðslu og gróðursetningu. Unnið verður að því að þarna verð skjólsæl
beitarstykki reið og göngustígar og útivistasvæði með snyrtingum og
grillaðstöðu. Verkefnið hefur fengið vottun og er viðurkennt af stofnunum
EB.  Rekstrarstjórinn okkar hún Ragna Rós
mun halda utan um aðgang að svæðinu, en fyrirkomulagið verður kynnt fljótlega.

Vinna hefur
staðið yfir hjá Mosfellsbæ um val á staðsetningu fyrir nýtt hesthúsahverfi, en
núverandi hverfi er að verða fullbyggt og því verður fljótlega þörf á nýju
hverfi. Sú staðsetning sem nú er unnið með er svæði ofan við vaðið sem er neðan
við Oddsbrekkunna á móts við Tjaldanes. Ég sé ekki betur en þetta sé góð
staðsetning út frá okkar sjónarmiði, stutt verður á milli hverfanna, landið
hallar mót suðri, það er sólríkt og ekki í skugga af fjöllum.

Bent hefur verið
á að Mosfellsbær hefur algjöra sérstöðu hvað varðar hlutfall bæjarbúa sem eru í
hestamennsku, en það lætur nærri að um 10 % bæjarbúa séu í hestamannafélaginu,
að auki telur LH að 2-3 til viðbótar stundi hestamennsku án þess að vera
formlega skráð í félag, svo iðkendur hestamennsku í Mosfellsbæ gætu numið yfir
20 % af íbúafjöldanum.  Áætlanir
sveitafélagsins byggja á því að þetta hlutfall haldist, þannig að þegar nýbúum
fer að fjölga á ný þá muni skapast þörf fyrir fleiri hesthús.

Helgi Sigurðsson
dýralæknir og sagnfræðingur hefur nú skilað handriti af sögu félagsins til
Aðalstjórnar og liggur það hér frammi til skoðunar. Handritið er nú til
yfirlestrar og er stefnt að því að gefa út veglega bók strax á næsta ári.  Áætlaður kostnaður við útgáfuna er um 2,5
millj. kr. en það verður fjármagnað með styrkjum og sölutekjum af bókinni.  Við munum standa fyrir forsölu á bókinni og
munu þeir sem kaupa bókina í forsölu fá nafn sitt prentað í hana.  Þeir sem vilja skrifa sig á þennan lista geta
gert það núna, en hann verður látinn ganga hér á eftir. Áætlað er að prenta um
200 eintök af bókinni til að byrja með og verður verð hennar í þessari forsölu
7.500.- krónur

Notkun
reiðhallarinnar verður að mestu leiti á vegum æskulýðsnefndar, fræðslunefndar
og nýstofnaðrar fræðslunefndar fatlaðra, 
en félagar geta keypt sér rafrænan lykil og notað höllina þegar ekki eru
þar formleg námskeið. Vellinum verður tvískipt, þannig að reiðkennsla getur
verið í einum endanum og almennir félagsmenn við æfingar í hinum. Það verður
bannað að fara inn í reiðhöllina með hest án slíks lykils.  Sjálfvirkt eftirlitskerfi heldur svo skrá
yfir það hverjir eru í reiðhöllinni hverju sinni.  Rafrænn lykill mun áfram kosta 4.000.- kr.
fyrir fullorðna, yfir 22 ára, og 2.000.- kr. fyrir ungmenni undir 22. ára
aldri.

Eins og ég hef
áður sagt er það ekki markmið okkar að skila miklum hagnaði, þeim fjármunum sem
við öflum á að beina út í félagsstarfið þar sem þeir gera félagi og
félagsmönnum gang. Það er ekki okkar stefna að safna digrum sjóðum, nema þeim
sem við bindum í eignum sem við notum í þágu félagsstarfsins.  Undanfarin ár höfum við skilað 200 til 300
þús.kr. hagnaði að meðaltali.  Hagnaður
ársins 2010 var hins vegar um 3 millj. af 
reglulegri starfsemi og jukust tekjur milli ára  úr um 13.8 millj. 2009 í 17,5 millj. árið
2010.  Þessi hagnaður varð einkum vegna
þess að hestapestin dró úr félagsstarfinu og þar með kostnaði seinni hluta
vetrar. Þessum hagnaði er svo  verið að
skila út í félagsstarfið á þessu ári, en 10 mánaða uppgjör ársins 2011 sýnir
tap upp á um eina milljón, sem skýrist af því að við erum að nota hagnað ársins
2010 til félagsstarfsins 2011. Ég vil benda á að árgjöld félagsmanna eru aðeins
að skila um 2 millj. af veltu félagsstarfsins sem er nú um 20 mill. eða um 10%
af tekjum félagsins. 90% af tekjum félagsins kemur því í formi styrkja,
framlaga fyrirtækja og sjálfaflafés okkar sem rekum félagið í stjórn þess og
nefndum.  Í þessum tölum er að sjálfsögðu
ekki tekið tillit til þess hagnaðar sem rennur í félagið vegna fjármögnunar
reiðhallarinnar, en sé tekið tillit til þess þá er hagnaðurinn rúmlega 22
millj. á árinu 2010. Efnahagsreikningurinn er orðinn stór og er  bókfært eigið fé nú orðið um 173 milljónir og
staða félagsins betri en flestra sveitafélaga landsins, eins og einhver
sagði.  Skuld vegna fjármögnunarsamnings
reiðhallarinnar er um 49.millj. en framlög frá Mosfellsbæ höggva í þá skuld ár
hvert.  Mosfellsbær samdi um að fá að
lengja í framlögunum um tvö ár og var fjármögnunarsamningurinn stilltur af
miðað við það og greiðir Mosfellsbær allan kostnað sem af því hlýst.

Sigurður
Guðmundsson lögmaður okkar og bókari fer betur yfir fjármálin hér á eftir.

Kæru félagar,
síðastliðið vor var ég farinn að undirbúa mig og félagið undir að ég hætti sem
formaður, enda gera lög félagsins ekki ráð fyrir að formaður sitji nema fjögur
ár. Þegar menn áttuðu sig á þessu komu félagsmenn til mín í tugatali og fóru
þess á leit við mig að ég legði fyrir aðalfund breytingartillögu á lögunum
þannig að formaður gæti setið lengur ef hann og félagsmenn kysu svo.

Hvað mig varðar
þá er það skýrt að hefði þetta ákvæði ekki verið í lögunum þá hefði ég boðið
mig fram til formanns annað ár.  Til þess
liggja nokkrar ástæður. Í fyrsta lagi þá eru fjögur ár í þessu starfi ekki
langur tími, að minnsta kosti ekki þegar verkin sem unnin eru, eru jafn víðfeðm
og við höfum verið að takast á við undanfarin ár. Það tekur tíma að kynnast
innviðum félagsins, innviðum stjórnsýslunnar sem svo margt byggist á og öðlast
traust þeirra sem við vinnum fyrir og með. Það er margt á mínum aðgerðarlista
sem ég get sett hak við og sagt, þetta er búið, en enn eru þó eftir nokkur
verkefni sem ég hefði kosið að klára sem formaður ykkar og ber þar hæst
menntamálin í framhaldsskólanum sem eru á mjög viðkvæmu stigi núna.

Af hverju þetta
ákvæði um takmarkaða formannssetu er í lögunum skil ég satt að segja ekki.  Mér hefur verið sagt að það hafi verið sett
inn til að auðvelda félagsmönnum að losna við þaulsetinn latan formann ef til
þess kæmi, eins konar sjálfvirkur sleppibúnaður, og ekki síður að gefa sitjandi
formanni færi á að fara frá án þess að finnast hann vera að svíkja
félagið.  Nú finnst mér að þið sem hér
sitjið sæmilega ákveðinn og sjálfstæður hópur og varla ætti það að vefjast
fyrir ykkur að kjósa burt óhæfan formann og ef formaður vill fara, þá fer hann,
eins og hefur sýnt sig allt of oft í gegnum tíðina hér hjá Herði. Það er
nefnilega þannig að þegar maður skoðar formannatalið þá kemur í ljós að formenn
sitja almennt mjög stutt hin seinni ár og hafa því ekki þann tíma sem það tekur
að ná almennilega utan um starfið.  Þegar
ég tek við sem formaður þá kom á undan löng runa af eins til tveggja ára formönnum.

Alls hafa18 manns
gegnt formennsku í Herði þau 61 ár sem félagið hefur starfað.  Aðeins þrír formenn hafa enst lengur en
fjögur ár, en það voru þeir Gísli Jónsson fyrsti formaðurinn okkar sem var
formaður frá 1950-1953 og svo aftur frá 1962-1963 eða í fimm ár,  Kristján Þorgeirsson sem var formaður frá
1955-1961 eða í 6 ár, og Pétur Hjálmarsson sem var formaður frá 1964-1973 eða í
níu ár. 1 hefur setið í fjögur ár, en það er ég sjálfur,  3 hafa setið í þrjú ár og 11 í eitt til tvö
ár. Það vita það allir sem komið hafa að stjórn- og eða félagsmálum þar sem
verið er að vinna með skipulags og uppbyggingarmál að það gerist ekkert á einu
til tveimur árum. Það gerist hins vegar margt á fimm til tíu árum og þegar
þannig stendur á þarf að vera svigrúm fyrir félagið að kjósa formann lengur en
í fjögur ár samfleytt.

Það verður sem
sagt lögð fram breytingartillaga hér á eftir þess efnis að felld verði út
setningin sem takmarkar setu formanns við fjögur ár. Eftir þá umræðu og
væntanlega kosningu um tillöguna mun ég taka ákvörðun um það hvort ég bjóði mig
fram aftur til formanns. Tveir þriðju hlutar greiddra atkvæða þarf til að
lagabreytingar nái fram að ganga, en  ef
áberandi andstaða verður við tillöguna mun ég ekki gefa kost á mér til
áframhaldandi setu sem formaður, ég vil vera formaður allra Harðarfélaga eins
og hingað til, ekki bara sumra.  Og þó ég
vilji gjarnan halda áfram að vinna fyrir félagið, þá er það mér ekki það
kappsmál að ég vilji stuðla að hinni minnstu sundrung til þess að svo megi
verða og ég verð hvorki sár né leiður kjósið þið kæru félagar að halda lögunum
óbreyttum.

Önnur
breytingartillaga felur í sér að breyta 
lögunum um kosningu í aðalstjórn félagsins. Eins og nú er þá hefur
lagagreinin oft verið túlkuð á þann veg að þrír þurfi að ganga úr aðalstjórn ár
hvert og þrír nýir að koma inn í staðinn. 
Þetta  hefur verið leyst með því
að taka þrjá út úr aðalstjórn og setja þá niður í varastjórn og færa
varastjórnarmennina upp í aðalstjórn.  Þó
allir segist skilja þetta, þá er það mjög vont fyrir félagið svo ég tali nú
ekki um vandræðalegt að þurfa að biðja góðan stjórnarmann að hypja sig eða taka
sæti í varastjórn eftir tveggja ára setu. 
Raunin hefur líka verið sú að varastjórn er boðuð á alla stjórnarfundi
og gefur þar frá sér til félagsins jafnt á við aðra stjórnarmenn. Það er því
lagt til að átta meðstjórnendur verði kosnir til tveggja ára þannig að fjórir
stjórnarmenn gangi úr stjórn ár hvert, en þeir sem ganga úr stjórn með þessum
hætti geta verið endurkjörnir.  Þá eru
allir þeir sem til stjórnarsetu eru kosnir jafn virkir og jafnt metnir.

Þriðja
lagabreytingin lítur að því að samræma þann aldur sem aðilar þurfa að hafa náð
til að gegna trúnaðarstörfum fyrir félagið við gildandi landslög um sjálfræði
og fjárræði, en sá aldur hefur verið hækkaður úr 16 ára í 18 ára eins og menn
þekkja.

3. Skýringar á reikningum félagsins og kynnt 9
mánaða uppgjör

Fundarstjóri
þakkar Guðjóni fyrir skýrsluna og kynnir næsta dagskrálið, Sigurður Guðmundsson
(SG) skýrir reikninga félagsins.

SG tekur til
máls. Löggiltur endurskoðandi, Þórhallur Björnsson, yfirfór og áritaði
ársreikning. Einnig hafa kjörnu endurskoðendurnir Birgir Hólm og Leifur Kr.
Jóhannesson yfirfarið og áritað reikningana. Áritanir eru án athugasemda.

Sigurður skýrir
út ársreikninga félagsins sem liggja frammi og gefur mjög greinagóðar upplýsingar.  Einnig kynnir hann árshlutauppgjör út október
2010 sem er einum mánuði meira en gert er ráð fyrir í lögum félagsins.

4. Umræður um skýrslu stjórnar og reikninga
félagsins.

Fundarstjóri
þakkar Sigurði fyrir útskýringar. Fundarstjóri óskar eftir athugasemdum frá
fundarmönnum um skýrslu stjórnar og ársreikninga. 

Fyrirspurnir
frá fundarmönnum:


  • Varðandi
    lið 7 í sundurliðun. Hvers vegna er allt á núlli fyrir árið 2010?

o  
SG svarar
og segir þetta vera þar sem þessi liður var fluttur yfir á rekstur reiðhallar
sem telst eðilegra.


  • Nefndarkostnaður
    í lið 6, hvaða kostnaður er þetta og af hverju er ekki sundurliðað á nefndir
    s.s. æskulýðsnefnd, fræðslunefnd, mótanefnd osfv?

o  
SG
svarar og segir það aldrei hafa verið sundurliðað en hinsvegar mætti breyta því
og í raun eðlilegt að gera og myndi auðvelda fjármálastjórnun.  Einnig mætti vera sundurliðaður
hreyfingalisti frá nefndunum t.d. hvernig hvert mót kemur út osfrv.


  • Langtímaskuld
    félagsins vegna reiðhallarinnar. Hvenær verður hún greidd upp?

o  
ST
svarar og segir frá því að Mosfellsbær fór þess á leit við félagið eftir
efnahagshrunið að fá að greiða sinn hluta sbr. samning á lengri tíma. Það átti
að vera greitt upp skv. samningnum árið 2012 en verður í staðinn árið 2014.

Ekki voru fleiri
fyrirspurnir. Fundarstjóri tekur fram að skoðunarmenn fóru vel yfir og
samþykktu allir ársreikninginn.

5. Reikningar bornir undir atkvæði

Fundarstjóri ber
upp ársreikninginn til samþykktar og er hann samþykktur samhljóða með
handaruppréttingu.

6. Fjárhagsáætlun næsta árs og umræður

Fjárhagsáætlun er
á blöðum og liggur frammi, á borði stjórnar. SG kynnir fjárhagsáætlun félagsins
fyrir næsta ár.

Fundarstjóri
opnarfyrir umræður og fyrirspurning varðandi áætlunina

Fyrirspurnir
frá fundarmönnum:


  • Hvernig
    er áætlað að greiða nýráðnum starfsmanni laun.

o  
GM
svarar. Sótt var um styrk, „sérstakt átaksverkefni" frá Vinnumálastofnun sem
var samþykkt eftir töluverða eftirfylgni. Verkefnið tekur 6 mánuði. Einnig er
gert ráð fyrir að starfsmaður geti selt fleiri auglýsingar, að útleiga á
félagsheimilinu verði meiri og að starfsmaður geti sinnt fjáröflun meira en
sjálfboðaliðar geta gert.

Ekki fleiri fyrirspurnir
varðandi ársáætlun.

7. Árgjald ákveðið

Ekki eru gerðar
tillögur að breyttri gjaldskrá fyrir árgjaldið. Árgjaldið er:


  • 12 og
    yngri félagsgjald kr. 0.- (frítt)

  • 13-20
    félagsgjald kr. 2.000

  • 21-69
    félagsgjald kr. 7.500

  • 70 og
    eldri félagsgjald kr. 0.- (frítt)

Þetta er
samþykkt.

8. Lagabreytingar

Með fundarboði
voru sendar tillögur að lagabreytingu. Fundarstjóri les upp tillögu að
breytingu. Um er að ræða breytingu á 6. grein laga félagsins.

6.grein í
lögum félagsins hljóðar nú svo:

Stjórn félagsins
skipa sjö manns. Stjórnin skiptir með sér verkum að undanskildum formanni sem
kosin er beinni kosningu. Skal hún kosin á aðalfundi samkvæmt eftirfarandi
reglum.

Formaður skal
kosin til eins árs og getur verið endurkjörin þrisvar sinnum.

Sex
meðstjórnendur skulu kosnir til tveggja ára þannig að þrír gangi úr stjórn ár
hvert.

Þrír
varastjórnarmenn til eins árs sem taka sæti í aðalstjórn eftir atkvæðamagni.

Einnig skal á
aðalfundi kjósa tvo skoðunarmenn reikninga félagsins til eins árs.

Þá skal og kjósa
fulltrúa á ársþing og aðalfundi þeirra samtaka sem félagið á aðild að, að því
undanskyldu að formaður er sjálfkjörinn. Einungis félagar eldri en sextán ára
eru kjörgengir í slíkum kosningum.

Tillaga er
gerð um að 6. grein í lögum félagsins hljóði eftirleiðis svo:

Stjórn félagsins
skipa átta manns auk formanns.  Stjórnin
skiptir með sér verkum að undanskildum formanni, sem kosinn er beinni
kosningu.  Kosning stjórnar og formanns
félagsins skal fara fram á aðalfundi félagsins samkvæmt eftirfarandi reglum:

Formaður skal
kosinn til eins árs í senn og getur verið endurkjörinn.

Átta
meðstjórnendur skulu kosnir til tveggja ára þannig að fjórir stjórnarmenn gangi
úr stjórn ár hvert.  Þeir sem ganga úr
stjórn með þessum hætti geta verið endurkjörnir.

Á aðalfundi skal
kjósa tvo skoðunarmenn reikninga félagsins til eins árs í senn.

Þá skal og kjósa
fulltrúa félagsins á ársþing og aðalfundi þeirra samtaka sem félagið á aðild að
en formaður félagsins skal þó teljast vera sjálfkjörinn. 

Einungis félagar
eldri en átján ára eru kjörgengir í kosningum til stjórnar, formanns félagsins,
til að vera skoðunarmenn ársreikninga og til að vera fulltrúar félagsins á
ársþingum og aðalfundum þeirra samtaka sem félagið á aðild að.

Allar síðari lagabreytingar skulu staðfestar af
stjórn hlutaðeigandi héraðssambands og framkvæmdastjórn ÍSÍ.

Skýring:

Markmiðið með
þessum lagabreytingum tvíþætt,  Það fyrra
er að formaður geti setið lengur en í 4 ár. Það tekur tvö til þrjú ár fyrir
nýjan  formann að ná tökum á starfinu,
kynnast fólki innan kerfisins og öðlast traust innan þess.  Það er fyrst á fjórða ári sem róðurinn fer að
léttast.  Ef sitjandi formaður er
tilbúinn að leggja það á sig að vinna áfram fyrir félagið og félagsmenn og
aðalfundur óskar þess eindregið þá er óeðlilegt að lagasetning félagsins banni
það.

Annað er að það
hefur tíðkast í að minnsta kosti áratug að bæði aðalstjórn og varastjórn er
boðuð á stjórnarfundi. Þar vinna allir saman að málefnum félagsins og veitir
ekkert af. Það virkar því illa að sumir séu í aðalstjórn en aðrir í varastjórn.
Einnig er það óþægilegt og vandræðalegt að þurfa að biðja duglegan
aðalstjórnarmann að víkja og færa sig niður í varastjórn þar sem lög félagsins
kveða svo um að þrír þurfi að ganga úr stjórn ár hvert. 

Samkvæmt
lögræðislögum nr. 71/1997 verða menn sjálfráða og fjárráða átján ára en fyrir
gildistöku laganna urðu menn sjálfráða sextán ára.  Eðlilegt og rétt er að þeir aðilar sem gegna
trúnaðarstörfum fyrir félagið séu sjálfráða.

Fundarstjóri
opnar fyrir umræðu um lagabreytinguna:


  • Þórhildur
    biður fólk að staldra við og spyrja sig hvað þetta þýðir. Núverandi formaður
    stendur sig vel og hefur gert. Þetta snýst ekki um Guðjón. Hún kvetur
    fundarmenn að ræða lagabreytinguna. Í félaginu eru ólíkir hópar en það er mjög
    erfitt að einhver bjóði sig fram gegn sitjandi formanni. Getur þetta leitt til
    þess að ákveðnir hópar verði ekki eins virkir. Með nýju fólki koma nýjar
    áherslur – ferskir vindar sem er gott en það getur verið óþægilegt að taka
    afstöðu um þessa breytingu . Tölum opinskátt. Það er óviðeigandi að hafa
    kosninguna opna og leggur til að hafa hana skriflega.

  • Helena.
    Hver tekur við ef kosning verður núna og bendir á að það er ekki sjálfssagt að
    fá annan formann.

o  
SG
svarar. Um er að ræða tillögu um lagabreytingu. Formenn eru kosnir til eins árs
í senn. Engin breyting á því


  • Lína
    spyr, af hverju voru lögin sett svona og hvenær?

o  
Fundarstjóri
svarar. Það var gert til að koma í veg fyrir að formenn sætu of lengi og erfitt
að bjóða sig gegn sitjandi formanni.


  • Ólafur
    biður fundarmenn að hafa í huga að iðulega er vandamál að fá fólk til starfa og
    við eigum að vera þakklát fyrir þá sem vilja vera lengur en 4 ár. Hann vinnur
    hjá Mosfellsbæ og hefur átt mikil og góð samskipti við Hörð. Þessi takmörkun á
    hversu lengi formaður má sitja er mjög óvanaleg grein í lögum félags.

  • Pétur
    spyr Sigurð Guðmundsson lögfræðing. Má fara millileið?

o  
GM
gefur ekki kost á sér ef farin verður millileið. Hann vill ekki valda úlfúð og
gefur aðeins kost á sér ef mikill meirihluti sé samþykkur því.

o  
SG
upplýsir að 2/3 hlutar fundarins verði að samþykkja til að þetta verði
samþykkt. Annars verður að koma önnur tillaga á fundinum. Með þessari breytingu
er verið að auka lýðræðið í félaginu


  • Guðmundur
    Borgar. Það er klárt að verið er að auka lýðræðið í félaginu.

  • Nýr
    og óháður félagsmaður (ónefndur). Eins og fram hefur komið á fundinum þá hafa
    formenn ekki setið nema stuttan tíma í einu. Erfiðast er því að fá góða formenn
    til starfsins.

  • Þórhildur
    segir gott að tala um þetta, það hafi skapast flott umræða. Hún segist sátt við hvaða niðurstöðu sem er
    en vildi skapa umræðu.

Fleiri voru ekki á mælendaskrá. Fundarstjóri skipar menn til að halda utan
um leynilega kosningu. Miðum er dreift. Skrifa á annað hvort „Já" eða „Nei" á
miðann. Miðunum safnað saman og talningamenn fara afsíðis.

Niðurstaða kosningar:


  • 47
    sögðu Já

  • 7 sögðu Nei

Lagabreytingin telst því samþykkt.

9. Kosningar skv. 6. grein laga félagsins

Tillaga að
stjórn:

Guðjón Magnússon
formaður.

Á aðalfundi 2010
voru þrír kosnir til tveggja ára: Sigurður Guðmundsson, Sigurður Ólafsson og
Hörður Bender. Því þarf að kjósa um fimm stjórnarmeðlimi til tveggja ára. Þeir
sem gefa áfram kost á sér í stjórn félagsins eru: Ragnhildur Traustadóttir,
Guðmundur Björgvinsson og Gyða Á. Helgadóttir. Óskað er eftir að fundarmenn
gefi kost á sér. Þeir fundarmenn sem gefa kost á sér eru: Karl Már Lárusson,
Auður Sigurðardóttir og Alexander Hrafnkellsson.

Í Kjöri eru því:


  • Ragnhildur
    Traustadóttir

  • Guðmundur
    Björgvinsson

  • Gyða
    Á. Helgadóttir

  • Karl
    Már Lárusson

  • Auður
    Sigurðardóttir

  • Alexander
    Hrafnkellsson

 

Skoðunamenn
reikninga: Leifur Kr. Jóhannesson og Birgir Hólm

Fulltrúar á þing
UMSK: Auk formanns félagsins sem er sjálfkjörin er tillaga að formaður
æskulýðsnefndar muni sitja þingið fh. Hestamannafélagsins Harðar.

Afreksmannasjóður: Auk formanns félagsins sem er
sjálfkjörin er tillaga að gjalkeri félagsins sitji í nefnd

um
afreksmannasjóð.

Fundarstjóri
skipar menn til að halda utan um leynilega kosningu. Miðum er dreift. Skrifa á
fimm nöfn af þeim sem eru í kjöri á miðann. Miðum safnað saman og talningamenn
fara afsíðis. Ákveðið að fara beint í dagskrárlið 10, meðan beðið er eftir
niðurstöðu kosningar.

Eftir talningu
og kosningu með handauppréttingu lá eftirfarandi fyrir:

Samþykkt Guðjón
Magnússon formaður

Úrslit
leynilegrar kosningar í aðalstjórn:


  • Ragnhildur
    Traustadóttir – 51 atkvæði

  • Auður
    Sigurðardóttir – 50 atkvæði

  • Gyða
    Á. Helgadóttir – 48 atkvæði

  • Alexander
    Hrafnkellson – 37 atkvæði

  • Karl
    Már Lárusson – 36 atkvæði

  • Guðmundur
    Björgvinsson – 31 atkvæði

Í aðalstjórn eru
því: Sigurður Guðmundsson (2010), Sigurður Ólafsson (2010), Hörður Bender
(2010), Ragnhildur Traustadóttir (2011), Auður Sigurðardóttir (2011), Gyða Árný
Helgadóttir (2011), Alexander Hrafnkellssonn (2011) og Karl Már Lárusson (2011)

Samþykktir
skoðunamenn reikninga: Leifur Kr. Jóhannesson og Birgir Hólm

Samþykkt sem
aðilar á þing UMSK: formaður félagsins (sjálfkjörin) og formaður
æskulýðsnefndar.

Samþykkt í stjórn
afreksmannasjóð: formaður félagsins(sjálfkjörin) og gjaldkeri félagsins

Fundarstjóri
óskar nýrri stjórn velfarnaðar

10. Önnur mál

Guðjón tekur til
máls. Rætt hefur verið um stækkun á Harðarbóli og fundarmönnum er sýnd teikning
af breytingunni. Reiknað hefur verið út arðsemina af stækkuninni. Þar sem
félagsheimilið hefur aðeins leyfi fyrir um 80 manns þá takmarkar það
útleigumöguleika. Því eru hugmyndir að byggja eftir því sem efnahagur félagsins
leyfir.

1.      
Teikningar

2.      
Plata

3.      
Gert
fokhelt

4.      
Klára

Fundarstjóri
segir það megi gera umhverfið huggulegra. Það má alltaf gera betur.

Lína spyr um
frágang við reiðhöllina hvort það megi ekki setja gras fyrir neðan hana.

GM segir að
Mosfellsbær muni setja fjármuni í frágang fyrir ofan reiðhöllina eftir áramót
og þá verði farið í það. Verið er að deiliskipuleggja hverfið og hugmyndin er
að gera kennsluaðstöðu t.d. litla höll eða hesthús  fyrir neðan hana (milli reiðhallar og reiðvegar)
en það má samt snyrta þar þangað til. Áætlað er að setja bílastæði þar sem
hvíta gerðið er, færa hvíta gerðið þangað sem kerrustæðið er og kerrustæðið
fært efst í brekkuna. Ábending kom frá fundarmönnum að fegra umhverfið betur
við vellina eins og að setja tré meðfram skeiðbrautinni. Margt gott hefur gerst
í hverfinu en það má alltaf bæta það.

Guðmundur Borgar
spyr hvort borin von sé að fá stækkun á hverfinu. Guðjón svarar að hverfið er
fullbyggt en við erum að reyna að fá byggingaleyfi fyrir tveimur til þremur
lengjum í viðbót austast í efra hverfinu (fyrir neðan Sorpu). 

Ekki voru frekari
umræður. Fundarstjóri Marteinn Magnússon kvetur fundarmenn að skrá sig á blöðin
sem liggja frammi til að tryggja sér sögu Harðar þegar hún verður gefin út.
Marteinn þakkar fundarmönnum gott hljóð, óskar nýrri stjórn velfarnaðar og
býður formanni orðið.

Lokaorð og fundarslit

Guðjón
nýendurkjörinn formaður Harðar tekur til máls.

Guðjón þakkar
innilega það traust sem honum hefur verið veitt til að starfa áfram fyrir
félagið.

Allir sem starfa
fyrir félagið eiga miklar þakkir skilið og sérstaklega þakkar hann þeim Sigurði
Teitssyni,  Guðnýju Ívarsdóttur,
Ingimundi Magnússyni og Guðmundi Björgvinssyni fyrir það mikla starf sem þau
hafa unnið fyrir félagið undanfarin ár.

Því miður hafa
innbrot aukist í hverfinu undanfarið. Það er myndavél á svæðinu en það stendur
til að leita leiða til að fjölga þeim og tengja við myndavélakerfið í
reiðhöllinni. Einnig að setja skilti við innkeyrsluna í hverfið sem varar fólk
við að það sé í mynd.

 

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 21.55

Fundargerð
ritaði: Gyða Árný Helgadóttir