Hestamannafélagið Hörður · Mosfellsbær 864 7753 hordur@hordur.is

Námskeið í Ólympíu

21. febrúar 2012 Hestamannafélagið Hörður Comments Off

olympiaolympia2Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands auglýsir eftir tveimur þátttakendum, konu og karli, á námskeið ungs íþróttafólks (20 til 35 ára) á vegum alþjóða Ólympíuakademíunnar í Ólympíu í Grikklandi dagana 16. til 30. júní n.k. Að þessu sinni er umfjöllunarefnið ólympismi auk þess sem fjallað er um lýðræði og gildi þess í störfum Ólympíuhreyfingarinnar.

Flugferðir og uppihald eru þátttakendum að
kostnaðarlausu. Leitað er eftir einstaklingum sem náð hafa mjög góðum
árangri í íþróttagrein (-greinum) og/eða sinnt
kennslu/þjálfun/félagsstörfum innan íþróttahreyfingarinnar, ásamt því að
sýna málefnum ólympíuhreyfingarinnar sérstakan áhuga. Þeir skulu hafa
gott vald á ensku og/eða frönsku og vera fyrirmynd annars æskufólks í
hvívetna.

Umsóknum skal skilað, á þar til gerðum eyðublöðum til skrifstofu ÍSÍ, Íþróttamiðstöðinni í Laugardal, ekki seinna en föstudaginn 2. mars n.k. 

Umsókn skal skilað á ensku og skulu fylgja henni tvær passamyndir.


Frekari upplýsingar veitir Örvar Ólafsson verkefnastjóri á skrifstofu ÍSÍ.


Sími 514 4000, orvar@isi.is

Einnig má benda á heimasíður IOA www.ioa-sessions.org/ , og www.ioa.org.gr