Hestamannafélagið Hörður · Mosfellsbær 864 7753 hordur@hordur.is

Skólastyrkir

29. janúar 2012 Hestamannafélagið Hörður Comments Off

Ungmennafélag
Íslands hefur verið í góðu samstarfi við nokkra lýðháskóla í Danmörku í áraraðir.
UMFÍ hefur m.a. styrkt fjölmörg íslensk ungmenni til dvalar í þessum skólum og
gerir enn. Einn af þeim skólum sem UMFÍ er í samstarfi við er lýðháskólinn í
Viborg. Skólinn hefur nú ákveðið að bjóða nokkrum ungmennum skólastyrk á vorönn
sem er frá 19. febrúar – 26. júní 2012 eða í samtals 18 vikur. Heildarkostnaður
vegna námsins ásamt fullu fæði og gistingu er 36.910.- dkr. eða um kr.
800.000,- íslenskar krónur. Styrkurinn nemur hinsvegar kr. 20.910.- dkr. sem er
um 460.000.- íslenskar krónur. Hlutur nemenda í þessar 18 vikur er því 16.000.-
dkr. eða einungis um 350.000.- íslenskar krónur.

Upplýsingar um
skólann má finna á heimasíðu hans www.giv.dk og síðan gefur Ómar Bragi Stefánsson
hjá Ungmennafélagi Íslands frekari upplýsingar til áhugasamra. Netfang Ómars er
omar@umfi.is