Eins og öllum mun kunnugt sem
leigja beitarhólf hjá Herði lýkur beitartímanum venjulega 10. september.
Vegna
kulda og lélegrar sprettu í vor var heimild til að sleppa hrossum frestað um
viku. Í ljósi þess og hins að undir miðsumar brá til betri tíðar og grasspretta
verið mjög góð hefur verið ákveðið að framlengja beitartímann um eina viku.
Við lauslega skoðun beitarhólafanna hefur komið í ljós að ástandið er yfirleitt
mjög gott og því hægt að lengja beitartímann. Komi hinsvegar í ljós að beit sé
uppurin í einhverju hólfanna verður haft samband við viðkomandi leigjanda og
hann beðinn að fjarlægja hrossin.
Sem sagt allir þeir sem ekki er haft samband við mega nýta hólfin einni viku
lengur en reglur segja til um.
Á það skal minnt að við beitarlok fer fram venjubundin úttekt hólfanna og
mikilvægt að þeim sé skilað í viðunandi ástandi. Er öllum velkomið að hafa
samband við undirritaðan eða dýragæslumann Mosfellsbæjar varðandi frekari
upplýsingar um það hvað er viðunandi ástand.
Beitartími framlengdur

Með bestu kveðjum
Valdimar Kristinsson
formaður Beitarnefndar
Nýjustu fréttir
Fréttaflokkar
Fréttasafn