Hestamannafélagið Hörður · Mosfellsbær 864 7753 hordur@hordur.is

Opið fyrir umsóknir í Reiðmanninn!

14. júní 2011 Hestamannafélagið Hörður Comments Off

Fjölmargar
umsóknir hafa borist í Reiðmanninn sem hefst næstkomandi haust, þó þeim
sé misskipt á milli staða sem auglýstir hafa verið, þ.e. Hvammstanga, Hellu og
í nágrenni höfuðborgarsvæðisins.

Þar sem fólk
hefur verði nokkuð upptekið á úrtökumótum og í hrossastússi, höfum við ákveðið
að framlengja umsóknarfrestinn út júní í Reiðmanninn. Umsóknareyðublöð
og allar nánari upplýsingar eru á vefnum www.lbhi.is/namskeid
undir Reiðmaðurinn í vinstri stiku. Endilega vísið áhugafólki og félögum á
þetta, og komið á framfæri þessari seinkunn á umsóknarfresti.

Þeir sem nú þegar
hafa sótt um í Reiðmanninn, mega gera ráð fyrir því að fá svör um inngöngu
fyrir miðjan júlí ef allt gengur eftir.


Af
heimasíðu:

Reiðmaðurinn


Námskeiðsröð fyrir áhugafólk um reiðmennsku




Endurmenntun Landbúnaðarháskóla Íslands, í samvinnu við Landssamband
hestamannafélaga og Félag hrossabænda, opna nú fyrir nýja námshópa í
áfangaskipt tveggja ára nám í reiðmennsku, hrossarækt og almennu hestahaldi.
Námið sem kallast Reiðmaðurinn má taka með vinnu og er hugsað
fyrir áhugafólk eldra en 16 ára sem hefur áhuga á að bæta sína reiðmennsku og
þekkingu á hrossarækt. Verkleg kennsla fer fram ca. eina helgi í mánuði frá
september og fram í apríl. Bóklegt nám er tekið samhlið í gegnum námsvef
skólans.


     Námið er byggt upp sem röð af helgarnámskeiðum þar sem
nemendur koma einu sinni í mánuði með sinn hest og taka fyrir ákveðinn hluta af
reiðmennskunni. Einnig er farið yfir bóklegt efni í fyrirlestrum og með
fjarnámi. Hér er því um sambland af staðarnámi og fjarnámi að ræða þar sem
ætlast er til að nemendur undirbúi sig bæði í verklegum og bóklegum atriðum
heima.


     Námið er metið til samtals 33 ECVET-eininga á
framhaldsskólastigi og lýkur námskeiðsröðinni með sérstakri viðurkenningu frá
Landbúnaðarháskóla Íslands. Námið er unnið í samvinnu við Landssamband
hestamannafélaga og Félag hrossabænda.


     Verkefnisstjóri námsins fyrir hönd Endurmenntunar LbhÍ
er Ásdís Helga Bjarnadóttir, að faglegri uppbyggingu námsins
koma Reynir Aðalsteinsson og Þorvaldur Kristjánsson.

Klikkaðu á línurnar hér
fyrir neðan til að fá nánari upplýsingar!







Nánari lýsing á náminu