Hestamannafélagið Hörður · Mosfellsbær 864 7753 hordur@hordur.is

Sleppingu hrossa seinkað!

8. júní 2011 Hestamannafélagið Hörður Comments Off

Nýlokið er úttekt á beitarhólfum í Mosfellsbæ og var útkoman
afar slæm í heildina. Í flestum stykkjum er mjög lítið gras og því enganveginn
tímabært að sleppa hestum í flest þeirra. Var því afráðið að fresta sleppingu í
hólfin um sinn. Á þessu voru þó góðar undantekningar og verður þeim sem
mega sleppa á föstudag því sendur netpóstur með frekari fyrirmælum. 

Mikilvægt er að farið sé eftir þessum fyrirmælum í
hvívetna og eins bent á að þó sumir fái að sleppa þýðir það ekki að öllum sé
það leyfilegt. Birt verður tilkynning um leið og fært þykir að sleppa hrossum.

Beitarnefnd