Hestamannafélagið Hörður · Mosfellsbær 864 7753 hordur@hordur.is

Umsókn um beitarhólf

11. maí 2011 Hestamannafélagið Hörður Comments Off

Nú er sumarið gengið í garð og kominn tími til að sækja um beitarhólf.

Beitarnefnd mun úthluta hólfum til félagsmanna en eins og venja er þá þurfa þeir sem óska eftir hólfi í gegnum Hörð að sækja um á hverju ári. Umsóknarfrestur er
til og með 15.maí 2011. Sótt er um hér á vefsíðunni (sjá leitarstikuna hér til vinstri).

Þegar félagsmenn hafa fengið úthlutað beitarhólfi hjá
beitarnefnd félagsins er greitt inn á reikning félagsins
í Íslandsbanka Mosfellsbæ 0549-26-003689 kt.650169-4259
til að staðfesta umsókn.

Gjaldið í ár er 8500.- á hest.
Innifalið í gjaldinu er 1 poki af áburði.

Áburður og beitarhólf eru eingöngu afhent þegar búið er að
greiða beitargjald.
Afhending á áburði auglýst síðar.
Félagsmenn þurfa að vera skuldlausir við félagið til að
fá beitarhólf.