Nú er verið að ganga frá
samningi um uppgræðslu og lífræna losun hestataðs á Langahrygg (við Stardal) á
milli Harðar og Mosfellsbæjar, en hugmyndin er sú að við fáum svæðið til umráða
ásamt skóræktinni og förum í samstarf um að græða það upp. Við notum
þannig hrossataðið til að byggja upp jarðveg og skóræktin plantar trjám og
skjólbeltum á svæðinu. Þegar fram líða stundir verður þarna framtíðar
beitarland okkar, reiðleiðir og útivistasvæði Mosfellinga. Þessi áætlun
er metnaðarfull og samræmist reglum Evrópusambandsins um losun á lífrænum
úrgangi og sjálfbærni. Fyrir okkur þýðir þetta fyrst og fremst örugga og
kostnaðarlitla
förgun á taði, en til lengri tíma litið erum við að byggja upp
framtíðar beitarland, auk þess að stuðla að uppgræðslu landsins.
Stefn er að því að undirrita
samninginn með pomp og prakt á næsta þriðjudag, 26.apríl kl. 16.30 fyrir ofan
Seljabrekku, ef veður verður leiðinlegt verður þetta í Kjarnanum. Mér
þætti gaman að sjá sem flest ykkar á staðnum, en þarna er um tímamóta samning
að ræða sem verður vonandi öðrum bæjarfélögum og hestamannafélögum til
eftirbreytni. Fram að þessu hefur stefnan verið sú að senda allt tað til
urðunar í Sorpu sem tekur yfir 20 þúsund fyrir gáminn. Og eins vitlaust
og það nú er, grefur niður hágæða gróðurmold með tilheyrandi kostnaði,
olíunotkun og mengun.
Nýr samningur milli Harðar og Mosfellsbæjar
Sæl verið þið,

Nýjustu fréttir
Fréttaflokkar
Fréttasafn