Hestamannafélagið Hörður · Mosfellsbær 864 7753 hordur@hordur.is

Gæðingadómarafélag LHNýdómara /landsdómaranámskeið í gæðingadómum

22. mars 2011 Hestamannafélagið Hörður Comments Off

Gæðingadómarafélag LH

Ákveðið hefur verið að halda nýdómara og
landsdómaranámskeið  í  Gæðingadómum,ef næg þáttaka fæst,lágmark 14
manns þurfa að skrá sig á námskeiðið.

 Námskeiðið
verður  haldið í Reykjavík  29.apríl næstkomandi og hefst kl 14,00 og
stendur fram á sunnudaginn  1.maí .  Námskeiðinu lýkur með prófi eftir hádegi.

Kennt verður í húsakynnum ÍSÍ og  á svæðum
hestamannafélaganna á
stórhöfuðborgarsvæðinu. Mikilvægt er að skrá sig til leiks ekki seinna
en
miðvikud 20.apríl og staðfesta þáttöku með staðfestingargjaldi kr
25.000.   Verð námskeiðs og gagna er kr 58.000 fyrir
nýdómaranámskeið og kr 38.000 fyrir Landsdómaranámskeið.  Gögn verða
send  til viðkomandi um leið og skráningarfrest líkur.  Nauðsynlegt er 
að fólk sé mjög vel undirbúið þegar námskeið
hefst er þar átt við lög og reglur LH/Gæðingakeppni  og leiðara. 

Flest Hestamannafélög styrkja sitt fólk til
þátttöku og hvetjum við áhugasama til að kynna sér málið og vera í sambandi ef
frekari upplýsinga er óskað .

Skráning á námskeiðið og fyrispurninr skal
senda á gaedingadomarar@gmail.is