Hestamannafélagið Hörður · Mosfellsbær 864 7753 hordur@hordur.is

Stjórnarfundur 8. febrúar 2011

28. febrúar 2011 Hestamannafélagið Hörður Comments Off

 Fundur 3

                                                                                                           Dags.
8. febrúar 2011

                                                                                                           Haldinn
í Harðabóli kl. 17.00.

Mættir: Guðjón
Magnússon formaður, Sigurður Teitsson meðstj., Guðmundur Björgvinsson varam, Ingimundur
Magnússon varam., Gyða Á. Helgadóttir ritari., Sigurður Guðmundsson varam.,
Sigurður Ólafsson meðstj., Guðný Ívarsdóttir gjaldk, Ragnhildur
Traustadóttir varam. og Hörður Bender meðstj.

1.      
Árshátíð

Guðjón var búinn
að fá tilboð frá Vigni í Hlégarði að halda árshátíð. Ákveðið að gangast við
tilboði með ákveðnum skilyrðum.  Verð á
bjór og léttvínu sé tilgreint fyrirfram, valið verði að hafa hljómsveit (alls
ekki diskó). Miðaverð skv. tilboði er kr. 7.000.- Hestamannafélagið greiði
fyrir boðsmiða en ákveðið að hafa happdrætti til að fjármagna boðsmiðana. Siggi
T og Einar sjá um að útvega happdrætti. Ragnhildur sér um að láta prenta miðana
fyrir það en miðarnir á árshátíðina eru kostaðir af Vigni þ.e. inn í miðaverði.
Þeir sem sjá um miðasölu eru Sigurður Ó. og Hörður B. Guðmundur Bj.  verður einnig með þá til sölu í reiðhöllinni.
Þeir sem sjá um annálinn eru Siggi Straumur og Eysteinn en ef það bregst þá
ætlar kvennadeild að taka það að sér.

2.      
Stofunun nýrra nefnda

Stofnaðar hafa
verið nýjar deildir hjá félaginu:

  • Firmakeppnisnefnd
    – í nefndinn eru: Eysteinn Leifsson og Reynir Pálma og Ragnhildur
  • Vallarnefnd
    – í nefndinni eru: Sigurður Ólafss. Gunnar Valsson og Gylfi Freyr
  • Skólamálanefnd
    – í nefndini eru: Guðjón M og Súsanna Ólafsd.

Gyða sér um að
setja nefndirnar á vefinn.

3.      
Staðakennslumála hjá framhaldsskóla
Mosfellsbæjar

Leyfi er komið
frá ráðuneyti og verið er að útbúa námsskrá. Námið hefst að hluta nk. haust með
því að byrja á að setja hestahlutann í valfög og tengja knapamerkin við námið
sbr. Fjölbrautarskólann á Selfossi. Haustið 2012 er svo stefnt að því að hefja námið
að fullu en námið verður keyrt eins og dagskrá frá Hólum var áður en sá skóli
varð háskóli. Þá útskrifast nemendur með leiðbeinandaréttindi.

4.      
Hestadagar

Guðjón kynnir
dagskránna á hestadögunum sem verða 26 mars til 2. Apríl. Sjá vefsíðu daganna www.hestadagar.is eða http://icelandichorsefestival.is/

5.      
Stækkun félagsheimilis

Sigurður T. Mun
stofna bankareikning fyrir söfnun um stækkun félagsheimilis. Ákveðið að reyna
að gera sökklana í sumar.

6.      
Landsmót

Nú líður að
landsmóti í Skagafirði í sumar og það þarf að fara að huga að því að panta
stæði fyrir Hörð. Einnig þarf að fara yfir félagsbúningamálin.

7.      
Karlremba ársins

Áður fyrr
tíðkaðist að velja árlega karlrembu ársins í Herði. Fyrir 10 árum datt þetta
upp fyrir ne þá var valinn Össi grái. Enginn hefur fengið þessa nafnbót
síðan.  Ákveðið að taka þetta aftur upp
og veita verðlaunin á árshátíðinni. Hugmynd að kjósa á netinu. Tillögur að
karlrembum fyrir árið 2011:

Haddi kokkur

Halli

Gunni Vals

Árni Ingvarss

Stefán Gímis

Siggi Guðm

Einnig má senda
tillögur

 

Gyða sér um að
setja þetta á vefinn, setja upp kosningu. Birta á vefnum og á facebooksíðunni.

8.      
Önnur mál

Rætt um hvort félagið
ætti að hafa ístöltkeppni á tjörninni hans Bjarna í leirvogstungu en tjörnin
var gerð meðal annars m.t.t. að það væri hægt. Sigurður ó. sér um það.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl.19.00

Fundargerð
ritaði: Gyða Árný Helgadóttir