Hestamannafélagið Hörður · Mosfellsbær 864 7753 hordur@hordur.is

Sölubásar á Hestadögum í Reykjavík

22. febrúar 2011 Hestamannafélagið Hörður Comments Off

Vikuna 26. mars til 2.apríl verða haldnir Hestadagar í
Reykjavík

Laugardagurinn
2 .apríl er einn af stærstu dögunum á hátíðinni, þar sem frítt verður inn í
Fjölskyldu og Húsdýragarðinn.  Þar verður mikið um að vera allan daginn
með fjölbreyttri dagskrá fyrir alla fjölskylduna.  

Búist er við miklum
fjölda í Laugardalinn þennan dag.  Hestaþorp verður staðsett í miðjum
garðinum þar sem handverksfólki og öðrum afþreyingarfyrirtækjum stendur til
boða að vera með kynningar og sölubása.  Sölubásarnir sem verða á staðnum
eru húsin (jólaþorpið) sem er í eigu Hafnafjarðarbæjar. Athugið að aðeins er um
einn dag að ræða frá kl 10-17.  Þorpið
verður sett upp föstudaginn 1.apríl

Verð fyrir
daginn/plássið er kr 7.500,-

Áhugasamir hafið
samband við Ingibjörgu sem gefur allar nánari upplýsingar um Hestaþorpið á straumver@gmail.com  

 

Kveðja

Undirbúningsnefnd
Hestaþorpsins