Dagana 28.mars – 2.apríl munu
hestamannafélögin á höfuðborgarsvæðinu í samstarfi við Icelandair Group og
Reykjavíkurborg standa fyrir glæsilegri vikulangri dagskrá þar sem íslenski
hesturinn verður í aðalhlutverki.
Hestamannafélögin Andvari, Gustur, Hörður,
Fákur, Sörli, Sóti og Máni hafa skipulagt fjölbreytta dagskrá þar sem allir
landsmenn ættu að finna eitthvað við sitt hæfi.
Til að mynda verður boðið uppá kynbótaferð til
Vesturlands þar sem Landbúnaðarháskólinn á Hvanneyri verður heimsóttur og boðið
uppá kynbótadómara fyrirlestur, kynbótaferð til Suðurlands þar sem
hrossaræktarbú undanfarinna ára verða heimsótt auk þess sem boðið verður upp á
hestasýningu í Ölfusinu, Bíó Paradís mun bjóða upp á kvikmyndasýningar um
íslenska hestinn, hestaleigurnar Íshestar, Laxness og Íslenski hesturinn verða
með kynningar, hestasýningar í reiðhöllinni í Víðidal,
glæsileg hestasölusýning og margt fleira.
Laugardaginn 2.apríl ættu hestamenn að taka
sérstaklega frá því þá verður mikið um dýrðir. Dagskráin hefst með skrúðgöngu
hestamannafélaganna upp Laugaveginn og sem leið liggur í Fjölskyldu- og
Húsdýragarðinn í Laugardal. Þar verður sett upp „Hestaþorp" með fjölbreyttri
dagskrá, gangtegundasýning, járningasýning, hestateymingar, ýmislegt handverk
verður boðið til sölu og margt fleira. Lokapunktur hátíðarinnar verður ístöltið
„Þeir allra sterkustu" sem fer fram í
Skautahöllinni í Reykjavík laugardagskvöldið 2.apríl. Þar munu margir af
sterkustu knöpum og hestum mæta til leiks.
Í tengslum við hátíðina hefur
hestamannafélagið Hörður ákveðið að halda Kvennatöltmót til styrktar Líf, sem
er styrktarfélag Kvennadeildar Landspítalans. Mótið fer fram sunnudaginn
27.mars í reiðhöll Harðar og verður nánar auglýst síðar.
Spennandi hestadagar framundan

Nýjustu fréttir
Fréttaflokkar
Fréttasafn