Hestamannafélagið Hörður · Mosfellsbær 864 7753 hordur@hordur.is

Bleikt Töltmót – Bara fyrir konur

11. febrúar 2011 Hestamannafélagið Hörður Comments Off

Bleikt töltmót FáksÁ konudaginn, þann 20. febrúar kl. 14, verður haldið Bleikt Töltmót í Reiðhöllinni í Víðidal.

Mótið er einungis ætlað konum, 17 ára og eldri, en keppt verður í fjórum flokkum byrjanda, minna vanar, meira vanar og opnum flokki.Skráningagjöld eru í formi frjálsra framlaga sem munu renna óskert til Krabbameinsfélags Íslands til styrktar rannsóknum á brjóstakrabbameini.Skráningu skal senda á netfangið ddan@internet.is þar sem koma þarf fram IS númer hests, keppnisflokkur, kennitala knapa og upp á hvor hönd riðið er. Einnig er tekið á móti skráningum hjá Drífu og Laufey í símum 893-3559 og 660-1750.

Síðasti dagur skráningar er 16. febrúar.

Bleika slaufan er alþjóðlegt tákn í baráttunni gegn brjóstakrabbameini. Hvatt er til þess að knapar og áhorfendur klæðist bleiku í tilefni dagsins og sýni þannig samstöðu.