Hestamannafélagið Hörður · Mosfellsbær 864 7753 hordur@hordur.is

Reiðnámskeið fyrir börn og ungmenni með fötlun

28. janúar 2011 Hestamannafélagið Hörður Comments Off


Fyrir hverja er námskeiðið:


Öll börn og ungmenni sem eiga við einhvers konar fötlun eða skerta getu að stríða vegna sjúkdóma eða af öðrum ástæðum og sem hafa áhuga á að umgangast hesta eða vilja kynnast hestamennsku.





Markmið námskeiðsins:


  • Eiga frábæra stund saman í skemmtilegur
    umhverfi
  • Geti umgengist hesta af öryggi og
    óttaleysi
  • Að kynnast hestinum og læra
    undirstöðuatriði í umhirðu hestsins.
  • Lært undirstöðuatriði í reiðmennsku eftir
    getu hvers og eins
  • Auka sjálfstæði og færni í samskiptum við
    hesta
  • Að bæta líkamsvitund
  • Að auka samhæfingu handa, fóta og
    skynfæra.
  • Styrkja leiðtogahlutverk í samskiptum við
    hestinn.

Lagt er áhersla á fjölbreytni og að allir nemendur fái sem mest út úr námskeiðinu eftir þörfum hvers og eins.



Kennslan er í höndum reyndra leiðbeinanda með margra ára reynslu í reiðkennslu fatlaðra, sjúkraþjálfari verður til taks sem og aðrir aðstoðarmenn eftir þörfum.





Það sem er innifalið í námskeiðsgjaldi:



  • Öll kennsla og kennslugögn

  • Lagðir eru til hestar fyrir hvern og einn sem og allur útbúnaður til reiðar þar á meðal sérsmíðaðir hnakkar og annar útbúnaður eftir þörfum.

  • Allir þátttakendur fá viðurkenningarskjal í lok námskeiðs.





Námskeiðsgjald er 18.000 kr.

 

Námskeið 1 : 19. september – 17. október


Mánudagar kl. 14:45 – 15:45. 5 skipti í senn


19. sept, 26. sept, 3.okt, 10.okt, 17.okt.

Skrá sig á þetta námskeið


 

Námskeið 2 : 23. september – 21. október


Föstudagar kl. 14:45 15:45. 5 skipti í senn


23.sept,30.sept,7.okt,14.okt,21.okt. 

Skrá sig á þetta námskeið

 


Námskeið 3 : 24.október – 21. nóvember

Mánudagar kl. 14:45 – 15:45 . 5 skipti í senn


24.okt,31.okt,7.nóv,14.nóv,21.nóv

Skrá sig á þetta námskeið

 

Námskeið 4 : 28.október – 25.nóvember

Föstudagar kl. 14:45 – 15:45. 5 skipti í senn


28.okt,4.nóv,11.nóv,18.nóv,25.nóv.

Skrá sig á þetta námskeið

Frekari upplýsingar og
skráning er hjá Auði G.
Sigurðardóttur

 

s: 8997299/8986017

 

Netfang:
audurs@gmail.com 

 


Umsjónarmaður námskeiðsins er Súsanna Ólafsdóttir, reiðkennari.