Hestamannafélagið Hörður · Mosfellsbær 864 7753 hordur@hordur.is

Aðalfundur 2010

14. desember 2010 Hestamannafélagið Hörður Comments Off

logo_hordur

 

 

 

Hestamannafélagið
Hörður


Aðalfundur 2010

Dags.
25. nóvember 2010
Haldinn
í Harðabóli kl. 20.00

Mættir 52 manns,
þar með talið aðalstjórn. Mættir frá aðal- og varastjórn: Guðjón Magnússon
formaður, Guðmundur Björgvinsson varaformaður, Sigurður Teitsson meðstj.,
Ingimundur Magnússon meðstj., Gyða Á. Helgadóttir meðstj., Sigurður Guðmundsson
varam., Sigurður Ólafsson varam.,

Fjarverandi frá aðal-
og varastjórn: Guðný Ívarsdóttir gjaldk, Ragnhildur Traustadóttir meðstj. og
Þórir Örn Grétarsson varam.

Dagskrá skv.5. grein laga Hestamannafélagsins
Harðar:

1)     
Formaður
setur fund og tilnefnir fundarstjóra og fundarritara.

2)     
Formaður
flytur skýrslu stjórnar.

3)     
Gjaldkeri
skýrir reikninga félagsins og
kynnir 9 mán. milliuppgjör.

4)     
Umræður
um skýrslu stjórnar og reikninga félagsins.

5)     
Reikningar
bornir undir atkvæði.

6)     
Fjárhagsáætlun
næsta árs og umræður.

7)     
Árgjald
ákveðið.

8)     
Lagabreytingar.

9)     
Kosningar
samkvæmt 6. grein.

10)  
Önnur
mál.

11)  
Fundarslit.

1. Formaður setur fund og tilnefnir fundarstjóra
og fundarritara

Formaður setur
fund og stingur upp á Marteini Magnússyni sem fundarstjóra og Gyðu Árnýju
Helgadóttur sem fundarritara sem er samþykkt af fundarmönnum.

Fundarstjóri þakkar
traustið og athugar hvort löglega hafi verið boðað til fundarins sbr. 5. grein
laga um aðalfund. Engin mótmæli komu fram og telst fundurinn því löglegur.

2. Formaður flytur skýrslu stjórnar

Fundarstjóri
kynnir Guðjón formann sem flytur skýrslu stjórnar:

Haldnir voru 9
formlegir stjórnarfundir á starfsárinu og funduðu nefndir reglulega um sín
málefni.  Heimasíðan var notuð fyrir
upplýsingaflæði til félagsmanna og upplýsingataflan  er einnig mikið notuð. Við bættum svo
við  Fréttabréfi Harðar sem birtist reglulega
í Mosfellingi en það samstarf hefur tekist vel.

Liðið ár hefur að
mestu verið spennandi og gott ár fyrir okkur sem starfað hafa fyrir félagið og
fjáröflun hefur gengið vonum framar þrátt fyrir kreppu og almennan samdrátt.

Það var þó ekki
allt gott við árið,  Það kom upp hósti
sem herjaði  á alla hesta félagsmanna í
vor og setti hestamennskuna í landinu í uppnám.,  Þetta sýnir okkur enn og aftur að það er brýn
nauðsyn  að til sé aðgerðarplan sem fer í
gang þegar vart verður við sýkingar.  Mér
skilst á veirufræðingi að af öllum þeim hestapestum sem til eru erlendis og
erlendir hestar eru í flestum tilfellum bólusettir fyrir, þá sé paddan sem kom
til okkar í vor ein sú skásta.

Bruni varð í
hesthúsahverfinu, annar stórbruninn á 10 ára tímabili, og brunnu tvö hesthús
til grunna og annað skemmdist mjög mikið. 
Við ákváðum strax að veita aðstoð með þeim hætti sem við gætum, bæði
vegna þess að við finnum öll til samkenndar þegar svona kemur upp á, en auk
þess er það hagur félagsins að uppbyggingin gangi fljótt og vel fyrir sig.  Það voru þó strax lagðar skýrar línur
varðandi aðstoðina þar sem húsin eru í einkaeign og því ekki verjandi að nota
fjármuni félagsins sem slíks í verkefnið.

Félagsmenn Harðar
standa saman gegnum súrt og sætt og hefur félagslífið frekar blómstrað í
kreppunni en hitt.  Félagar hafa tekið
rösklega til hendinni í ár, 
kvennadeildin og Makkerinn sjá um alla matseld í Harðarbóli,
æskulýðsnefndin hefur stýrt glæsilegu barna og unglingastarfi í vetur í nýju
reiðhöllinni, fræðslunefndin hefur skipulagt metnaðarfullt fræðslu og
kennslustarf, reiðveganefndin vinnur hörðum höndum að bættum reiðvegum,
árshátíðarnefndin hélt frábæra árshátíð 
og svo mætti lengi telja.  Ég vil
enn og aftur þakka ykkur öllum fyrir þann áhuga og þann tíma sem þið gefið
félaginu okkar, án þess væri ekkert félag.

Þau praktísku
verkefni sem eru framundan eru þessi helst:

  1. Reiðleiðir
    fjær hesthúsahverfinu
  2. Val á
    stað fyrir nýtt hesthúsahverfi sem verður byggt þegar þetta verður fullbyggt.
  3. Förgun
    eða losun á skít frá hesthúsunum, önnur lausn en Sorpulausnin sem kostar tugir
    þúsunda í hvert skipti sem losað er.
  4. Og
    svo auðvitað áframhaldandi rekstur félagsins okkar, æskulýðsstarf, mótahald,
    kennsla, ferðir, beitarmál o.fl. o.fl.

Afreksmannasjóður
Harðar og Mosfellsbæjar

Afreksmannasjóður
Harðar og Mosfellsbæjar er til þess ætlaður að styrkja einstaklinga sem skara
fram úr í íþróttinni, þjálfara til námsferða o.þ.h.  Allir Harðarfélagar geta sótt um styrk úr
sjóðnum.  Stjórn sjóðsins skipa fulltrúi
Mosfellsbæjar, sem í dag er Sigurður íþróttafulltrúi Mosfellsbæjar, formaður
Harðar og einn kosinn á aðalfundi. Síðastliðið ár var gjaldkeri félagsins Guðný
Ívarsdóttir kosinn í stjórn sjóðsins.

Sjóðurinn Styrkti
Arnar Loga Lúthersson í ár og notaði hann styrkinn til að létta sér að komast á
Norðurlandameistaramótið.

 

Skógarhólar

Skógarhólar
standa okkur Harðarmönnum nær en flestum öðrum hestamannafélögum. Staða
Skógarhóla í dag er sú að LH er búið að 
stofna einkahlutafélag Skógarhólar ehf, 
sem sinna mun málum Skógarhóla og sit ég í stjórn þess félags.  Félagið er nú að skoða framtíðarmynd
Skógarhóla með Þingvallanefnd og er samstaða um það með nefndinni að staðurinn
verði áfram þjónustusvæði fyrir hestamenn.

Fastir liðir

Fastir liðir eins
og reið til nágranna í nærliggjandi sveitarfélögum voru á sínum stað auk þess
sem við tókum vel á móti félögum okkar þegar þeir komu í heimsókn til
okkar.  Það var ánægjulegt að sjá hversu
stóran hóp Lilla leiddi í þessar félagsreiðir í vor, þrátt fyrir hóstapest.

Gott samstarf
hefur verið við bæjaryfirvöld Mosfellsbæjar og gildir þá einu hvort um stjórn-
eða stjórnarandstöðu var að ræða, en við teljum okkur vera að merkja að aukinn
skilningur er á íþróttinni á meðal bæjarfulltrúa frá ári til árs.  Bent hefur verið á að Mosfellsbær hefur
algjöra sérstöðu hvað varðar hlutfall bæjarbúa sem eru í hestamennsku, en það
lætur nærri að um 8 % bæjarbúa séu í hestamannafélaginu, að auki telur LH að
2-3 til viðbótar stundi hestamennsku án þess að vera formlega skráð í félag,
svo iðkendur hestamennsku í Mosfellsbæ gætu numið yfir 20 % af íbúafjöldanum

5 starfsmenn á
vegum bæjarins

Við fengum 5
starfsmenn frá bænum til að vinna hér á Harðarsvæðinu í sumar.  Þeir starfskraftar nýttust vel, máluðu
Harðarból að utan og báru á tréverkið í reiðhöllinni.

Nýtt hesthúsahverfi
í Mosfellsbæ

Eins og áður
hefur komið fram er unnið að því hjá bæjarskipulaginu að finna nýju
hesthúsahverfi staðsetningu, það mál er í ferli, en engin ákvörðun hefur enn
verið tekin.

60 ára afmæli
Harðar í ár og afmælishátíð

Í ár var 60 ára
afmæli Harðar og var árshátíðin með sérstöku sniði í tilefni að því.  Við buðum og heiðruðum sérstaklega þá
stofnendur félagsins sem enn eru á lífi. 
Við héldum árshátíðina ekki í Hlégarði að þessu sinni, enda virðist
ómögulegt halda hana þar án þess að borga 2 til 300 þúsund með henni á hverju
ári.  Árshátíð var haldin í leiguhúsnæði,
öll skemmtiatriði voru frá félagsmönnum sjálfum, enda nóg af skemmtilegu fólki
í Herði og  skilaði árshátíðin 200 þúsund
kr. hagnaði að þessu sinni sem er að sjálfsögðu frábært.  Hætt var að selja miða þegar 200 miðar höfðu
verið seldir, enda leifði húsrúm ekki meira.

Saga Harðar
skrifuð

Helgi Sigurðsson
dýralæknir hefur tekið að sér ásamt fleiri mætum mönnum að skrifa sögu
félagsins.  Þeir vinna að gagnasöfnun í
sjálfboðavinnu, en þegar og ef við ákveðum að gefa söguna út í bókaformi þarf
að sjálfsögðu að fjármagna það, en það verður gert með frjálsum framlögum og
sölutekjum bókarinnar.

Íþróttamaður
Mosfellsbæjar

Linda Rún kjörin
íþróttamaður Mosfellsbæjar, en það er annar íþróttamaður Mosfellsbæjar sem
Hörður á, á þriggja ára tímabili.

Hestabraut í
framhaldsskólann

Við höfum verið
að vinna að því í samstarfi við skólastjóra framhaldsskólans að koma á
hestabraut við skólann. 
Menntamálaráðuneytið hefur þegar gefið grænt ljós á áframhaldandi
undirbúning og er stefnt að því að kennsla hefjist á brautinni næsta
haust.  Verið er að undirbúa námsskrá sem
miðar að stúdentsprófi frá brautinni með framhaldsnám við háskólann að Hólum í
huga.

Stækkun
Harðarbóls, álit fundarins, teikningar til sýnis

Með auknu
félagafjölda hefur hugur okkar leitað að því hvort ekki væri kominn tími til að
stækka Harðarból.  Það hefur sýnt sig að
við eigum handlagið fólk sem er tilbúið að koma að praktískum verkefnum fyrir
félagið og vinna helgi og helgi.  Rósa
sem heldur utan um útleiguna telur, eins og við, að salur af þessari stærð, sem
tekur 120 til 180 manns í sæti verði góð útleigustærð hér í Mosfellsbænum auk
þess að þá væri hægt að halda árshátíð félagsins hér í húsnæðinu.  Við erum ekki að leggja til að steypa
félaginu í skuldir vegna þessa frekar en vegna reiðhallarinnar, en byrja að
mjaka þessu áfram með sjálfstæðri fjármögnun, fjárframlögum og styrkjum. Taka
sökkla fyrst, en þá strax er komin stór stétt hér fyrir utan sem hægt er að
tjalda yfir ef vill.  Gera síðan fokhelt.
Klára svo að innan og að lokum opna hér vegginn á milli.  Nú þegar hefur verið gerð tillaga að
viðbyggingunni, en það er teiknistofan Arkform sem hana gerði og gaf félaginu.
Það væri gaman að heyra álit ykkar fundarmanna á þessu í almennum umræðum á
eftir, teikningar hanga hér uppi á vegg.

Nýja
frárennslið frá hverfinu

Nýja frárennslið
frá hverfinu hefur ekki verið að anna því sem það á að anna, en nú hefur verið
skipt um dælu og bætt við brunni.  Það
dugar þó ekki til þar sem hluti hestamanna virðist líta á niðurfallið sem
sorprennu og troða baggaböndum og plasti í það, auk þess að moka skít úr
stíunum í niðurfallið.  Ég veit að það er
enginn sem hér er staddur sem gerir þetta, en gott væri að þið létuð það ganga
til félaga okkar sem ekki eru hér að svona gerir maður ekki.  Birgir Hólm mun fara yfir þessi mál hér á
eftir og útskýra hvernig kerfið vinnur og af hverju það er jafn viðkvæmt og
raun ber vitni.

Ný
reiðhallarnefnd

Ný reiðhallarnefnd
hefur tekið við rekstri reiðhallarinnar, en nefndina skipa allir menn í
aðalstjórn og varastjórn.  Fjárhagur
reiðhallarinnar er sjálfstæður og er ekki blandað við félagsreksturinn þannig
að myndin af rekstri hvors um sig er gegnsær. 
Þegar ákveðið var að fara í byggingu reiðhallarinnar var gert munnlegt
samkomulag við þáverandi bæjarstjóra um það að þegar byggingin væri fullbyggð
flyttist leigusamningur bæjarins við litlu reiðhöllina yfir á þá nýju og yrði
hækkaður um helming, eða 3 millj. þar sem um mun stærra hús væri að ræða.  Þegar við gengum hins vegar eftir þessu við
bæjarstjórnina varð róðurinn þungur, enda niðurskurðarhnífurinn á lofti og menn
síst af öllu að sækjast eftir nýjum gjaldaliðum.  Við höfum hins vegar gert bæjarstjóra ljóst
að reiðhöllin mun ekki reka sig án þessara leigutekna og lagt inn formlega
umsókn um breyttan leigusamning, sú umsókn er nú í ferli.

Notkun
reiðhallarinnar verður að mestu leiti á vegum æskulýðsnefndar, fræðslunefndar
og nýstofnaðrar fræðslunefndar fatlaðra, 
en félagar geta keypt sér rafrænan lykil og notað höllina þegar ekki eru
þar formleg námskeið. Vellinum verður tvískipt, þannig að reiðkennsla getur
verið í einum endanum og almennir félagsmenn við æfingar í hinum. Það verður
bannað að fara inn í reiðhöllina með hest án slíks lykils.  Sjálfvirkt eftirlitskerfi heldur svo skrá
yfir það hverjir eru í reiðhöllinni hverju sinni.  Rafrænn lykill mun áfram kosta 4.000.- kr.
fyrir fullorðna, yfir 22 ára, og 2.000.- kr. fyrir ungmenni undir 22. ára
aldri.

Það var frá upphafi
markmið okkar og draumur að þjálfun fatlaðra ætti góða aðstöðu í reiðhöllinni
og er allt fyrirkomulag hér miðað við að svo verði.  Stórar innkeyrsludyr og ríflegt framsvæði hér
framan við reiðvöllinn gefa færi á að keyra inn bíla með fatlaða einstaklinga
og sérstakri lyftu og öðrum búnaði verður komið hér fyrir til að auðvelda
praktísku hlutina.  Það er mér sérstök
ánægja að tilkynna hér að við erum búin að stofna fræðslunefnd fatlaðra hér í
Herði, en þeirri nefnd er ætlað að halda utan um þennan fræðsluþátt.

Byggingu
reiðhallarinnar hefur verið haldið utan við rekstrarliði félagsins svo þær
stóru tölur skekki ekki samhengið í almennum rekstri félagsins, en
efnahagsreikningur félagsins hefur bólgnað út úr rúmlega 30 milljónum árið 2007
í yfir tvö hundruð milljónir í dag, en það gerir Hörð að einu best stæða
íþróttafélagi landsins.

Tap af
reglulegum rekstri árið 2009

Eins og ég hef
áður sagt er það ekki markmið okkar að skila miklum hagnaði, þeim fjármunum sem
við öflum á að beina út í félagsstarfið þar sem þeir gera gagn.  Undanfarin ár höfum við skilað 200 til 300
þús.kr. hagnaði, alltaf verið réttu megin við núllið.  Árið 2009 varð þó 700 þús. kr. tap af rekstri
félagsins, en það skýrist að mestu af árferðinu rétt eftir hrunið. Tap varð af
Íslandsmóti barna og unglinga sem við héldum um mitt árið, en skráningar voru
mun færri en árin áður auk þess að matarholurnar sem við sækjum styrki í
þornuðu upp að hluta.  Það að velta
félagsins hafi aðeins lækkað um eina milljón frá 2008 gengur kraftaverki næst,
en það ber fyrst og fremst að þakka fjáröflunarnefndinni með Sigurð Teitsson í
fararbroddi, þau hafa unnið frábært starf á erfiðum tímum. Við brugðumst við
hruninu með sparnaði og gátum haldið kostnaði við mótið undir áætlun, en
tekjurnar voru um einni og hálfri milljón minni en áætlað var.  Það má þó ekki gleyma því að Íslandsmótið
skildi eftir sig margt gott, það þótti einstaklega vel heppnað, félagsandinn
styrktist, allir vellirnir okkar eru nýuppteknir og eldunartækjum var bætt við
í eldhúsið hér í Harðarbóli.   Árshátíð
félagsins sem haldin var í Hlégarði árið 2009 var með 300 þús.kr.tapi, en því
var snúið í 200 þús.kr. hagnað í ár. 
Einnig var tvöfaldur reikningur frá endurskoðendum þar sem tveir
reikningar voru bókfærðir árið 2009 upp á rúmlega 600 þús.  Í dag er bókhaldið fært í sjálfboðavinnu, en
löggiltur endurskoðandi fer yfir það og áritar auk skipaðra skoðunarmanna
félagsins.

Árið 2010 var
sérstakt, rekstrarlega, þar sem hestapestin setti strik í reikninginn og varð
að aflýsa fjölda móta og kennslutíma vegna hennar.  Það varð til þess að veltan af reglulegum
rekstri félagsins, þegar ekki er litið til rekstrar reiðhallarinnar, minkaði úr
um 14 millj. í tæpar 10 millj eins og sést á 10 mánaða uppgjöri fyrir árið
2010. Það varð hins vegar um tveggja milljón króna hagnaður á þessu tímabili
þrátt fyrir þennan samdrátt sem gerir meira en að greiða upp tapið af árinu
2009, þannig að ef árin 2009 og 2010 eru lögð saman er rúmlega hálf milljón í
tekjuafgang af hverju ári, sem er eins og við viljum hafa það.

Rekstur
reiðhallarinnar gekk vel og sýnir að allar áætlanir þar standast, en veltan þar
er tæpar 5 milljónir og var tekjuafgangur upp á um 200 þúsund.  Þetta verður þó að skoðast í því ljósi að enn
höfum við ekki ráðið starfsmann í fullt starf við reiðhöllina, heldur er
starfsemin rekin að mestu á sjálfboðaliðastarfi sem gengur ekki til
lengdar.  Það vantar því hækkaðar
leigutekjur bæjarins svo dæmið gangi upp.

Sigurður
Guðmundsson fer betur yfir fjármálin hér á eftir.

Ég þakka svo
öllum þeim sem hafa starfað fyrir félagið síðastliðið ár fyrir samstarfið,  það hefur verið virkilega gefandi og
skemmtilegt að vinna með ykkur öllum að þeim verðugu verkefnum sem hér eru
unnin.

Guðjón Magnússon,
formaður

Engar
athugasemdir bárust frá fundarmönnum um viðbyggingu Harðarbóls sbr. ræðu
formanns.

 3. 4.
og 6 Skýringar á reikningum félagsins, árshlutauppgjöri og áætlun næsta ár

Fundarstjóri
þakkar Guðjóni fyrir skýrsluna og kynnir næsta dagskrálið, skýring reikninga
félagsins og kynnina á 9. mánaða uppgjör. Sigurður Guðmundsson er kynntur þar
sem Guðný Ívarsdóttir gjaldkeri er fjarverandi.

Sigurður tekur
til máls. Löggiltur endurskoðandi, Þórhallur Björnsson, yfirfór og áritaði
ársreikning. Einnig hafi kjörnu endurskoðendurnir Birgir Hólm og Leifur Kr.
Jóhannesson yfirfarið og áritað reikningana. Áritanir eru án athugasemda.

Sigurður skýrir
út ársreikninga félagsins sem liggja frammi og gefur mjög greinagóðar
upplýsingar.  Einnig kynnir hann
árshlutauppgjör út október 2010 sem og áætlun fyrir árið 2011.

5. Umræður um skýrslu stjórnar og reikninga
félagsins.

Fundarstjóri
þakkar Sigurði fyrir greinagóðar útskýringar og röggsemina að kynna áætlun
næsta ár og afgreiða þá dagskrálið 6. Fundarstjóri óskar eftir athugasemdum frá
fundarmönnum um ársreikninga.  Engar
athugasemdir lagðar fram og því ber hann upp reikninginn til samþykktar og er
hann samþykktur samhljóða með handaruppréttingu.

7. Árgjald ákveðið

Ekki eru gerðar
tillögur að breyttri gjaldskrá fyrir árgjaldið. Árgjaldið er:


  • 12 og
    yngri félagsgjald kr. 0.- (frítt)

  • 13-20
    félagsgjald kr. 2.000

  • 21-70
    félagsgjald kr. 7.500

Þetta er
samþykkt.

8. Lagabreytingar

Engar
lagabreytingar voru lagðar fram fyrir aðalfund og því farið beint í dagskrárlið
9.

9. Kosningar skv. 6. grein laga félagsins

Formaður
félagsins  Guðjón Magnússon gefur kost á
sér til setu þriðja árið í röð og því er það síðasta árið sem hann má sitja
skv. 6. grein laganna. Enginn annar gefur kost á sér og gengur fundarstjóri til
atkvæðagreiðslu. Formaður er endurkjörin með lófaklappi.

Þrír meðlimir
aðalstjórnar voru kosnir á síðasta aðalfundi í desember 2009 til tveggja ára.
Það eru: Guðný Ívarsdóttir, Gyða Á. Helgadóttir og Sigurður Teitsson.

Því þarf að kjósa
þrjá í aðalstjórn og þrjá í varastjórn. Þórir Örn Grétarsson gefur ekki kost á
sér áfram.

Tillaga að
stjórn:

Guðjón Magnússon
formaður

Aðalstjórn: Guðný
Ívarsdóttir, Gyða Árný Helgadóttir, Sigurður Teitsson, Hörður Bender, Sigurður
Guðmundsson, Sigurður Ólafsson

Varastjórn:
Guðmundur Björgvinsson, Ingimundur Magnússon, Ragnhildur Traustadóttir

Skoðunamenn
reikninga: Leifur Kr. Jóhannesson og Birgir Hólm

Fulltrúar á þing
UMSK: Auk formanns félagsins sem er sjálfkjörin er tillaga að formaður
æskulýðsnefndar muni sitja þingið fh. Hestamannafélagsins Harðar.

Afreksmannasjóður:
Auk formanns félagsins sem er sjálfkjörin er tillaga að gjalkeri félagsins
sitji í nefnd um afreksmannasjóð.

Eftir
kosningar lá eftirfarandi fyrir:

Samþykkt Guðjón
Magnússon formaður

Samþykkt í
aðalstjórn: Guðný Ívarsdóttir, Gyða Árný Helgadóttir, Sigurður Teitsson, Hörður
Bender, Sigurður Guðmundsson, Sigurður Ólafsson

Samþykkt  í varastjórn: Guðmundur Björgvinsson,
Ingimundur Magnússon, Ragnhildur Traustadóttir

Samþykktir
skoðunamenn reikninga: Leifur Kr. Jóhannesson og Birgir Hólm

Samþykkt sem
aðilar á þing UMSK: formaður félagsins (sjálfkjörin) og formaður
æskulýðsnefndar.

Samþykkt í stjórn
afreksmannasjóð: formaður félagsins(sjálfkjörin) og gjaldkeri félagsins

10. Önnur mál

Eftir stutt
kaffihlé var fundinum haldið áfram.

1.  Birgir
Hólm úr stjórn hesthúseigendafélagsins óskar eftir að taka til máls.

Birgir lýsir
frárennslismálum í hesthúsahverfinu og því vandamáli sem hefur komið upp í
austasta hluta neðra hverfisins. Neðst í neðra hverfinu er brunndæla sem hefur
það hlutverk að taka við frárennsli frá hverfinu og dæla því upp í
hreinsunarstöðina fyrir ofan og vesta hverfið. Þessi brunndæla hefur oft
stöðvast vegna stíflu og hafa starfsmenn bæjarins fundið m.a. baggabönd og
rúlluplast í niðurföllum. Hann áréttar að bannað sé að setja slíkt í
niðurföllin og biður fólk að vera meðvituð um hvað sett sé í þau. Ef frárennsli
stíflast þá getur skapast hætta í
neðra hverfinu því heitt vatn getur
flætt upp úr niðurföllum í neðra hverfinu sem getur haft skaðleg áhrif á hesta
í þeim húsum sem og á húsin sjálf. Bærinn hefur talað um að mögulegt sé að
setja aukabrunn sem fyrirferðamikill úrgangur getur farið í en ef vandamálið
heldur áfram þá getur það orðið til þess að auka gjöld verði álögð vegna þessa.

Umræður:

Margrét óskar
eftir að fá bækling / upplýsingar til hestamanna.

Eysteinn leggur
til að orðsending verði sett inn á vefsíðu félagsins.

2.  Hreinn
Helgason óskar eftir að taka til máls.

Hreinn segir frá
því að ritnefnd ásamt Guðmundi á Reykjum og Helga dýralækni auglýsi eftir
fundargerðabók síðan fyrir 20-30 árum. 
Það fréttist af henni hjá einstakling en sá maður segist ekki hafa hana
undir höndum. Það er búið að leita vel á loftinu í félagsheimilinu og hún hefur
ekki komið í leitirnar.

Hreinn segir
einnig frá nýjum reiðveg í dalnum sem byrjað er á en ekki er hægt að klára þar
sem Helgafell ehf neitar að hleypa honum í gegnum land sitt en reiðvegurinn
átti að liggja á landinum á 200 metra kafla.

Hreinn segir
einnig frá því að umferð mótorhjóla um reiðveginn frá Fellsenda til Skógarhóla
sé mjög mikil og leggur til að læsa hliðunum báðu megin til að sporna við
umferð mótorhjóla um reiðveginn.

Ekki voru frekari
umræður og býður fundarstjóri formanni orðið.

Lokaorð og fundarslit

Guðjón
nýendurkjörinn formaður Harðar tekur til máls.

Við erum heppin í
Herði því það er mjög gott að vinna með nefndarmönnum sem og stjórnarmeðlimum.
Hann rifjar upp, þegar hann fyrst tók við sem formaður Harðar þá logaði síminn
hjá honum en nú er mikið breytt. Nú vinna allir saman með góðu viðmóti enda er
hestamennskan „hobby" og það á að vera gaman.

Guðjón upplýsir
staðsetningu reiðleiðarinnar í dalnum sem Hreinn talaði um. Reiðleiðin liggur
upp með Köldukvísl frá undirgöngum (við afleggjarann upp í Skammadal) og upp
miðjan dalinn. Það er verið að gera þessa reiðleið því hætta getur skapast
þegar ríðandi umferð fer um akveginn því það er blindhæð fyrir ofan bæinn hjá
Pétri Jökli. Hann segir það koma sér á óvart að Helgafell ehf skuli neita lögn reiðvegarins
en hann lofar að það muni verða unnið áfram í þessu máli. 

Guðjón segir frá
því að stjórn Harðar hafi tekið ákvörðun um að hitta allar nefndir á fyrsta
fundi aðalstjórnar eftir áramót, ein nefnd í einu.

 

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 21.50

 

Fundargerð
ritaði: Gyða Árný Helgadóttir