Hestamannafélagið Hörður · Mosfellsbær 864 7753 hordur@hordur.is

Hestadagar í Reykjavík

13. desember 2010 Hestamannafélagið Hörður Comments Off

Áætlað er að Hestadagar í Reykjavík verði haldnir
daganna 31. mars til 2. apríl 2011. Þetta er í fyrsta skiptið sem þessir dagar
eru haldnir og er hér um að ræða spennandi tímamóta verkefni í samstarfi
Reykjavíkur og hestamannafélaga á höfuðborgarsvæðinu.  Hörður tekur þátt í þessu ásamt öðrum hestamannafélögum á höfuðborgarsvæðinu.  Í fyrstu koma Gyða Á. Helgadóttir og Reynir Örn Pálmason að þessu með mér, en þegar nær dregur þurfa nær allar nefndir félagsins að koma að málinu.

Uppsetning viðburðar er
hugsaður á þessa leið

Á mánudegi til
fimmtudags
 eru hestamannafélögin ásamt ræktunarbúum í
kringum höfuðborgina með opin hús og litla viðburði sem auglýstir eru á vefsíðu
Hestadaga í Reykjavík. Helgina á undan er Orrasýning sem án efa mun draga til
sín töluvert af erlendum ferðamönnum enda stóðhesturinn Orri frá Þúfu goðsögn í
huga flestra þeirra sem stunda íslandhestamennsku en það eru ca 130.000 manns í
heiminum. Spurning hvort að markaðssetning á báðum viðburðum myndi fá fólk til
þess að dvelja lengur á Íslandi?

Á föstudeginum 1.
apríl
 er stórsýning í Laugardalshöll þar sem ljós, tónlist og samspil
manna og hesta eru í fyrirrúmi.



Hér er handrit í vinnslu sem gerir viðburðinn
að leiksýningu ekki síður en hestasýningu. Nú þegar er þriggja manna nefnd frá
hestamannafélögunum að störfum við að undirbúa þennan lið.

Á laugardegi 2.
apríl 
er Laugardalurinn í Reykjavík undirlagður í samvinnu
við Fjölskyldu og húsdýragarðinn þar sem hestateymingar, hestaferð á kerrum,
litasýning á hestum, ásamt fjölda annarra viðburða eru í boði. 

Hestaþorp verður sett upp á
bílastæði milli Skautahallarinnar og Húsdýragarðs. Þar verður handverksfólki og
söluaðilum boðið að vera með vörur og kynningar. Einnig þeim
afþreyingarfyrirtækjum sem vilja vera með kynningarbása.

Um kvöldið verður
síðan Ístölt hinna allra sterkustu í Skautahöllinni.

Það er ljóst umbúnaður á
þessum hestadögum í Reykjavík er töluverður og til þess að þeir verði haldnir
með myndarskap er það von Landssambands hestamannafélaga að þið sjáið ykkur
fært koma að honum með markaðssetningu og kynningarstarfi því það er ljóst að
hér er ekki tjaldað til einnar nætur og mun þessi viðburður marka upphafið að
Landsmóti í Skagafirði í sumar og ekki síður upphafið að Landsmóti í Reykjavík
2012.