Hestamannafélagið Hörður · Mosfellsbær 864 7753 hordur@hordur.is

Hestar í skjól fyrir jól

17. nóvember 2010 Hestamannafélagið Hörður Comments Off

Verkefnið Hestar í skjól fyrir jól gengur eftir áætlun.  Búið er að
hreinsa  og fjarlægja rústirnar og loka gaflinum til bráðabirgða. Söfnunarreikningur
hefur verið stofnaður, búið er að ná mjög góðum samningi við Byko, en Gunni
Vals, sá sami og bjargaði hestunum úr brennandi húsinu, hafði milligöngu með það
og byggingafulltrúinn er búinn að gefa grænt ljós á að byrja uppbyggingu. 
Vikan hefur farið í það að undirbúa uppbygginguna, kaupa efni o.fl.

Og þá er komið að okkur Harðarmönnum

Allir sem vettlingi geta valdið eru beðnir að mæta í Harðarból kl. 9.30 á
næsta laugadag. Þar verður boðið upp á morgunkaffi og dagurinn skipulagður. Að
því loknu verða brettar upp ermar og byrjað að byggja.  Við viljum að sem
allra flestir mæti þennan fyrsta dag, helst allt of margir, þannig að
stjórnendur sjái allan hópinn og geti skipulagt vinnuna í framhaldinu. 
Meiningin er að taka þetta með áhlaupi eins og alþekkt er hjá Amish fólkinu, en
það byggir hlöðu á einum degi.  Ég veit við klárum þetta ekki á
laugardaginn svo farið verður yfir stöðuna í lok dags og ákveðið hverjir geta
mætt á sunnudaginn og næstu helgar og daga.

Það er spáð ágætis veðri, en verið samt vel klædd og þeir sem eiga verkfæri
takið þau með.