Hestamannafélagið Hörður · Mosfellsbær 864 7753 hordur@hordur.is

Eldsvoði í hesthúsahverfinu

12. nóvember 2010 Hestamannafélagið Hörður Comments Off

Það varð eldsvoði í hesthúsahverfinu í nótt og brann hálf
hesthúsalengja.  Hetja dagsins er Gunni Vals, en honum tókst með snarræði
og sinni alkunnu ósérhlífni að bjarga þeim hestum sem í húsinu voru með hjálp
tveggja lögreglumanna, en hestar eru mjög viðkvæmir fyrir reyk og er þess
skemmst að minnast þegar hestar dóu í öðrum bruna hér fyrir um 10 árum
síðan.  Fjöldi Harðarmanna dreif að þegar fréttist af brunanum og
hjálpuðust að við að rýma nærliggjandi hesthús sem reykjarmökkinn lagði yfir.
Hestunum var komið fyrir í hesthúsum neðar í hverfinu.Þó mikil mildi sé að
allir hestar og menn slyppu frá þessu lifandi má þó ekki vanmeta þau áhrif sem
svona atburður hefur á eigendur hesthúsanna. 

Það er ömurlegt að horfa upp
á jafn persónulega eign og hesthús er fuðra upp í eldi og þó að hægt sé að bæta
eitthvað með nýju húsi þá hafa einnig glatast persónulegir munir sem aldrei
verða bættir.Hugur okkar Harðarmanna er hjá þeim sem í þessu lentu, en þeir eru
gamalkunnir Harðarfélagar og hluti af aðalstoðum félagsins.  Samstaða
okkar Harðarmanna er löngu orðin landsþekkt,  við þjöppum okkur saman
þegar á móti blæs og ég veit að við munum koma að þeirri uppbyggingu sem
framundan er sem einn maður. 

Við vitum ekki enn hvernig kraftar hvers og
eins nýtast best, en þegar við erum búin að ná áttum og vitum hvað þarf til,
til að koma hestum í þessi hús fyrir jól,  þá munum við hvert og eitt
leggja okkar af mörkum til að það megi takast.

Kveðja, Guðjón formaður