Hestamannafélagið Hörður · Mosfellsbær 864 7753 hordur@hordur.is

Skemmti- og fræðsluferð unglinga,ungmenna og barna.

26. maí 2010 Hestamannafélagið Hörður Comments Off

Á laugardaginn næstkomandi ætlum við að fara í hina mögnuðu skemmti- og fræðsluferð um suðurland. Drífum okkur út úr bænum með nesti og nýja skó, kíkjum við á nokkrum hestabúum og kynnum okkur þjálfun og undirbúning hesta fyrir keppni. Lagt verður af stað kl.10 um morguninn og áætluð heimkoma er kl.17 og á að enda ferðina í félagsheimilinu þar sem við gerum eitthvað skemmtilegt og borðum saman.

Ferðin kostar ekkert og er ætluð þeim krökkum sem hafa verið á keppnisnámskeiðinu í vetur ásamt því að allir aðrir krakkar í Herði sem hafa áhuga á þjálfun og keppni eru velkomin.

Skráning þáttöku er í s.8971036 Ingimundur breidafit@isholf.is eigi síðar en fimmtudagskvöld.

 

Æskulýðsnefndin