Hestamannafélagið Hörður · Mosfellsbær 864 7753 hordur@hordur.is

Aðalfundur 2009

20. maí 2010 Hestamannafélagið Hörður Comments Off

Hestamannafélagið
Hörður

Aðalfundur .
Desember 2009 kl. 20:00. Mættir fyrir utan stjórn 40 manns.

Dagskrá

1)     
Formaður
setur fund og tilnefnir fundastjóra og fundarritara.

2)     
Formaður
flytur skýrslu stjórnar

3)     
Gjaldkeri
og endurskoðandi skýrir reikninga félagsins og kynnir milliuppgjör.

4)     
Reikningar
bornir undir atkvæði.

5)     
Fjárhagsáætlun
næsta árs og umræður.

6)     
Árgjald
ákveðið

7)     
Lagabreyting

8)     
Kostningar
samkvæmt 6 grein.

9)     
Önnur
mál

10)  
Fundarslit.                                                                          

Formaður setur
fund og stingur upp á Marteini Magnússyni sem fundarstjóra og Ragnhildi
Traustadóttur sem fundarritara sem er samþykkt af fundarmönnum.

Fundarstjóri
þakkar traustið og kynnir Guðjón formann og hann flytur skýrslu stjóranar

Haldnir voru 10
formlegir stjórnarfundir á starfsárinu og funduðu nefndir reglulega um sín málefni
. Ný heimasíða  var notuð og einnig var
gerð upp auglýsingatafla  sem var mikið
notuð. Ákveðið var að gefa ekki út fréttabréf á árinu vegna kostnaðar en reyna
að nota heimasíðnuna meira, en þar sem allir félagsmenn hafa ekki aðgang af
tölvu þá hefur Mosfellingur  látið okkur
í té heilsíðu í blaðinu nokkrum sinnu á ári.

Liðið ár hefur
verið spennandi þrátt fyrir kreppu og almennan samdrátt.

Þó var ekki allt
gott við árið , það kom upp salmonnellusýking sem herjaði á fjölda hesta
félagsmanna um jólinn í fyrra, hestarnir sýktust í girðingu þar sem þeir voru í
haustbeit og voru fluttir í hverfið til aðhlynningar. Hverfið hefur verið
þrifið vel eftir þessa sýkingu og vonandi höfum við eitthvað lært af þessu.

Félagsmenn Harðar
standa saman í gegnum súrt og sætt og hefur félagslíf blómstrað í kreppunni,
félagar hafa tekið rösklega til hendinni í ár, kvenndeild Harðar og Makkerinn
sáum um alla matseld í Harðarbóli, æskulýðsnefndin  hafði veg og vanda af glæsilegu barna og
unglingastarfi í vetur og ætlar sér stærri hluti í vetur með tilkomu
reiðhallar, fræðslunefndi  hefur unnið
stórvirki þegar tekið er tillit til aðstöðuleysis reiðveganefnd vinnur hörðum
höndum að bæta reiðvegi.

Íslandsmót barna
og unglinga sem haldið var í júní  og var
eingöngu starfið þar unnið að sjálboðaliðum fyrir utan dómara, félagsmenn
Harðar svöruð kalli þegar beðið var um hjálp til að klára reiðhöllina,
Harðarkonur sáum um veitingar á vígsluhátiðinni og var hlaðborð hjá þeim hið
glæsilegasta, formaður þakkar enn og aftur fyrir þann tíma og áhuga sem
félagsmenn hafa gefið félaginu án þess væri ekket félag.

Megið af þeim
verkefnum sem við setum sem markmið að klára á árinu voru kláruð.

Reiðhöllin
tilbúin til notkunnar, hitaveita kominn í hverfið, frárennslismál eru kominn í
lag, reiðvegir hér næst hverfinu í góðu standi, reiðvellir fínir, nú er verið
að vinna í deiliskipulagi til að fá stækkun á hesthúshverfinu.

Það sem framundan
er nú er þetta helst

Reiðleiðir fjær
hesthúshverfi

Val á stað fyrir
nýju hesthúshverfi

Förgun eða losun
á skít frá hesthúsunum og önnur lausn á sorphirðu

Og að lokum
áframhaldandi rekstur félagsins og æskulýðstarf, mótahald, kennsla, ferðir og
beitarmál.

Mosfellsbær
kaupir líkamsræktarkort hjá Eldingu fyrir afreksmenn í íþróttum, nokkrir
Harðarfélagar hafa notfært sér það en gott væri að sjá fleiri í ræktinni.

Reynir örn
Pálmason var valin íþróttarmaður Harðar í ár.

Afreksmannasjóður
Harðar og Mosfellsbæjar er ætlað að styrkja afreksmenn í íþróttum, Allir
Harðarmenn geta sótt um styrk, stjórn sjóðsins er skipuð einum frá Mosfellsbæ
sem í dag er Sigurður íþróttarfulltrúi Mosfellsbæjar, formaður Harðar og einum
sem kostinn á aðalfundi og var Guðný gjaldkerfi kosinn á síðasta aðalfundi.

Bæjastjórn
Mosfellsbæjar var boðin í reiðtúr og mat hér í Harðarbóli og tókst það kvöld
mjög vel allri voru mjög ánægðir með það kvöld.

Íslandsmót barna
og unglinga  var haldið hér í Mosfellsbær
á félagssvæði Harðar daganna 24 – 28 júní og tókst mjög vel, Undirbúningsnefd
samanstóð af fólki úr mótanefdn,æskulýðsnefnd, vallarnefnd og aðalstjórn
félagisn auk félagsmanna. Það voru vonbrigði hversu fáar skráningar voru það
vantaði nær alla fulltrúa af landsbyggðinni , það var til þessa að minna var um
skráningargjöld, styrktaraðilar drógu úr styrkjum þannig að fjárhagsleg hlið
mótsins var verri en við vonuðum, í stað þess að vona eftir góðum hagnaði var
útkoman nánast núll. Við fjáfestum í tækjum í eldhús vegna mótsinns sem mun
nýtast okkur í framtíðinni  og einnig
voru vellir lagfærðir enn eitt varð eftir það er reynslan sem við fengum við að
halda þetta mót og jákvæð ímynd félagsins útá við bæði gagnvart Mosfellsbæ og
öðrum hestamannafélögum.

 

Mörg mót voru
haldin á árinu bæði  innanfélagsmót og
opin mót.

Skógarhólar
standa okkur nær meira en öðrum hestamannafélögum en staðan þar er sú að LH hefur
stofnað einkahlutafélag um Skógarhóla og situr formaður Harðar þar í
varastjórn.

Fastir liðir
vorum með heimsóknum í nærliggjandi hestamannafélög og móttaka á gestum.

Einngi var aukin
þáttaka í félagsreiðum.

Gott samstarf
hefur verið við Mosfellsbæ og við merkjum aukin skilning á hestaíþróttinni,
enda er hátt hlutfall bæjarbúa sem stunda þetta hobbý.

Árshátið fór fram
í skugga salmonellusýkingar og kreppu, þrátt fyrir að árshátiðarnefnd stæði sig
vel þá kom árshátiðin út með tapi eins og árið áður. Það er ekki hægt að halda
árshátið og skila henni með hagnaði ef hún er haldin í Hlégarði við fáum ekki
vínsölu, við höfum reynt að fá húsið leigt á þjónustu en það er ekki hægt,
þannig að árshátíðarnefnd mun nálgast þetta frá öðru sjónarhorni, Harðarmenn eld
fyrir Harðamenn og Harðarmenn skemmta Harðarmönnum við bíðum spennt eftir þessu
nýja útspili.

 

Hörður gerði
samning við Worldfeng um að félagsmenn hafi frían aðgang og vorum við þeir einu
en nú hefur LH samið við Worldfeng fyrir hönd allra hestamannafélaga um frían
aðgang af vefnum.

2010 verður
Hörður 60 ára og ætlum við að nota árið til að gera Hörð sýnilegri í
bæjarfélaginu.

Nú er reiðhöllin
risin , ein stærsta reiðhöll landsins með stærsta innivöll landsins.

Formaður fór yfir
sögu framkæmda reiðhallar en  hugmyndin
vaknaði árið 1995 á stjórnarfundi.

Byggingarnefnd
var stofnuð árið 1999 við þekkjum öll þessa sögu enda var hún reifuð  í fundargerð á síðast aðalfundi.

Reiðhöllin var
afhend um mitt sumar en þá átti eftir að innrétta hana, við fórum í málin og
reyndum að aðlaga okkur eftir því fjármangni sem við höfðum héldum stjórnarfund
og ákváðum að halda áfram og lofuðum okkur að klára þetta á tveimur mánuðum og
það tókst .

Stór hluti
verksins var unninn í sjálboðavinnu, þar með talið allt tréverk sem var gróft
mótatimbur þegar það var keypt . Heiðushjón hér í félaginu sem eiga
trésmíðaverkstæði lánuðu okkur aðstöðu og þar stóðu félagsmenn svo dögum saman
og hefluðu og smíðuðu, önnur heiðushjón sem eiga malarnámu hleyptu okkur í þær
til að fylla sökkla , verkinn í höllinni voru ýmis unninn í sjálboðavinnu eða á
mjög lágum tilboðum frá félagsmönnum. Allt þetta fólk vann helgi eftir helgi og
jafnvel tók sér frí í vinnu til að vinna í höllinni og vill byggingarnefnd bera
fram sérstakar þakkir fyrir þetta óeigingjarna starfs sem hér var unnið .

Ef reiðhöllin
hefði verið reist í eðlilegu árferði þá hefðu ekki margir félagsmenn getað
gengið um og notið þeirra tilfinningar sem fylgir því að ganga um, horfa í
kringum sig og hugsa stoltir, hér á ég eitthvað, hér er stórvirki sem ég á minn
þátt í.

Forráð
reiðhallarinnar færist nú yfir í sérstaka rekstrnefnd sem mun fara yfir og
endurskoða rekstrarforsendur og raða upp tíma og semja umgengnisreglur .

Fjármögnun
stendur þannig að kostnaður við reiðhöllina eru um 240 milljónir króna.  Þar af metum við framlag Harðar á 35-40
milljónir. Ekki hefur verið notuð króna af félagssjóðum Harðar í þessa byggingu
.

65 milljónir voru
gatnagerðargjöld sem fengum styrk frá Mosfellsbæ til að greiða þannig að 135
milljónir fara í verkið í beinhörðum peningum.

Notkun reiðhallar
verður að mestu leiti á vegum æskulýðsnefndar og fræðslunefndar en félagsmenn
geta keypt sér lykill og notað höllinna þegar ekki eru námskeið, vellir verða
tvískiptir reiðkennsla í öðrum enda og hinn helmingur fyrir félagsmenn.

Sjálvirkt
eftirlitskerfi fylgist með notkunn reiðhallar.

Rafrænn lykill
kostar 4.000  fyrir fullorðna og 2.000
fyrir börn, unglinga og ungmenni .

Mörkinn eru við
22 ára aldur.

Í upphafi á smíði
reiðhallar var markmiðið að gera höllinna aðgengilega fyrir fatlaða, stórar
innkeysludyr þannig að hægt væri að keyra bifreiðar inn og komið verði fyrir
lyftu og öðrum búnaði fyrir fatlaða.

Jón Leví  afhenti félaginu forláta vökvalyftu sem hann
hannaði og smíðaði til að auðvelda fötluðum að komast á hestbak og fær hann enn
og aftur þakkir fyrir þessa veglegu gjöf.

Við höfum gert
frumáætlun um rekstur á reiðhöllini og notumst þar við reynslu annara aðila, nú
síðast Akureyringa. 7-8 milljónir er áætlað að reksturinn kosti og inn í því er
fasteignagjöld sem við fáum niðurfellt 
en sá kostnaður er 2 milljónir þannig að þetta er 5-6 milljónir og
Mosfellsbær mun leiga reiðhöllina af okkur fyrir æskulýðstarf Harðar fyrir 3,5
milljónir þannig að við verðum að standa straum 
að rest það munum við reyna með leigu og auglýsingum.

Fundarstjóri
þakkar Guðjóni fyrir góða ræðu.

3. Endurskoðandi
félagsins tekur nú við og skýrir út reikninga félagsins.

Sigurður
Guðmundsson tekur til máls og lætur vita af þvi að ársreikningar félagsins
liggi frami  SG for yfir reikninganna og
fengum við góðar útskyringar á reikningum félagsins.

Fundarstjóri
bendir á að kynna beri árshlutauppgjör og svara SG því að það sér ekki áritað
en fór yfir það með okkur.

4. Fundarstjóri
ber upp reikninginn til samþykktar og er hann samþykktur samhljóða.

 

5. Fundarstjóri
bendir á að reikningar séu glæsilegir. Ólöf þakkar góð reiknisskil og spyr um
einkahlutafélagið Skógarhóla. Guðjón er í varastjórn og getur ekki svarað neinu
fyrir en eftir fyrsta fund hann bíður eftir fundarboði.

Spurt eru um
vexti af yfirdrætti SG svarar því að farið er með vexti vegna reiðhallar sem
eign í reiðhöll, í dag eru borgaðir 12% vextir, eftir að semja endalega um
vexti.

Þröstur Karlson
spyr um sundurliðun vegna reiðhallar, er ekki sáttur við reikningskil , vantar
sundurliðun á kostnaði og gerir athugasemdir um það og óskar eftir því að
löggiltir endurskoðendur fari yfir reikninginn er varðar reiðhöllina.

Athugasendir komu
fram hversu fáir greiða félagsgjöld vantar að finna nýja innheimtu.

Guðjón formaður
svarar:

Hvað varðar kostnað
á reiðhöll þá mun það koma fram á ársreikning 2009 hjá Herði.  Guðjón mun taka þetta saman og setja á netið.
SG svarar Þresti einnig með að þegar ársreikningur 2008 var gerður þá var
höllin ekki tilbúin, en fram koma styrkir og útgjöld vegna reiðhallar sem þá
voru komnir.

Varðandi  innheimtu á félagsgjöldum, það er bannað
samkvæmt landslögum að setja félagsgjöld í innheimtu.  Reynt verður að innheimta félagsgöld  en þar er mikilvægt fyrir okkur að hafa sem
flesta félagsmenn þegar kemur að Landsmóti, en með komu reiðhallar þá vonar
Hestamannafélagið að félagsgjöld innheimtist betur.

 

 Fjárhagsáæltun 
Guðný skýrir hana og leggur fram fjárhagsáætlun fyrir 2010  þetta var samþykkt.

7. árgjöld 

12 og yngri frítt

17-20  félagsgjald 2.000

21-70  félagsgjald 7.500

Þetta var
samþykkt.

 

Engar
lagabreytingar voru lagðar fyrir á fundi.

 

8.Kosningar skv.
6 gr. Í lögum Hestamannafélagsins.

Tillaga að
stjórn.

Guðjón
Magnússon,formaður

Aðalstjórn:
Guðmundur Björgvinsson, Guðný Ívarsdóttir , Gyða Á. Helgadóttir,  Ingimundur Magnússon,  Ragnhildur Traustadóttir og Sigurður
Teitsson.

Varastjórn:, Sigurður
Guðmundsson, Sigurður Ólafsson, Þórir Örn Grétarsson

Skoðunarmenn:
Leifur Kr. Jóhannesson og Birgir Hólm.

Aðilar á þing
UMSK: Guðjón Magnússon og formaður Æskulýðsnefndar.

Í Stjórn
Afreksmannsjóðs: Guðjón Magnússon og Guðný Ívarsdóttir:

 

Eftir kostningar
lá þetta fyrir:

 

 

Samþykkt Guðjón
Magnússon, formaður

Samþykkt í
aðalstjórn:  Guðmundur Björgvinsson,
Guðný Ívarsdóttir , Gyða Á. Helgadóttir, 
Ingimundur Magnússon,  Ragnhildur
Traustadóttir og Sigurður Teitsson.

Samþykkt í  varastjórn: Sigurður Guðmundsson, Sigurður
Ólafsson,   Þórir Örn Grétarsson

Samþykkt sem skoðunarmenn:
Leifur Kr. Jóhannesson og Birgir Hólm.

Samþykkt sem aðilar
á þing UMSK: Guðjón Magnússon og  Ingimundur
Magnússon.

Í Stjórn
Afreksmannsjóðs: Guðjón Magnússon og Guðný Ívarsdóttir:

 

Önnur mál:

 

Hreinn Ólafsson
óskar eftir því að taka til máls:

Hreinn óskar
Herði til hamingu með reiðhöllina, Hreinn stingur upp á því að þeir sem ekki
borga félagsgjald borgi 10.000 í stað 4.000 fyrir aðgang að reiðhöllinni

Hreinn vegur máls
á því að Hörður verði 60 ára 2010 og auglýsir þar með eftir
fundagerðabókum  sem virðast vera týndar,
hann vonar að þær séu upp á háalofti í Harðarbóli en þær verða að finnast.

Hreinn er einn að
stofnendum Hestamannafélagsins Harðar og hefur verið með í flestum verkefnum
sem hafa snúið að Hestamannafélaginu en hann hafði ekki komið nálægt
reiðhöllini og fannst það miður og færði Reiðhöllinni  100.000 að gjöf .

Formaður tók til
máls og þakkaði góða gjöf og lofaði því að reyna að finna fundagerðabækur .

Birgir Hólm
óskaði eftir því að fá að koma upp til að benda á að reikningar
Hesthúsfélagsins  liggi fram til lestrar.

Fundarstjóri  tók til máls og nefndi það að
fundargerðarbækur gætu kanski verið á héraðsbókasafninu og nefndi það að þar
sem félagið yrði 60 ára þá yrðu þessar bækur að finnast.

 

Fundarstjóri
stingur upp á því að stofnuð verði nefnd sem hugar að skrifum á sögu félagsins,
stjórnin finndi gott fólk til að huga að þessu máli.

 

Formaður félagins
tekur til máls og þakkar stuðning við formannskjörin og tekur upp umræðu um
sögu félagsins og ætlar að sjá til þessa að saga félagsins verði skrifuð.

 

Rætt var um
myndavélakerfi reiðhallar og sameiningu við myndavélakerfi hjá Hesthúsfélaginu.
Rætt var um hringgerðið og endurskipulagningu hesthúshverfisins vegna nýrra
lóða,

 

Fundi slitið kl:
22:00