Hestamannafélagið Hörður · Mosfellsbær 864 7753 hordur@hordur.is

Stjórnarfundur 18.maí 2010

20. maí 2010 Hestamannafélagið Hörður Comments Off

Hestamannafélagið Hörður

 

Stjórnarfundur 18. maí 2010 kl. 17.00

 

Fundur 5


Fundarstaður: Harðarból


Fundur hófst  kl. 17.00



Mættir voru:


Guðjón Magnússon                                      8945101          gudjon@arkform.is


Guðmundur
Björgvinsson                               8586421          gudmbj@simi.is


Guðný
Ívarsdóttir                                        8997052          gudnyi@simnet.is



Gyða Á.
Helgadóttir                                     8648084          gyda@gkgluggar.is


Ingimundur
Magnússon                                 8971036          breidafit@isholf.is


Ragnhildur
Traustadóttir                               8934671          ragga@forum.is


Sigurður
Guðmundsson                                 8995285          sgudm@visir.is


Sigurður Ólafsson                                        8995282          sigurdur.olafsson@simnet.is



Sigurður Teitsson                                        8965400          sht@verslun.is


Þórir Örn
Grétarsson                                    8977654          toti@hestar.net

 

  1. Íþróttaakademía með
    hestabraut í framhaldsskóla Mosfellsbæjar



    GM og IM hafa hitt skólastjóra framhaldsskólans og borið upp hugmynd að
    hestabraut við skólann.  Hún tók mjög vel
    í málið og munum við hittast aftur í lok sumars og hefja undirbúning að gerð
    námsskrár.





  2. Reiðhöll, fjárhagsstaða
    og rekstur



    Fjárhagsstaðan
    er enn í lagi, en ljóst er að ekki er hægt að byggja framtíðar rekstur
    reiðhallarinnar á þeim tekjugrunni sem nú er, hækkun á leigu frá Mosfellsbæ er
    forsenda þess að reksturinn gangi til langframa, enda var alltaf vitað að svo
    yrði.  Sú reynsla sem við höfum af
    rekstrinum þetta fyrsta hálfa ár sýnir þó, að rekstraráætlun sem gerð var fyrir
    5 árum síðan virðist standast.  Nú er
    orðið nokkuð ljóst að við fáum ekki vsk endurgreiddan, en við höfðum reiknað
    með að fá 4 til 5 millj. endurgreiddan enda er húsið íþróttamannvirki.  Skattstjóri túlkar lögin hins vegar þannig að
    þetta eigi einungis við íþróttamannvirki sem eru í beinni eigu bæjarfélaganna.
    Við munum vinna áfram í þessu máli og fá lögmann félagsins til að skoða
    þetta.  Fjármögnun reiðhallarinnar er sem
    áður í höndum Íslandsbanka og er nú eini óvissuþátturinn vaxtaprósentan á næstu
    árum.





  3. Umhverfismál, þrif og
    fegrun hesthúsahverfisins



    Okkur
    hefur verið úthlutað 5 ungmennum til vinnu í sumar, tvö þeirra mega vinna 180
    klst. 6 tíma á dag, eða 6 vikur, hin þrjú 240 tíma, eða í 8 vikur 6 tíma á
    dag.  IM mun sjá um að gera verkefnalista
    í samráði við stjórnina og sjá um yfirstjórn vinnunnar. Verkefni sem fyrir
    liggja er gróðursetning, bera á tréverk reiðhallarinnar (olía), mála Harðarból
    að utan, tæma gáminn, sá í moldarflög við reiðhöll og reiðvöll ofl.





  4. Fjáröflun


    Fjáröflun er í fullum gangi.





  5. Landsmót og hóstinn


    Fyrirséð er að landsmót gæti farið í uppnám á einn eða annan hátt vegna
    þeirrar hestaflensu sem nú gengur yfir landið. 
    Lítið er vitað um sjúkdóminn annað en það að svo virðist að ekki megi
    hreyfa hross sem eru komin með hor í nös. 
    Nú eru liðnar einar 8 vikur frá því pestin hófst og enn eru engin hross
    sem hafa veikst komin í fulla þjálfun og því ekki enn vitað hversu lengi þau
    eru að ná sér að fullu.  Áfram er þó
    unnið af félagsins hálfu eins og landsmót og úrtaka verði.  ST pantar pláss fyrir tjaldborg og beit.





  6. Ný knapanúmer fyrir
    vetrarmótin



    Ákveðið að láta gera ný knapanúmer fyrir vetrarmótin, en gömlu númerin eru
    ónýt.  Lögð fram tillaga um að félagsmenn
    geti keypt sér númer og haft það í hesthúsinu og notað aftur og aftur fyrir
    5000.- kr. Öðrum verður úthlutað númeri fyrir hverja keppni eins og verið hefur
    gegn skilagjaldi sem endurgreiðist að fullu þegar númeri er skilað.





  7. Heimasíða


    Nú eru liðin um 5 ár frá því heimasíðan var uppfærð síðast.  Ákveðið að fara í endurhönnun hennar í haust.





  8. Beitarnefnd og áburður


    Beit verður með sama sniði og áður og verður leigjendum afhentur einn poki
    af áburði fyrir hvern hest.





  9. Umhverfi reiðhallar


    Laga þarf veginn upp að Harðarbóli og svæðið frá veginum að
    reiðhöllinni.  GM ræðir málið við
    Mosfellsbæ.





  10. Veðsetning reiðhallar


    Ákveðið að leggja til lagabreytingu á lögum félagsins þar sem óheimilt
    verður að veðsetja reiðhöllina eftir að núverandi fjármögnun lýkur nema með
    samþykki aðalfundar.


 








Fleira var ekki
gert og fundi slitið


 


 

Verkefnalisti stjórnar

 

  1. Fjáröflun í gang                                                                       ST
  2. Sölusýningar í reiðhöllinni                                                      ST,
    IM, GM
  3. Deiliskipulag hesthúsahverfisins, ný hesthús                          GM
  4. Verklýsingar fyrir stjórn og nefndir                                        GM,
    + allir
  5. Hönnun stækkun Harðarbóls                                                  GM
  6. Panta pláss fyrir tjaldborg á Landsmóti                                  ST
  7. Verkefnalisti fyrir vinnuflokk                                                 IM
  8. Ný númer fyrir vetrarkeppnir                                                  ST
  9. Frágangur á vegstæði og svæðinu að
    reiðhöllinni                   GM


 

 

Verkefnalisti lokið

 

  1. Dagskrá vetrarins                                                                    Allir
  2. Mosfellingur, dagskráin í næsta blað                                      GM
  3. Halda Þorrablót þann 23. Janúar                                             GB
  4. Senda út boðsmiða á árshátíð                                                 GM
  5. Halda árshátíð og afmælishátíð þann 27.
    Febrúar                  Ársh.nefnd
    og stjórn
  6. Senda út félagsgjöld                                                               GÝ
  7. Veltiskilti við Vesturlandsveg, ath.stöðu
    samnings                GÁH, ST