Smitandi
hósti breiðist áfram út meðal hrossa sem haldin eru á húsi víða um
land. Enn hefur ekki fundist hvað veldur en allt bendir til
að um veirusýkingu sé að ræða sem magnast upp í þétt skipuðum hesthúsum.
Í kuldatíð undanfarinna vikna hefur reynst
erfitt að halda góðu lofti í húsunum án þess að slái að hrossum sem
gengin eru úr hárum og má reikna með að
það hafi haft sitt að segja. Búið er að útiloka allar alvarlegustu
veirusýkingarnar sem þekktar eru og leggjast á öndunarfæri hrossa
s.s. hestainflúensu, smitandi háls og lungnakvef/ fósturlát (herpes týpa
1) og Rhino-kvef. Unnið er áfram að greiningu bæði á
Tilraunastöðinni á Keldum og á Dýralækningastofnun Svíþjóðar.
Bakteríusýkingar virðast í mörgum tilfellum fylgja í kjölfarið og geta
hrossin þá fengið hita og graftarkenndan hor í nös.
Bakteríuræktun hefur leitt í ljós að oft er um að ræða streptókaokka sem
nú er verið að greina nánar. Slíkar
sýkingar er í mörgum tilfellum hægt að meðhöndla. Því miður er að koma í
ljós að mörg hross eru lengi með
þetta kvef, allt upp í 4 vikur og enn sér ekki fyrir endann á því hversu
lengi þau verða að jafna sig að fullu.
Áfram er ráðlagt að hvíla öll hross með einkenni og verja þau fyrir
kulda og trekki. Samtímis þarf að tryggja þeim gott loft og
með hlýnandi veðri ættu hrossin að geta verið meira úti. Hvíldin er
mikilvægust í byrjunarfasa sjúkdómsins og hestamenn eru
hvattir til að vera vel á verði fyrir fyrstu einkennum sýkingarinnar sem
eru þurr hósti, glært nefrennsli og slappleiki sem þó verður
aðeins vart í reið. Það er ítrekað að ekki á að koma með veika hesta í
hús þar sem veikin er ekki fyrir né breiða
sýkinguna út með öðrum hætti. Alls ekki má nota veika hesta til sýningar
eða keppni.
Væntingar eru um að smitálagið minnki með vorinu og hestahaldið falli þá
í eðlilegan farveg.
Hóstinn
Hér er grein um "hóstann" af vef Matvælastofnunar
Smitandi hósti í hrossum dregur dilk á eftir
sér
Tekið af vef Matvælastofnunar, www.mast.is

Nýjustu fréttir
Fréttaflokkar
Fréttasafn