Hestamannafélagið Hörður · Mosfellsbær 864 7753 hordur@hordur.is

Stjórnarfundur 9. mars 2010

18. mars 2010 Hestamannafélagið Hörður Comments Off

Hestamannafélagið Hörður

Stjórnarfundur 9. mars. 2010 kl. 17.00

 

Fundur 3

Fundarstaður: Harðarból

Fundur hófst  kl. 17.00

 

Mættir voru:

 

Guðjón Magnússon                                         8945101          gudjon@arkform.is

Guðmundur
Björgvinsson                               8586421          gudmbj@simi.is

Guðný Ívarsdóttir                                           8997052          gudnyi@simnet.is

Gyða Á.
Helgadóttir                                       8648084          gyda@gkgluggar.is

Ingimundur
Magnússon                                  8971036          breidafit@isholf.is

Ragnhildur
Traustadóttir                                8934671          ragga@forum.is

Sigurður
Guðmundsson                                  8995285          sgudm@visir.is

Sigurður Ólafsson                                           8995282          sigurdur.olafsson@simnet.is

Sigurður Teitsson                                            8965400          sht@verslun.is

Þórir Örn
Grétarsson                                       8977654          toti@hestar.net

 

 

  1. Fyrsta kynning á
    deiliskipulagi hesthúsahverfisins

Lögð fram tillaga sem okkur var send frá Mosfellsbæ. Tillagan var gerð af
Landslagi og vantar töluvert upp á að hún uppfylli væntingar okkar.  Td. er vegur að hesthúsahverfinu gerður beinn
sem skapar enn meiri hraðakstur en nú er, nýjar lóðir eru aðeins 4 talsins og
þjálfunargerði aðeins eitt.  Ákveðið að
GM endursendi tillöguna með athugasemdum og ræði við skipulagshöfunda.

  1. Staðsetninga nýs
    hesthúsahverfis

Haldið var
skipulagsþing um staðsetningu nýs hesthúsahverfis á vegum Mosfellsbæjar.  Þar voru aðeins mættir örfáir hestamenn.  Fundurinn var engu að síður góður og var
tekin umræða um hinar ýmsu staðsetningar sem ræddar hafa verið án þess þó að
nokkur ákvörðun hafi verið tekin.  Það kom
þó fram athyglisverð tillaga sem skoða ætti betur, en hún er að fá hluta af
landi Reykjavíkur í Álfsnesi, handan við flugbrautina við Fitjar undir nýtt
hesthúsahverfi.  Það yrði ákjósanleg
staðsetning, nálægt núverandi hverfi, þannig að félagsaðstaðan og mannvirki á
Harðarsvæðinu nýttust, bein tenging við flugvallarhringinn og bein tenging við
leyrurnar.

  1. Árshátíð, uppgjör,
    fjármálastaða

Árshátíðin
var frábærlega vel heppnuð, um 200 manns mættu. 
Nánast allur undirbúningur, matur og skemmtiatriði voru unnin af
Harðarfélögum.  Velta var um 1.700.000.-
og hagnaður 208.000.- krónur sem renna í félagssjóð

  1. Gjöf frá Kristjáni
    Þorgeirssyni, Stjáni Póstur

Kristján Þorgeirsson færði félaginu 300.000.- króna gjöf á árshátíðinni sem
hann óskaði eftir að notuð af æskulýðsnefndinni.  Við þökkum þessum heiðursmanni og einum af
stofnendum Harðar þessa höfðinglegu gjöf.

.

  1. Stækkun á félagsheimili

Þar sem félögum í Herði hefur fjölgað og félagslífið tekið mikinn kipp var
lögð fram sú tillaga að stækka salinn í félagsheimilinu þannig að hann tæki um
170 manns, í dag tekur hann 80 til 100 manns. Verkið verður allt unnið í
sjálfboðavinnu, GM leggur til teikningar og GB, IM og SÓ halda utan um
framkvæmdina.  Reynt verður að fá efni
fyrir lítið eða ekkert frá styrktaraðilum. 
Það verður lagt upp með þetta verkefni á sama hátt og reiðhöllina, að
félagið eignist þessa stækkun skuldlausa og án þess að annað félagsstarf líði
fyrir hana.

 

  1. Reiðhöll uppgjör

Nú hafa allir reikningar vegna reiðhallarinnar verið greiddir.  Nú í mars fáum við um 20 millj. frá
Mosfellsbæ sem við notum til að greiða niður lánið við Íslandsbanka.  Þá standa eftir tæpar 40 milljónir sem
Íslandsbanki lánar okkur á um 10% vöxtum í tvö ár. Við eigum eftir að fá rúmar
40 milljónir frá Mosfellsbæ á næstu tveimur árum auk þessa að við fáum 5 til 7
milljóna króna VSK endurgreiddan af vinnu sem unnin er á byggingarstað.  Málið stendur því þannig að dæmið gengur
upp.  Ennþá eru þó óvissuþættir einkum er
varða vaxtastig í landinu, hversu mikinn virðisaukaskatt við fáum til baka og
hversu há verðtryggingin verður á framlagi Mosfellsbæjar.

 

  1. Skógarhólanefnd

Rætt um framtíð Skógarhóla, GM upplýsti að stofnað hefði verið félagið
Skógarhólar ehf þar sem stjórnarmenn eru frá LH.  GM var boðið að sitja í varastjórn þess
félags og þáði það. Skógarhólanefnd Harðar stofnuð og eiga sæti í henni RT, GÝ
og GM

 

Fleira var ekki
gert og fundi slitið

 

 

Verkefnalisti stjórnar

 

  1. Dagskrá félagsins, dreift í hesthúsin                                  GB,GM,
    ST
  2. Fjáröflun í gang                                                             ST
  3. Veltiskilti við Vesturlandsveg, ath.stöðu samnings                GÁH, ST
  4. Sölusýningar í reiðhöllinni                                                 ST,
    IM, GM
  5. Deiliskipulag hesthúsahverfisins, ný hesthús                        GM
  6. Verklýsingar fyrir stjórn og nefndir                                     GM,
    + allir
  7. Hönnun stækkun Harðarbóls                                             GM

 

Verkefnalisti lokið

 

  1. Dagskrá vetrarins                                                          Allir
  2. Mosfellingur, dagskráin í næsta blað                                  GM
  3. Halda Þorrablót þann 23. Janúar                                      GB
  4. Senda út boðsmiða á árshátíð                                         GM
  5. Halda árshátíð og afmælishátíð þann 27.
    Febrúar                 Ársh.nefnd
    og stjórn
  6. Senda út félagsgjöld                                                      GÝ