Hestamannafélagið Hörður · Mosfellsbær 864 7753 hordur@hordur.is

Laust á námskeið fullorðinna

3. febrúar 2010 Hestamannafélagið Hörður Comments Off

Það eru örfá pláss laus á námskeið ætlað byrjendum og/eða þeim sem vantar meiri kjark í sína reiðmennsku, kennari er Oddrún Ýr Sigurðardóttir.  Þetta er námskeið sem tekur mið af þörfum nemendanna og þróast eins og þarfir þeirra.  Tilvalið fyrir þá sem hafa ekki farið á námskeið áður eða eru nýlega byrjaðir í hestamennsku og líka þá sem ná ekki alveg tökum á reiðmennskunni vegna óöryggis.

Kennt er á sunnudögum klukkan 16, 6 skipti og kostar 8000.  Byrjar annaðhvort næsta sunnudag eða þarnæsta, fer eftir skráningu.

Skráning á námskeiðið er hjá Lilju, lilja@kraftaverk.is

 

Námskeiðið er ætlað félögum í Herði, nýjir félagar boðnir velkomnir, hægt að skrá sig hér á síðunni.

Kveðja frá fræðslunefnd Harðar.