Hestamannafélagið Hörður · Mosfellsbær 864 7753 hordur@hordur.is

Laus pláss á námskeið

24. janúar 2010 Hestamannafélagið Hörður Comments Off

Enn eru örfá pláss laus á námskeið fyrir fullorðna:

Almennt reiðnámskeið hjá Ragnheiði Þorvaldsdóttur sem hefst 5. febrúar, kennt á föstudögum klukkan 18 eða 19.

Almennt keppnisnámskeið hjá Halldóri Guðjónssyni sem hefst 16. mars, kennt á þriðjudögum klukkan 21.

Keppnisnámskeið fyrir konur hjá Súsönnu Ólafsdóttur sem hefst 14. febrúar, kennt á sunnudögum klukkan 14.

Almenn reiðnámskeið

Námskeið fyrir alla sem vilja bæta reiðmennsku sína og hest.  Farið í grunn fimiæfingar og uppbyggingu gangtegunda.  Fjölbreytt námskeið sem mótast af þörfum nemendanna. 

Verð 8000 – 6 skipti

Skráning hjá Helenu helenajens@simnet.is

 

Keppnisnámskeið fyrir konur

Námskeið sérstaklega fyrir konur sem ætla að taka þátt í árlegu kvennatölti Gusts.

Verð 9500 – 8 skipti

Skráning hjá Margréti margret@vistor.is fyrir 1. febrúar.

 

Keppnisnámskeið almennt

Ætlað þeim sem hafa hug á að taka þátt í hvers kyns mótum með lokamarkmið á Íþróttamóti Harðar. 

Verð 9500 – 8 skipti

Skráning hjá Lilju lilja@kraftaverk.is fyrir 1. febrúar.