Kæru
félagsmenn, alþingismenn, bæjarstjóri, bæjarráð, Íþrótta- og tómstundaráð,
skipulags og byggingarnefnd, Guðni Ágústsson og aðrir hátíðargestir,
Ég vil
bjóða ykkur öll velkomin á þessa hátíðarstund hjá okkur í Hestamannafélaginu
Herði sem markar þau tímamót að nú eigum við glæsilegustu reiðhöll
landsins.Þetta er stórt mannvirki,
stærsta reiðhöllin sem er eingöngu reiðhöll, 80 x 30 metrar, eða 2400 m2 og með
stærsta reiðsvæðinu.
Ég tel
mig hafa grafið upp hvenær fyrst var stungið upp á því að hér yrði byggð
reiðhöll, en það virðist hafa verið gert á stjórnarfundi hér í Herði árið
1995.Þá kom þáverandi varaformaður
félagsins með þá hugmynd að byggja reiðhöll og var að eigin sögn kallaður
hálfvit og vitleysingur að ætla að ríða út inni í húsi.Þrátt fyrir þessa niðurlægingu tók hann þetta
uppá næsta LH þingi, svona sem hugmynd,
það lá við að honum yrð hent út af þinginu. Einn þingmanna sneri sér þá að honum og sagði honum til huggunar að
allar nýjar góðar hugmyndir tækju tíu ár. Og það er ekki fjarri lagi.
Árið 1999
var jarðvegurinn þó strax orðinn það jákvæður að stofnuð var byggingarnefnd
Harðar sem skoðaði byggingar og lagði fyrstu drög að reiðhallarbyggingu hér á
svæðinu.Þá voru menn að fikra sig áfram
víðar með reiðhallarbyggingar, en vandamálið var alltaf það sama, hvernig á að
fjármagna slíka byggingu.Það var ekkert
fordæmi um að opinberir aðilar kæmu að slíkri fjármögnun og félögin eru langt
frá því að standa undir slíkum byggingum með þeim tekjustofnum sem þau
hafa.Til að þið fáið hlutina í samhengi
þá kostar þessi reiðhöll svipaða upphæð og öll félagsgjöld félagsins í 150 ár
Það var
svo fyrir um 5 árum síðan að sá hópur manna kom í byggingarnefnd Harðar sem nú
hefur lokið verkinu.Þetta er lítill
hópur manna, 4 til 5 menn, og á þeim hefur megin þunginn legið síðastliðin
5ár. Við nutum þess starfs sem áður hafði verið unnið og fundum að nú var
jarðvegurinn góður og meðbyr í seglin. Við gerðum tillögur og buðum
forsvarsmönnum Mosfellsbæjar til fundar, kynntum tillögurnarbænum og landbúnaðarráðherra og útskýrðum
mikilvægi þess að hestaíþróttafélög hefðu afnot af reiðhöll til kennslu og
æfinga.Hestaíþróttin hefði breyst mikið
á undanförnum árum og forsenda þess að við yrðum samkeppnishæf við önnur félög
væri reiðhöll og góðir reiðvellir.
Fjármögnun
tók nokkurn tíma og nokkra fundi, en að lokum varð niðurstaðan sú að
Mosfellsbær með Ragnheiði Ríkarðsdóttir í fararbroddi lagði til 90 millj. til
verksins sem greiðist út á 7 ára tímabili, landbúnaðarráðuneytið með Guðna
Ágústsson í fararbroddi lagði til 25 millj. úr reiðhallarsjóði sem hann hafði
nýlega komið á og hestamannafélagið sjálft 25 millj. sem það hefur staðið við
að fullu og meira en það í formi sjálfboðavinnu, styrkja og afslátta ýmiskonar
frá fyrirtækjum og verktökum.
Með þessa
fjármuni í hendi héldum við af stað og leituðum tilboða í verkið.Við gerðum forsögn og útboðsgögn sjálfir en
ákváðum að bjóða út reiðhöllina í einum pakka, þar með talin hönnun hússins.Lægsta tilboði var tekið, enda var það eina
tilboðið þá sem við réðum við og byrjaði verktakinn fljótlega að láta hanna
húsið og grafa fyrir undirstöðum.
Og þá
byrjuðu tafirnar, ég ætla ekki að rekja þá sorgarsögu hér, en hún tók mjög á
okkur félagana og stóð í vel á annað ár.
En upp
með björtu hliðarnar, um mitt sumar árið 2008 voru komnir upp sökklar sem við
áttum skuldlausa. Eftir að hafa gert upp við fyrsta verktakann, gerðum við nýja
kostnaðaráætlun sem við sniðum að nýjum veruleika þar sem Evran var orðin hærri
en þegar við lögðum af stað og hófum leit að nýjum verktaka.
Og þá
hrundi Ísland og hálfur heimurinn með. Ég fékk nett sjokk, eiginlega meira vegna reiðhallarinnar en eigin
fyrirtækis og hringdi í Harald bæjarstjóra sem var í sama sjokkinu og ég og eftir
stutt samtal sagði hann:„en Guðjón, við
erum varla að fara að byggja reiðhöll eins og staðan er í dag, er það? „Ég svaraði: „Jú við erum að fara að gera
það“.Og þá sagði hann:„Allt í lagi, bærinn mun standa við
sitt“.Nánari eftirgrennslan sýndi að
Landbúnaðarráðuneytið var sama sinnis og harðákveðið í að standa við sinn
hluta. Og það sama var um Íslandsbanka sem er að fjármagna reiðhöllina fyrir
okkur.
Í
framhaldi af þessu settumst við niður, endurskoðuðum allar áætlanir einu sinni enn og fórum á fund nýrra
verktaka.Við ræddum við 4
verktakafyrirtæki og enduðum með því að ljúka samningum við fyrirtæki hér í
bakgarðinum hjá okkur, Hýsi, sem sýnir að oft leitar maður langt yfir skammt.Ástæðan fyrir því að við sömdum á endanum við
Hýsi var ekki af því að þeir eru góðir vinir okkar, nágrannar og frændur, allt
samt góðar og gildar íslenskar ástæður til að ráða menn í vinnu, heldur voru
þeir einfaldlega bæði ódýrastir og þar að auki með snilldar hugmynd sem við
útfærðum síðan með þeim.
Þessi
hugmynd gekk út á að festa gengi krónunnar og taka þar með gengisáhættuna út úr
spilinu.Það var óðs manns æði á þeim
tíma að kaupa hús í útlöndum fyrir tugi milljóna og skuldbinda sig til að
greiða það í evrum eftir 4 mánuði. Enginn vissi þá hvar evran endaði frekar en nú. Þetta var í stuttu máli
útfært þannig að Íslandsbanki sem er bankinn okkar og Landsbankinn, banki Hýsis
fóru í samstarf.Landsbankinn keypti
evrur með tryggingu frá okkur í gegnum Íslandsbanka sem hann lánaði síðan Hýsi
sem staðgreiddi reiðhöllina erlendis og þar með var gengið sett fast.Á þessum tíma var evran komin í um 180
krónur, hafði hríðfallið á stuttum tíma. Þá gerðu stjórnvöld eina efnahagstilraunina enn og handstýrðu genginu
niður í 145 til 150 krónur.Það hélt í
um viku tíma og sú vika var notuð til að kaupa evrur.Þetta ásamt því að Hýsir tók á sig alla
vaxtabyrgði á verktímanum varð til þess að við stöndum hér í dag.Og vil ég þakka þeim sérstaklega fyrir þeirra
framlag.
Við
fengum reiðhöllina afhenta um mitt sumar, en þá átti eftir að innrétta
hana.Við endurskoðuðum áætlanir enn
einu sinni og reyndum að aðlaga verkefnið að því fjármagni sem við höfðum,
héldum stjórnarfund,ákváðum að halda
áfram oghétum sjálfum okkur því að
klára höllina á tveimur mánuðum.
Stórhluti verksins var unninn í sjálfboðavinnu,
þar með talið allt þetta vandaða tréverk sem þið sjáið hér sem var gróft
mótatimbur þegar það var keypt. Heiðurshjón hér í félaginu sem eiga trésmíðaverkstæði lánuðu okkur
aðstöðuna og þar stóðu félagsmenn og hefluðu og smíðuðu dögum saman.
Önnur
heiðurshjón eiga malarnámur sem þau hleyptu okkur í til að fylla í
sökklana.Aðrir hlutir voru unnir á mjög
lágum tilboðum frá félagsmönnum sem reyndar eru allir þektir fyrir að hafa
unnið í sjálfboðavinnu fyrir félagið árum saman.Þessu heiðursfólki sem hefur mætt hér helgi
eftir helgi og kvöld eftir kvöld, nokkrir hafa meira að segja tekið sér frí frá vinnu dögum saman til að geta unnið
hér, er þakkað alveg sérstaklega.
Ég vil
jafnframtnota tækifærið og þakka öllum
þeim tugum sjálfboðaliða sem starfa hér árin út og árin inn við félagsstörf,
mótahald, veitingarekstur, æskulýðsstörf og öll þau fjölmörgu handtök sem vinna
þarf í félagi sem þessu, enda er félagið ekki með neinn launaðan starfsmann,
sem er eiginlega ótrúlegt þegar horft er til þeirrar miklu starfsemi sem hér
fer fram.
Ég var á
formannafundi hestamannafélagana um daginn og þar voru nokkrir formenn annarra
félaga sem sneru sér að mér og spurðu hvað væri eiginlega að gerast í Herði,
þeir væru að heyra ótrúlegar sögur um staðfestu og vinnusemi Harðarfélaga og
vildu fá uppskriftina til að nota í sínu eigin félagi.Ég sagði þeim auðvitað að þeir ættu ekki
sjens, Harðarfélagar væru einfaldlega miklu öflugri, duglegri, fallegri og
sprækari en aðrir Íslendingar.
Ef
reiðhöllin hefði verið reyst í eðlilegu árferði þá hefðum við verið örfáir
félagarnir sem hefðum notið þeirrar tilfinningar sem fylgir því að ganga hér
um, horfa í kringum sig og hugsa stoltur: hér á ég eitthvað, hér er stórvirki
sem égá minn þátt í.En þessi leið sem við völdum að fara varð
þessvaldandi að ótrúlegur fjöldi manna
kom hér að verkinu og lagðist á árar sem einn maður við að klára þetta.Ég er ánægður í dag fyrir það að tugir manna
geta nú, eins og ég, gengið hér um og hugsað: þetta gerði ég, hér lagði ég til
minn svita, mína þekkingu, reynslu og tíma. Þetta er hverjum manni góð tilfinning sem sannar máltækið að „betra er
að gefa en þiggja.“
Það hefur
oft barist í tal undanfarna mánuði að mun auðveldara sé að fá fólk til að taka
til hendinni í sjálfboðavinnu.Sú
útskýring sem beinast liggur við er að samheldnin hafi aukist í kreppunni, en
þegar ég hugsa til baka, þá var þetta byrjað hér hjá okkur í Herð löngu fyrir
kreppu.
Ég hef
margoft rekið mig á það, að það sem virðist mótlæti einn daginn leiðir oft til
blessunar annan daginn.Ef allar
tímaáætlanir hefðu staðist, þá hefðum við þurft að fjármagna reiðhöllina með
lánum til 6 ára, það lán hefði verið tekið árið 2007 og numið um 100 millj.
króna.Þá mæltu allir helstu fjármálasnillingarlandsins með lánum í erlendri mynnt.Ég þarf ekki að segja meir, er það? Þið
kunnið að reikna.
Notkun
reiðhallarinnar verður að mestu leiti á vegum æskulýðsnefndar og
fræðslunefndar, en félagar geta keypt sér rafrænan lykil og notað höllina þegar
ekki eru þar formleg námskeið. Vellinum verður tvískipt, þannig að reiðkennsla
getur verið í einum endanum og almennir félagsmenn við æfingar í hinum. Það
verður bannað að fara inn í reiðhöllina með hest án slíks lykils.Sjálfvirkt eftirlitskerfi heldur svo skrá
yfir það hverjir eru í reiðhöllinni hverju sinni.
Það var
frá upphafi markmið okkar og draumur að þjálfun fatlaðra ætti hér góða aðstöðu
og er allt fyrirkomulag hér miðað við að svo verði.Stórar innkeyrsludyr og ríflegt framsvæði hér
framan við reiðvöllinn gefa færi á að keyra inn bíla með fatlaða einstaklinga
og sérstakri lyftu og öðrum búnaði verður komið hér fyrir til að auðvelda
praktísku hlutina.
Fjármögnun
reiðhallarinnar verður ekki lokið fyrr en árið 2012 þegar lokagreiðsla kemur
frá Mosfellsbæ, en þangað til fjármagnar Íslandsbanki dæmið fyrir okkur á bestu
fáanlegu vöxtum.Eins og dæmið lítur út
í dag, þá ná endar saman og allt útlit fyrir að við getum efnt það loforð okkar
frá því fyrir fimm árum, að afhenda reiðhöll til félagsins skuldlausa.Það er nefnilega svo að það hafa allir gefist
upp á því að reka reiðhallir á markaðsgrundvelli, það er einfaldlega ekki
hægt.Þær eru íþróttamannvirki og kennsluhúsnæði
og það þarf að fjármagna byggingu þeirra og rekstur sem slíkan.
Við erum
með söfnun fyrir Barnaspítala Hringsins hér í veislunni undir merkjunum „Hörður
gefur til baka“okkur hefur gengið vel
og viljum gefa gott af okkur til baka. Söfnunarbaukurinn er eldrauður , vel merktur og verður sýnilegur hér í
dag.
Ég vona að
þessi litla saga um stórt hús verði til þess að brýna ykkur kæru vinir til að
láta aldrei bugast þó blási á móti og allt sýnist svart,því fyrst þetta var hægt, þá er allt hægt.
Takk
fyrir og enn og aftur velkomin í Harðarhöllina.
Opnunarhátíð reiðhallar – ræða formanns
Kæru
félagsmenn, alþingismenn, bæjarstjóri, bæjarráð, Íþrótta- og tómstundaráð,
skipulags og byggingarnefnd, Guðni Ágústsson og aðrir hátíðargestir,
Ég vil
bjóða ykkur öll velkomin á þessa hátíðarstund hjá okkur í Hestamannafélaginu
Herði sem markar þau tímamót að nú eigum við glæsilegustu reiðhöll
landsins. Þetta er stórt mannvirki,
stærsta reiðhöllin sem er eingöngu reiðhöll, 80 x 30 metrar, eða 2400 m2 og með
stærsta reiðsvæðinu.
Ég tel
mig hafa grafið upp hvenær fyrst var stungið upp á því að hér yrði byggð
reiðhöll, en það virðist hafa verið gert á stjórnarfundi hér í Herði árið
1995. Þá kom þáverandi varaformaður
félagsins með þá hugmynd að byggja reiðhöll og var að eigin sögn kallaður
hálfvit og vitleysingur að ætla að ríða út inni í húsi. Þrátt fyrir þessa niðurlægingu tók hann þetta
upp á næsta LH þingi, svona sem hugmynd,
það lá við að honum yrð hent út af þinginu.
Einn þingmanna sneri sér þá að honum og sagði honum til huggunar að
allar nýjar góðar hugmyndir tækju tíu ár.
Og það er ekki fjarri lagi.
Árið 1999
var jarðvegurinn þó strax orðinn það jákvæður að stofnuð var byggingarnefnd
Harðar sem skoðaði byggingar og lagði fyrstu drög að reiðhallarbyggingu hér á
svæðinu. Þá voru menn að fikra sig áfram
víðar með reiðhallarbyggingar, en vandamálið var alltaf það sama, hvernig á að
fjármagna slíka byggingu. Það var ekkert
fordæmi um að opinberir aðilar kæmu að slíkri fjármögnun og félögin eru langt
frá því að standa undir slíkum byggingum með þeim tekjustofnum sem þau
hafa. Til að þið fáið hlutina í samhengi
þá kostar þessi reiðhöll svipaða upphæð og öll félagsgjöld félagsins í 150 ár
Það var
svo fyrir um 5 árum síðan að sá hópur manna kom í byggingarnefnd Harðar sem nú
hefur lokið verkinu. Þetta er lítill
hópur manna, 4 til 5 menn, og á þeim hefur megin þunginn legið síðastliðin
5 ár.
Við nutum þess starfs sem áður hafði verið unnið og fundum að nú var
jarðvegurinn góður og meðbyr í seglin. Við gerðum tillögur og buðum
forsvarsmönnum Mosfellsbæjar til fundar, kynntum tillögurnar bænum og landbúnaðarráðherra og útskýrðum
mikilvægi þess að hestaíþróttafélög hefðu afnot af reiðhöll til kennslu og
æfinga. Hestaíþróttin hefði breyst mikið
á undanförnum árum og forsenda þess að við yrðum samkeppnishæf við önnur félög
væri reiðhöll og góðir reiðvellir.
Fjármögnun
tók nokkurn tíma og nokkra fundi, en að lokum varð niðurstaðan sú að
Mosfellsbær með Ragnheiði Ríkarðsdóttir í fararbroddi lagði til 90 millj. til
verksins sem greiðist út á 7 ára tímabili, landbúnaðarráðuneytið með Guðna
Ágústsson í fararbroddi lagði til 25 millj. úr reiðhallarsjóði sem hann hafði
nýlega komið á og hestamannafélagið sjálft 25 millj. sem það hefur staðið við
að fullu og meira en það í formi sjálfboðavinnu, styrkja og afslátta ýmiskonar
frá fyrirtækjum og verktökum.
Með þessa
fjármuni í hendi héldum við af stað og leituðum tilboða í verkið. Við gerðum forsögn og útboðsgögn sjálfir en
ákváðum að bjóða út reiðhöllina í einum pakka, þar með talin hönnun hússins. Lægsta tilboði var tekið, enda var það eina
tilboðið þá sem við réðum við og byrjaði verktakinn fljótlega að láta hanna
húsið og grafa fyrir undirstöðum.
Og þá
byrjuðu tafirnar, ég ætla ekki að rekja þá sorgarsögu hér, en hún tók mjög á
okkur félagana og stóð í vel á annað ár.
En upp
með björtu hliðarnar, um mitt sumar árið 2008 voru komnir upp sökklar sem við
áttum skuldlausa. Eftir að hafa gert upp við fyrsta verktakann, gerðum við nýja
kostnaðaráætlun sem við sniðum að nýjum veruleika þar sem Evran var orðin hærri
en þegar við lögðum af stað og hófum leit að nýjum verktaka.
Og þá
hrundi Ísland og hálfur heimurinn með.
Ég fékk nett sjokk, eiginlega meira vegna reiðhallarinnar en eigin
fyrirtækis og hringdi í Harald bæjarstjóra sem var í sama sjokkinu og ég og eftir
stutt samtal sagði hann: „en Guðjón, við
erum varla að fara að byggja reiðhöll eins og staðan er í dag, er það? „ Ég svaraði: „Jú við erum að fara að gera
það“. Og þá sagði hann: „Allt í lagi, bærinn mun standa við
sitt“. Nánari eftirgrennslan sýndi að
Landbúnaðarráðuneytið var sama sinnis og harðákveðið í að standa við sinn
hluta. Og það sama var um Íslandsbanka sem er að fjármagna reiðhöllina fyrir
okkur.
Í
framhaldi af þessu settumst við niður,
endurskoðuðum allar áætlanir einu sinni enn og fórum á fund nýrra
verktaka. Við ræddum við 4
verktakafyrirtæki og enduðum með því að ljúka samningum við fyrirtæki hér í
bakgarðinum hjá okkur, Hýsi, sem sýnir að oft leitar maður langt yfir skammt. Ástæðan fyrir því að við sömdum á endanum við
Hýsi var ekki af því að þeir eru góðir vinir okkar, nágrannar og frændur, allt
samt góðar og gildar íslenskar ástæður til að ráða menn í vinnu, heldur voru
þeir einfaldlega bæði ódýrastir og þar að auki með snilldar hugmynd sem við
útfærðum síðan með þeim.
Þessi
hugmynd gekk út á að festa gengi krónunnar og taka þar með gengisáhættuna út úr
spilinu. Það var óðs manns æði á þeim
tíma að kaupa hús í útlöndum fyrir tugi milljóna og skuldbinda sig til að
greiða það í evrum eftir 4 mánuði.
Enginn vissi þá hvar evran endaði frekar en nú. Þetta var í stuttu máli
útfært þannig að Íslandsbanki sem er bankinn okkar og Landsbankinn, banki Hýsis
fóru í samstarf. Landsbankinn keypti
evrur með tryggingu frá okkur í gegnum Íslandsbanka sem hann lánaði síðan Hýsi
sem staðgreiddi reiðhöllina erlendis og þar með var gengið sett fast. Á þessum tíma var evran komin í um 180
krónur, hafði hríðfallið á stuttum tíma.
Þá gerðu stjórnvöld eina efnahagstilraunina enn og handstýrðu genginu
niður í 145 til 150 krónur. Það hélt í
um viku tíma og sú vika var notuð til að kaupa evrur. Þetta ásamt því að Hýsir tók á sig alla
vaxtabyrgði á verktímanum varð til þess að við stöndum hér í dag. Og vil ég þakka þeim sérstaklega fyrir þeirra
framlag.
Við
fengum reiðhöllina afhenta um mitt sumar, en þá átti eftir að innrétta
hana. Við endurskoðuðum áætlanir enn
einu sinni og reyndum að aðlaga verkefnið að því fjármagni sem við höfðum,
héldum stjórnarfund, ákváðum að halda
áfram og hétum sjálfum okkur því að
klára höllina á tveimur mánuðum.
Stór hluti verksins var unninn í sjálfboðavinnu,
þar með talið allt þetta vandaða tréverk sem þið sjáið hér sem var gróft
mótatimbur þegar það var keypt.
Heiðurshjón hér í félaginu sem eiga trésmíðaverkstæði lánuðu okkur
aðstöðuna og þar stóðu félagsmenn og hefluðu og smíðuðu dögum saman.
Önnur
heiðurshjón eiga malarnámur sem þau hleyptu okkur í til að fylla í
sökklana. Aðrir hlutir voru unnir á mjög
lágum tilboðum frá félagsmönnum sem reyndar eru allir þektir fyrir að hafa
unnið í sjálfboðavinnu fyrir félagið árum saman. Þessu heiðursfólki sem hefur mætt hér helgi
eftir helgi og kvöld eftir kvöld, nokkrir hafa
meira að segja tekið sér frí frá vinnu dögum saman til að geta unnið
hér, er þakkað alveg sérstaklega.
Ég vil
jafnframt nota tækifærið og þakka öllum
þeim tugum sjálfboðaliða sem starfa hér árin út og árin inn við félagsstörf,
mótahald, veitingarekstur, æskulýðsstörf og öll þau fjölmörgu handtök sem vinna
þarf í félagi sem þessu, enda er félagið ekki með neinn launaðan starfsmann,
sem er eiginlega ótrúlegt þegar horft er til þeirrar miklu starfsemi sem hér
fer fram.
Ég var á
formannafundi hestamannafélagana um daginn og þar voru nokkrir formenn annarra
félaga sem sneru sér að mér og spurðu hvað væri eiginlega að gerast í Herði,
þeir væru að heyra ótrúlegar sögur um staðfestu og vinnusemi Harðarfélaga og
vildu fá uppskriftina til að nota í sínu eigin félagi. Ég sagði þeim auðvitað að þeir ættu ekki
sjens, Harðarfélagar væru einfaldlega miklu öflugri, duglegri, fallegri og
sprækari en aðrir Íslendingar.
Ef
reiðhöllin hefði verið reyst í eðlilegu árferði þá hefðum við verið örfáir
félagarnir sem hefðum notið þeirrar tilfinningar sem fylgir því að ganga hér
um, horfa í kringum sig og hugsa stoltur: hér á ég eitthvað, hér er stórvirki
sem ég á minn þátt í. En þessi leið sem við völdum að fara varð
þess valdandi að ótrúlegur fjöldi manna
kom hér að verkinu og lagðist á árar sem einn maður við að klára þetta. Ég er ánægður í dag fyrir það að tugir manna
geta nú, eins og ég, gengið hér um og hugsað: þetta gerði ég, hér lagði ég til
minn svita, mína þekkingu, reynslu og tíma.
Þetta er hverjum manni góð tilfinning sem sannar máltækið að „betra er
að gefa en þiggja.“
Það hefur
oft barist í tal undanfarna mánuði að mun auðveldara sé að fá fólk til að taka
til hendinni í sjálfboðavinnu. Sú
útskýring sem beinast liggur við er að samheldnin hafi aukist í kreppunni, en
þegar ég hugsa til baka, þá var þetta byrjað hér hjá okkur í Herð löngu fyrir
kreppu.
Ég hef
margoft rekið mig á það, að það sem virðist mótlæti einn daginn leiðir oft til
blessunar annan daginn. Ef allar
tímaáætlanir hefðu staðist, þá hefðum við þurft að fjármagna reiðhöllina með
lánum til 6 ára, það lán hefði verið tekið árið 2007 og numið um 100 millj.
króna. Þá mæltu allir helstu fjármálasnillingar landsins með lánum í erlendri mynnt. Ég þarf ekki að segja meir, er það? Þið
kunnið að reikna.
Notkun
reiðhallarinnar verður að mestu leiti á vegum æskulýðsnefndar og
fræðslunefndar, en félagar geta keypt sér rafrænan lykil og notað höllina þegar
ekki eru þar formleg námskeið. Vellinum verður tvískipt, þannig að reiðkennsla
getur verið í einum endanum og almennir félagsmenn við æfingar í hinum. Það
verður bannað að fara inn í reiðhöllina með hest án slíks lykils. Sjálfvirkt eftirlitskerfi heldur svo skrá
yfir það hverjir eru í reiðhöllinni hverju sinni.
Það var
frá upphafi markmið okkar og draumur að þjálfun fatlaðra ætti hér góða aðstöðu
og er allt fyrirkomulag hér miðað við að svo verði. Stórar innkeyrsludyr og ríflegt framsvæði hér
framan við reiðvöllinn gefa færi á að keyra inn bíla með fatlaða einstaklinga
og sérstakri lyftu og öðrum búnaði verður komið hér fyrir til að auðvelda
praktísku hlutina.
Fjármögnun
reiðhallarinnar verður ekki lokið fyrr en árið 2012 þegar lokagreiðsla kemur
frá Mosfellsbæ, en þangað til fjármagnar Íslandsbanki dæmið fyrir okkur á bestu
fáanlegu vöxtum. Eins og dæmið lítur út
í dag, þá ná endar saman og allt útlit fyrir að við getum efnt það loforð okkar
frá því fyrir fimm árum, að afhenda reiðhöll til félagsins skuldlausa. Það er nefnilega svo að það hafa allir gefist
upp á því að reka reiðhallir á markaðsgrundvelli, það er einfaldlega ekki
hægt. Þær eru íþróttamannvirki og kennsluhúsnæði
og það þarf að fjármagna byggingu þeirra og rekstur sem slíkan.
Við erum
með söfnun fyrir Barnaspítala Hringsins hér í veislunni undir merkjunum „Hörður
gefur til baka“ okkur hefur gengið vel
og viljum gefa gott af okkur til baka.
Söfnunarbaukurinn er eldrauður , vel merktur og verður sýnilegur hér í
dag.
Ég vona að
þessi litla saga um stórt hús verði til þess að brýna ykkur kæru vinir til að
láta aldrei bugast þó blási á móti og allt sýnist svart, því fyrst þetta var hægt, þá er allt hægt.
Takk
fyrir og enn og aftur velkomin í Harðarhöllina.
Nýjustu fréttir
Fréttaflokkar
Fréttasafn