Hestamannafélagið Hörður · Mosfellsbær 864 7753 hordur@hordur.is

Æfingar hjá Brokkkórnum

9. september 2009 Hestamannafélagið Hörður Comments Off

Þriðjudaginn 15. september n.k hefjast æfingar hjá Brokkkórnum
að nýju í Fáksheimilinu. Við bjóðum söngáhugafólk úr röðum hestamanna velkomið
í hópinn. Ekki síst vantar okkur öflugar karlaraddir. Framundan er spennandi vetur
með söng og glensi í bland við reiðtúra og aðra skemmtun. Við stjórnvölinn er
hinn víðkunni tónlistarmaður Magnús Kjartansson og um raddæfingar sér Gróa
Hreinsdóttir. Æfingar verða alla þriðjudaga kl. 20 og annan hvern fimmtudag
verða raddæfingar. Heimasíða kórsins er www.123.is/brokk
og við erum líka sem hópur á Facebook.

Sjáumst hress, stjórnin.