Vorið á næsta leiti

Vorið á næsta leiti 
Þá er vorið farið að láta á sér kræla þótt veturkonungur hafi sent okkur smá kveðju í dag. 
Beitarnefnd Harðar vill því hvetja alla þá sem hafa hugsað sér að sækja um beit hjá félaginu að fara að senda okkur umsókn hér á heimasíðu félagsins. Við bendum einnig á að þeir sem hafa haft beit hjá félaginu þurfa líka að sækja um. Sækja þarf um á hverju ári sama hvort menn hafa haft beit eður ei.
Þá vill nefndin benda á að ætlast er til þess að hross í beit hjá félaginu eiga að vera ábyrgðartryggð og því mikilvægt að fólk hugi að því í tíma. 
Segja má að nauðsynlegt sé að hafa hross sem staðsett eru á höfuðborgarsvæðinu með slíkri trygging burtséð frá því hvort þau séu á beitarhólfi á vegum Harðar eða ekki.
Þá minnum við á að þeir sem hafa varðveitt poka undan áburðinum sem úthlutað er með beitinni að hafa þá tilbúna þegar áburðarafhending verður auglýst. Félagið hefur lagt til poka en nú sem fyrr rekum við stranga umhverfisstefnu og reynum að nýta plastið eins oft og vel og mögulegt er. Þeir sem ekki hafa poka ættu að nýta poka undan fóðurbæti undir áburðinn.
 
Með vorkveðju frá Beitarnefnd