Lausaganga hunda í hesthúsahverfinu

Að gefnu tilefni viljum við minna á að lausaganga hunda er bönnuð í hesthúsahverfinu og á reiðvegum í Mosfellsbæ, eins og annarsstaðar í sveitafélaginu.  Það hefur oft legið við slysum á fólki þegar lausir hundar hlaupa að hestum og fæla þá.  Við viljum einnig vekja athygli á því að nokkur nýleg tilfelli eru um hunda sem hafa slasast mjög alvarlega eftir að hestur sparkar í þá.  Sem sagt hundar eru velkomnir í hesthúsahverfið, en í bandi !

Kveðja stjórnin