Kirkjureið og Kirkjukaffi

Kæru félagsmenn,

Þó hósti og nefrennsli herji á okkur þessa dagana þá kvetjum við alla til að mæta í Mosfellskirkju í hátíðarmessu á morgun sunnudag kl. 14.00.  Þetta verður sérstaklega hátíðlegt í ár þar sem einn efnilegasti yngri knapinn okkar, hún Súsanna Katarína verður fermd í messunni.   Þeir sem ekki eru ríðandi í bili mæta bara á bílnum í messuna og svo í kaffið í Harðarbóli á eftir.  Veitingar eru í boði stjórnar, kvennadeildar Harðar og Gumma og Súsönnu foreldra fermingarbarnsins. 

Fyrir þá sem komast ríðandi, þá verður farið frá Naflanum kl. 13.00

Við vonumst  til að sjá sem flesta,

Kveðja, Guðjón formaður