Hóstinn, hvað gerum við um helgina

Kæru félagar

Nú er að koma helgi og eru tveir viðburðir á vegum hestamannafélagsins, fjárborgarreiðin á laugardag og kirkjureiðin á sunnudag.  Og þá er spurningin, í ljósi þeirrar óvissu sem ríkir vegna veikinnar, hvort við eigum að hætta við þessa viðburði.

Í tilefni af þessu átti ég samtal við Gunnar héraðsdýralækninn okkar og var niðurstaðan úr því samtali að hætta ekki  við viðburðina að öllu óbreyttu, en brýna fyrir fólki að fara ekki á hestum sem sýna minnstu einkenni veikinnar, þ.e. hor eða merki um hortauma í nös, hósti, slappleiki, hiti eða einkenni um vanlíðan í reið. Hestar hafa mælst með hita þó önnur einkenni sjáist ekki, en auðvelt er að mæla hesta, hitastigið á að vera milli 37 og 38 gr, eða svipað og í okkur mannfólkinu.

Ég get sagt fyrir mitt leiti að allir 8 hestarnir í okkar húsi hafa sýkst, en þó hafa ekki nema 2 hóstað lítillega. Þegar við urðum vör við fyrstu einkennin, smá hortaumar, þá settum við teppi á hestana til að byrja með og hvíldum þá alla í viku tíma.  Tveir hestana voru einkennalausir eftir tæpa viku og fórum við þá að þjálfa þá varlega. Þeim hefur ekki slegið niður (ekki ennþá allavega), og í morgun sá ég engin einkenni í okkar hestum lengur, en það er komið á 3 viku síðan þeir veiktust.  Ég hef heyrt fleiri áþekk dæmi, þannig að lykillinn að þessu virðist vera sá að gefa hestunum frí um leið og fyrstu einkenni sýkingar sjást.

Hér verður því hver og einn að meta sína hesta fyrir sig, og ef einhver vafi er á, þá láta dýralækni skoða hestinn áður en lagt er af stað.  Þeir sem ekki eru ríðandi mæta að sjálfsögðu í kirkjureið á bíl og í kaffið á eftir, látum þetta ekki skemma stemninguna meira en nauðsynlegt er.

Kveðja, Guðjón