Undirbúningur fyrir knapa sem fara fyrir Hörð á Landsmót á Hólum!
- Nánar
- Flokkur: Fréttir
- Skrifað þann Laugardagur, júní 20 2026 21:52
- Skrifað af Sonja
Á mánudaginn næstkomandi 22.júní mun hefjast námskeið sem er hugsað sem undirbúningur fyrir Landsmót! Námskeiðið er einungis ætlað knöpum sem fara fyrir hestamannafélagið Hörð á Landsmót bæði í yngri og eldri flokkum sem og varaknapa!
Námskeiðið samanstendur af tveimur 30 mínútna einkatímum, æfingarennsli út á velli og aðstoð á æfingum fyrir norðan þegar þangað er komið!
Einkatímarnir verða annars vegar út á velli og hins vegar inn í gerði/reiðhöll eftir veðri. Þar er lagt áherslu á einstaklingsmiðaða kennslu með þjálfun og undirbúning fyrir Landsmót að leiðarljósi.
Æfingarennslið er hugsað þannig að riðin verði sérstök forkeppni líkt og á landsmóti og fá knapar þá æfingu og punkta í kjölfarið.
Þegar komið er norður verður kennari til taks á æfingatímunum sem getur leiðbeint knöpum og fylgt þeim alla leið í ferlinu.
Skráning er hafin inn á abler.io/shop/hfhordur og stendur til hádegis mánudaginn 22.júní
Tímasetningar verða birtar í kjölfar skráningafrests um 13:00 inn á abler og því mikilvægt að knapar fylgist vel með í appinu!
Ef það eru óskir um sérstakar tímasetningar er mikilvægt að setja það í athugasemd eða senda skilaboð á Thelmu Rut.
Kennari námskeiðsins er Fredrica Fagerlund
Verð: 18.000kr
Dagsetningar eru eftirfarandi:
22.júní – Þjálfunarstund inn í reiðhöll/Gerði (Stóra höll/Hvíta gerði)
17:00-22:00
24.júní – Einkatímar á vellinum (Stóri völlur)
17:00-22:00
29.júní – Æfingarennsli Sérstök forkeppni (Stóri völlur)
17:00-19:00
Fyrir norðan
Félagið mun raða niður á æfingatíma svo tímar með aðstoð geta raðast niður á eitthvað af eftirfarandi tímum sem verður auglýst þegar nær dregur
2.júlí – Æfing á vellinum (Hólar)
17:00-18:00
3.júlí – Æfing á vellinum (Hólar)
11:00-12:00
4.júlí – Æfing á vellinum (Hólar)
22:00-23:00
Tímasetningar eru með fyrirvara um skráningu 🙂