Landsmótsúrtaka Harðar

Fyrri úrtaka var haldin 9. og 10.6. og svo Gæðingamót Harðar og seinni Landsmótsúrtaka helgina 13-14.júni.
Gæðingamótið fór vel fram, það var æðislegt veður og var fullt af flottum hestum og knöpum sem mættu til leiks.
Fyrri úrtakan fékk aðeins síðra veður en margir áttu samt mjög góðar sýningar.

Við munum senda út hverjir eiga rétt á sæti á Landsmóti frá hestamannafélaginu Herði á næstu dögum þegar farið hefur verið yfir allar niðurstöður úr úrtökum.
Hörður á 6 sæti í hverjum flokki utan A-flokks ungmenna og B-flokks áhugamanna þar sem félagið á 3 sæti.