Sleppa á beit
- Nánar
- Flokkur: Fréttir
- Skrifað þann Þriðjudagur, júní 09 2026 11:25
- Skrifað af Sonja
Heimilt er að sleppa hrossum í beitarhólf á vegum félagsins föstudaginn 12. júní næstkomandi.
Notendur beitarhólfa skulu gæta að því að fara varlega með hólf þar sem spretta er skammt á veg komin, ekki randbeita til dæmis, taka hross inn hluta sólarhrings eða jafnvel gefa hey með.
Það er nokkuð misjafnt ástand á hólfum og mikilvægt að meta í hverju tilfelli.
Það er Mosfellsbær sem ákveður hvenær má sleppa hrossum á beit, það miðast við að sem flest hólf séu orðin vel hæf til beitar. Það er svo lagt í hendur beitarhafa að meta ástand einstakra hólfa og að hver og einn sýni skynsemi og fari vel með hólf sem viðkomandi hefur til umráða.
Allir gæta þess nú sem áður að hafa nóg rafmagn á girðingum enda er það eitt af skilyrðum þess að fá úthlutað beit.
Vaktaplanið varðandi að fanga laus hross er líka komið í gildi, því sinna þeir sem fá beit og það er annað skilyrði þess að fá beit.
Vaktaplanið er sett inn á Harðarfólk hópinn, skilað til lögreglu og Mosfellsbæjar.