Eigendur stóðhesta á félagssvæði Harðar athugið!
- Nánar
- Flokkur: Fréttir
- Skrifað þann Þriðjudagur, júní 09 2026 09:28
- Skrifað af Sonja
Stjórn félagsins hafa borist ítrekað kvartanir yfir tillitsleysi þeirra sem halda stóðhesta á svæðinu varðandi veru þeirra í gerðum á milli húsa. Það sé ónæði af þeim og erfitt að setja önnur hross út á meðan stóðhestar eru í gerðum, jafnvel eftirlitslausir tímum saman. Þetta er á sérstaklega við á vordögum þegar stóðhestar fara gjarnan að láta ófriðlega.
Stjórn beinir þeim tilmælum til þeirra sem málið varðar að huga að stóðhestum sínum þannig að þeir valdi ekki öðrum ónæði og hafa samráð við nágranna vegna viðrunar þessara hesta. Það er almenn tillitssemi sem er okkur öllum nauðsynleg í samfélagi á Harðarsvæðinu.
Með von um góð viðbrögð,
Stjórn Harðar.