Gæðingamót Harðar 2026 og seinni úrtaka fyrir Landsmót - 12-14 Júní.
- Nánar
- Flokkur: Fréttir
- Skrifað þann Föstudagur, júní 05 2026 20:22
- Skrifað af Sonja
Gæðingamót Harðar 2026 sem er um leið úrtaka fyrir Landsmót verður haldið helgina 12-14 Júní.
Hörður sendir fyrir sína hönd 6 hesta í hverjum flokk og 3 hesta í áhugamannaflokk og A-flokk ungmenna.
Aðeins er tekið við skráningum hesta í eigu skuldlausra félagsmanna.
Keppt verður í.
-A flokk
- B flokk
- B flokk áhugamanna
- A flokk ungmenna
- Ungmennaflokk
- Unglingaflokk
- Barnaflokk
Á mótinu verður einnig keppt í
- Gæðingaflokkur 2 A flokkur (áhugamenn)
- Gæðingatölt Fullorðinsflokkur 17 ára +
- Gæðingatölt Unglingaflokkur yngri en 17 ára
- Pollaflokkur (skráning á messenger Mótanefndar Harðar)
Einnig verður glæsilegasta par Harðar valið þar að segja hestur og knapi til að hljóta þau verðlaun þarf knapi að keppa í félagsbúning Harðar og á hrossi í eigu Harðarfélaga.
Skráningar fara í gegnum Sportfeng.
Skráningu byrjar 29.05. og lýkur sunnudagskvöldið 07.06 kl 24.
Einungis verður tekið við afskráningum í gegnum messenger á facebook síðu mótanefndar Harðar.
Unghrossakeppni Harðar er ein vinsælasta greinin á hverju vori hjá Harðarfélögum en þar etja kappi 4 og 5 vetra unghross (fædd 2021 og 2022) (skráning á messenger Mótanefndar Harðar)
-Nafn á hrossi
-Aldur
-Knapi
-Eigandi / Ræktandi
-Litur
-Foreldrar
-Smá lýsing á hrossi (ekki nauðsynlegt)
Skráning á sportfengur.com