Fyrri úrtaka Harðar
- Nánar
- Flokkur: Fréttir
- Skrifað þann Föstudagur, júní 05 2026 20:21
- Skrifað af Sonja
Fyrri úrtaka Harðar fer fram Þriðjudaginn 09. Júní og Miðvikudaginn 10. Júní hún gildir inná Landsmót en ekki í úrslit.
Hörður sendir fyrir sína hönd 6 hesta í hverjum flokk (nema áhugamannaflokk og A-flokk ungmenna: 3 hesta).
Aðeins er tekið við skráningum hesta í eigu skuldlausra félagsmanna.
Keppt verður í:
-A flokk
-B flokk
-B flokk áhugamanna
- A flokk ungmenna
- Ungmennaflokk
- Unglingaflokk
- Barnaflokk
Skráningar fara í gegnum Sportfengur.com
Skráningu lýkur sunnudagskvöldið 07.06 kl. 24
Einungis verður tekið við afskráningum í gegnum messenger á Facebook síðu Mótanefndar Harðar.
Drög af dagskrá:
09.06.26: Barnaflokkur, Unglingaflokkur og Áhugamannaflokkur
10.06.26: Ungmennaflokkur, A-Flokkur Ungmenna, B-Flokkur og A-Flokkur
Skráning í sportfengur.com