Gæðingakeppni – Æfingamót!
- Nánar
- Flokkur: Fréttir
- Skrifað þann Mánudagur, maí 25 2026 20:25
- Skrifað af Sonja
Fimmtudaginn næst komandi er stefnan sett að halda æfingamót í gæðingakeppni fyrir keppnishópinn okkar. Þar sem við verðum með tvo gæðingadómara og ritara á staðnum vildum við bjóða upp á auka pláss ef einhverjir félagsmenn vilja nýta sér að fá tölur og umsögn fyrir prógramið sitt!
Einungis 10 pláss verða laus og því er um að gera að hafa hraðar hendur! Skráning hefst í kvöld, mánudag klukkan 20:00!
Knapar skrá sig og ráslistar og aðrar upplýsingar verða birtar á abler. Fyrirkomulagið er að þetta verður riðið eins og gæðingakeppni, knapar hita upp og eru svo kallaðir inn á völlinn og ríða sitt prógram. Að keppni lokinni fá þeir sendar einkunnir og umsögn fyrir sýninguna. Þetta er því frábært tækifæri fyrir þá sem stefna á úrtöku fyrir landsmót eða ætla að taka þátt í gæðingamótinu okkar í byrjun júní!
Mótið hefst klukkan 17:00!
Verð er 2500kr
Skráning inn á abler.io/shop/hfhordur