Reiðmaðurinn I í Mosfellsbæ
- Nánar
- Flokkur: Fréttir
- Skrifað þann Þriðjudagur, maí 12 2026 21:34
- Skrifað af Sonja
Snorri Dal reiðkennari mun kenna reiðmaðurinn I í Mosfellsbæ í
vetur. Snorri er menntaður reiðkennari frá Háskólinn á Hólum og
hefur starfað við hestamennsku til fjölda ára. Hann hefur um
árabili rekið hestatengt fyrirtæki með fjölskyldu sinni hjá
Hestamannafélaginu Sörla í Hafnafirði og býr yfir víðtækri
reynslu sem hann nýtir markvisst í kennslunni.
Snorri á einnig að baki farsælan feril á keppnisbrautinni. Þar má
meðal má nefna sigur í B-flokki og 150 metra skeiði á Landsmót
hestamanna, tvo Íslandsmeistaratitla í fjórgangi V1 og þátttöku í
úrslitum á bæði heimsmeistara- og Norðurlandamóti._
„Farðu í Reiðmanninn - þú sérð aldrei eftir því."__
Sigurður Ingi Bjarnason var í reiðmannshóp hjá Snorra Dal
síðastliðin vetur. Sigurður og Birna voru fengin í viðtal í
Mannlega þáttinn á Rás 1 þar sem Sigurður lýsti reynslu sinni af
náminu.
Sterkur grunnur fyrir alla knapa
Sigurður segir að námið höfði ekki aðeins til þeirra sem hafi
langa reynslu.
_„Það snýst ekki endilega um hvort maður hafi mikinn grunn eða
sé bara venjulegur reiðmaður," segir hann og bendir á að skipulag
og utanumhald námsins skipti miklu máli.
„Þú temur sjálfan þig sem knapa"_Hann kemur inn á að nemandinn sé í raun að vinna með sjálfan sig
sem knapa.
_„Þú mætir ekki þarna til að temja hestinn - þú mætir til að
temja sjálfan þig sem knapa," segir hann.__ _Skipulag, utanumhald og markviss framvindaHann lýsir náminu sem vel uppbyggðu og markvissu.
_„Það sem er svo gott við Reiðmanninn er þetta skipulagða
utanumhald. Maður fylgir námskrá, vinnur verkefni og fer í
stöðumat," segir Sigurður.__ _Fræðsla, reynsla og dýpri skilningurAð hans mati skiptir fræðslan og kennslan í hestamennsku einnig
miklu máli.
_„Það er mikilvægt að þeir sem kunna lítið í umhirðu hesta
fari í nám eða fái kennslu. Það er betra fyrir alla - bæði fólk
og hesta," segir hann._Fjölbreytt nám og sterkt samfélag.Sigurður segir jafnframt að námið sé bæði skemmtilegt og
félagslega gefandi.
„Það myndast sterk tengsl í hópnum og úr verður ákveðin
liðsheild," segir hann.Að lokum hvetur hann áhugasama til að slá til:
_„Farðu í Reiðmanninn - þú sérð aldrei eftir því."
Sigurður og Guðný Katla Guðmundsdóttir unnusta hans hafa stundað
reiðmannsnámið saman undanfarin ár. Katla eins og hún er oftast
kölluð hlaut hæstu samanlagða einkunn í 2. flokk á hesti sínum
Mansa frá Reykjanesi á nýafstöðnu reiðmannsmóti sem haldið var
í glæsilegri aðstöðu Landbúnaðarháskólans á Mið-Fossum í
Borgarfirði. Þau voru bæði að ljúka þriðja árinu í
reiðmannsnáminu, sá hluti námsins einstaklingsmiðaður og lýkur
einmitt með þátttöku á reiðmannsmótinu. Sigurður og Katla
stóðu sig bæði með sóma og komust bæði í úrslit á mótinu.