Firmakeppni 1.Mai 2026
- Nánar
- Flokkur: Fréttir
- Skrifað þann Mánudagur, apríl 27 2026 12:00
- Skrifað af Sonja
Nú er komið að hinni árlegu Firmakeppni Harðar og fer mótið fram núna á föstudaginn 1.Maí og hefst klukkan 13:00
Mótið verður með firmasniði á skeiðbrautinni, sem sagt fjórar umferðir á hest, hægt tölt að reiðhöllinni og yfirferðargangur (frjáls gangtegund) frá reiðhöllinni aftur.
En pollaflokkur og barnaflokkur fara fram á hringvelli.
Flokkarnir sem verða í boði eru:
- Pollaflokkur (inni á hringvelli)
- Barnaflokkur (inni á hringvelli)
- Unglingaflokkur
- Ungmennaflokkur
- 3. flokkur
- 2. flokkur
- 1. flokkur
- Heldri menn og konur (60+)
Skráning fer fram í anddyri reiðhallarinnar á mótsdegi milli 11 og 12.
Kveðja,
Mótanefnd