Framhald!
- Nánar
- Flokkur: Fréttir
- Skrifað þann Fimmtudagur, apríl 09 2026 20:09
- Skrifað af Sonja
Námskeið fyrir börn og polla undir 12 ára!
Almennt reiðnámskeið fyrir polla og börn þar sem markmiðið er að bæta jafnvægi og grunnstjórnun í gegnum ýmsa leiki og þrautir. Hjá minna vönum pollum sem eru að stíga sín fyrstu skref í hestamennsku eru foreldrar með og teyma undir börnunum. Hjá meira vönu pollunum er markmiðið að fara dýpra samspil hests og knapa og ná meiri tökum á undirstöðu atriðum í reiðmennsku í gegnum ýmsar skemmtilegar æfingar.
Námskeið fyrir áhugasama krakka sem vilja öðlast meira jafnvægi, skilning og þekkingu á almennri þjálfun hesta. Farið verður yfir ýmis öryggisatriði og umgengni við hestinn, hvernig á að ná betri stjórn og samspili við hestinn og lögð áhersla á yfirvegaðar og léttar ábendingar. Í lok þessa námskeiðs ættu nemendur að vera komnir með grunnskilning í reiðmennsku, þekkja helstu gangtegundir og hvernig þjálfun getur verið skemmtileg bæði fyrir hest og knapa.
Námskeiðið er fjögur skipti og er kennt í Blíðubakkahöll og úti í hvíta gerði ef veður leyfir. Kennt er einu sinni í viku á fimmtudögum og krakkar mæta með eigin hest og búnað. Hefst 16.apríl!
Hóparnir eru eftirfarandi:
Pollar teymdir
Pollar ríða sjálfir
Börn
Kennari raðar í hópa eftir skráningu!
Kennari: Sóllilja Baltasarsdóttir
Apríl: 16. / 30.
Maí: 7. / 21.
Skráning inn á abler.io/shop/hfhordur
Verð pollar: 2500kr
Verð börn : 5000kr
