Lokuð höll vegna æfingar Meistaradeild æskunnar og ungmenna
- Nánar
- Flokkur: Fréttir
- Skrifað þann Mánudagur, febrúar 23 2026 08:53
- Skrifað af Sonja
Keppni í gæðingalist Meistaradeildar æskunnar verður haldin í Herði sunnudaginn 8.3.
Hvert lið fær 1 klukkutíma aðgang í alla höllina (höllin lokuð á meðan) til æfinga fyrir mótið.
Einnig verður Meistaradeild Ungmenna í höllinni okkar, föstudaginn 13.3. Þar er fyrirkomulagið eins, hvert lið fæ 1klst fyrir sig inni höllinni og höllinn lokuð á meðan.
Nú erum við búin að bóka langflest alla þessa tíma og því biðjum við alla að skoða vel dagatal reiðhallirnar á hordur.is. Fjólublái liturinn stendur fyrir að höllinn sé alveg lokuð.
Flestir tímar verða um kvöldin og byrjar þetta núna á laugardagskvöldið.
Mjög spennandi að fá þessu flott mót hingað í höllina okkar og vonum við að se flesta nýta sér þetta og mæta og horfa á.
Eigið góðan dag!
https://www.mdeild.is/dagskrain
Meistaradeild TopReiter og Ungmenna verður haldin í sjötta sinn | Eidfaxi.is