Helgarnámskeið í Gæðingalist með Fredricu Fagerlund!

Helgina 28.febrúar-1.mars verður haldið helgarnámskeið í gæðingalist með Fredricu Fagerlund.
Farið verður á persónumiðaðan hátt yfir ýmis atriði sem hvað varðar þjálfun fyrir keppni í gæðingalist!


Sjálf er Fredrica engin nýliði þegar kemur að greininni og hefur keppt í henni með góðum árangri! Námskeiðið hentar öllum sem hafa áhuga á að byggja sinn hest upp á kerfisbundin hátt í gegnum fjölbreyttar æfingar og flæði hvort sem það er stefnt á þátttöku í keppni eða til að bæta sinn reiðhest.

Inn í námskeiðinu eru tveir 45 mínútna einkatímar á sunnudegi og laugardegi. Einungis 9 pláss eru laus á þetta námskeið og því um að gera að hafa hraðar hendur!

Skráning opnar sunnudaginn 15.febrúar klukkan 20:00 inn á abler.io/shop/hfhordur.  Skráning lokar á miðnætti miðvikudaginn 25.febrúar.

Aldurstakmark á þetta námskeið miðast við 12 ára á árinu.

Verð: 19.500kr

GL_með_F.png