Fatamátun á sunnudaginn
- Nánar
- Flokkur: Fréttir
- Skrifað þann Fimmtudagur, janúar 22 2026 12:20
- Skrifað af Sonja
Í samstarfi við hestavöru- og reiðfataframleiðandann Hrímni, bjóðum við upp á að panta sérframleiddan fatnað merktan Herði.
Sunnudaginn 25.janúar bjóðum við upp á mátunardag í Harðarbóli frá kl. 11 til 13, en þá koma fulltrúar Hrímnis með allar stærðir af fatnaðnum svo hægt sé að velja rétta stærð.
Við bjóðum félagsmönnum að greiða aðeins helming við pöntun og restina við afhendingu í maí.
Hvetjum við alla félagsmenn að nýta tækifærið til að fá sér vandaðan fatnað á sérkjörum.
Við mætum svo öll á Landsmót í sumar vel merkt okkar félagi og styðjum okkar fólk ;-)






