Skýrsla stjórnar 2025
- Nánar
- Flokkur: Fréttir
- Skrifað þann Þriðjudagur, nóvember 04 2025 14:22
- Skrifað af Sonja
Stjórn hestamannafélagsins Harðar:
Formaður:
Jón Geir Sigurbjörnsson Kjörinn 2024
Aðalstjórn:
Anna Lísa Guðmundsdóttir Kjörin 2023
Ingibjörg Ásta Guðmundsdóttir Kjörin 2023
Einar Franz Kjörinn 2023
Berghildur Ásdís Stefánsdóttir Kjörin 2023
Margrét Dögg Halldórsdóttir Kjörin 2024
Hermann Jónsson Kjörinn 2024
Ragnhildur B. Traustadóttir Kjörin 2024
Ragnheiður Þorvaldsdóttir Kjörin 2024
Áheyrnarfulltrúi:
Kristján Arason
Skoðunarmenn reikninga:
Sveinfríður Ólafsdóttir
Þröstur Karlsson
Starfið
Hestamannafélagið Hörður telur í dag rétt tæplega 600 félagsmenn.
Félagið stendur vel fjárhagslega og er rekstur í nokkuð föstum skorðum. Íþróttafélag er ekki fyrirtæki og það koma margir að svona rekstri. Stjórn er samstíga og hefur samstarfið gengið vel á liðnu starfsári
Að venju fundaði stjórn mánaðarlega og fór yfir mál félagsins og hugmyndir að áframhaldandi starfi. Nefndir starfa mjög sjálfstætt og hafa flestar verið virkari nú en oft áður, enda gaman að starfa í nefnd og hafa áhrif á það sem gerist í félaginu.
Starfsmenn félagsins á árinu voru sem fyrr Rúnar Geir Sigurpálsson framkvæmdastjóri í 50 % starfi, hann sér m.a. um reiðhöllina, hringvellina og allar framkvæmdir á vegum félagsins.
Sonja Noack einnig í 50 % starfi, hún sér um samskipti við nefndir, skráningar í Sportabler, útleigu á reiðhöllinni, sendir út reikninga, skilar skýrslum og sinnir dags daglegum skrifstofustörfum o.fl.
Thelma Rut Davíðsdóttir starfar sem yfirreiðkennari félagsins og tók við því starfi síðast liðið haust. Sinnir hún skipulagningu reiðnáms á vegum félagsins og ber ábyrgð á uppbyggingu þess.
Guðrún Magnúsdóttir sér enn um útleigu á Harðarbóli og starfar við veislur þar og þrif að auki. Grettir Börkur Guðmundsson kom svo inn í einstök verkefni til aðstoðar Rúnari, bæði við endurbætur á keppnisvöllunum og annað tilfallandi viðhald.
Eins og áður var töluvert fundað með stjórnendum og starfsmönnum Mosfellsbæjar en einnig send formleg erindi til bæjarráðs til að vinna stærri mál og koma þeim formlega á dagskrá.
Þar ber helst að nefna.
Áform um stækkun golfvallar á Blikastaðarnesi.
Félagið sendi inn greinargóða umsögn um tillögu að skipulagslýsingu vegna stækkunar austurhluta Hlíðarvalla. Þar var aukin hætta á reiðvegi greind samhliða þessu breytingum, þar sem bæði nálægð og aukin umferð yfir og í námunda við reiðveginn breytist við þessa stækkun. Síðan hafa verið haldnir nokkrir fundir með bænum þar sem við höfum áréttað kröfur okkar um að öryggi reiðmanna sé tryggt og gæði reiðleiðarinnar séu ekki rýrð. Þessir fundir hafa verið teknir með starfsmönnum bæjarins og einn fundur sem bæði bæjarstarfsmenn og talsmenn golfklúbbsins sátu. Það var von okkar að þetta myndi skila sér í breyttum tillögum í útfærslu á reiðleið um þessa stækkun golfvallarins.
Nú í október vorum við svo boðuð á fund með bæjarstjóra, sviðsstjóra umhverfissviðs, skipulagsfulltrúa bæjarins, formanns skipulagsnefndar og sviðsstjóra menningar-, íþrótta- og lýðheilsumála. Þar var okkur kynnt sú tillaga sem leggja á fram til breytingar á aðalskipulagi. Okkur til mikilla vonbrigða er sú tillaga sem þar liggur fyrir, nánast sú sama og kynnt var í upphafi, með lítils háttar breytingum. Enn er nálægð við reiðleið of mikil að okkar mati og ekki hefur verið tekið tillit til þeirra sjónarmiða sem við höfum borið á borð.
Formaður hefur því óskað eftir fundi með oddvitum allra flokka í bæjarstjórn til að fara yfir málið og árétta þau sjónarmið sem við höfum haldið á lofti allt frá því að málið var kynnt okkur fyrst.
Við munum því halda áfram að vinna í að halda okkar sjónarmiðum á lofti og tryggja að þau komi skýrt til skila til allra sem að þessu máli koma hjá bænum.
Jafnframt sátu formaður félagsins og formaður reiðveganefndar í starfshópi um reiðvegi í Mosfellsbæ með starfmönnum bæjarins og verður farið yfir það hér síðar í skýrslunni.
Samstarfssamningur félagsins við Mosfellsbæ var endurnýjaður og undirritaður á vordögum og er hann í samræmi við samninga við önnur íþróttafélög í bæjarfélaginu og við síðustu samninga.
Vetrarstarfið var með hefðbundnu sniði og nokkuð öflugt, námskeið hófust strax fyrir áramót og fjölgaði svo jafnt og þétt yfir veturinn. Vetrarmótin með hefðbundnu sniði og áframhald á æfingamótum (tölumótum) þar sem ekki eru riðin úrslit og knapar fá skriflega umsögn dómara.
Á gamlársdag var að venju riðið í Varmadal þar sem húsráðendur tóku vel á móti okkur, nú i nýrri glæsilegri skemmu, ekki væsti um Harðarfólk þar. Þessi reið er frábærlega skemmtileg hefð sem við höldum á lofti.
Kótilettukvöldið góða var haldið í janúar og var mjög vel sótt, árshátíðin í mars var einnig vel sótt og félagsmenn skemmtu sér konunglega.
Íþróttakona og íþróttakarl Harðar 2024 voru þau Tara Lovísa Karlsdóttir og Benedikt Ólafsson. En þau náðu bæði góðum árangri árið 2024.
Kvennareiðarnefndin blómstraði sem áður, margar skemmtilegar uppákomur og reiðtúrar á árinu. Hnakkakynning, stuttir reiðtúrar úr hverfinu og reiðtúr um Þingvelli voru á boðstólnum í ár.
Kynbótanefnd heiðraði hæst dæmdu kynbótahross í eigu félagsmanna og stóð fyrir bæði fyrirlestri um kynbótadóma síðasta árs auk sérleg vel heppnaðri kynbótarferð í febrúar. En þá voru 3 hrossaræktarbú heimsótt á Suðurlandi, Margrétarhof, Skeiðvellir og Sumarliðabær, veðrið lék við okkur og mikil ánægja var með ferðina.
Í vor var hreinsunardagur á sínum stað, einstaklega vel mætt í hann.
Ferðnefndin stóð fyrir 4 viðburðum á síðasta starfári, þar er fyrst að nefnda hin hefðbundnu Fáksreið og móttöku Fáksfélaga til okkar í Herði. Náttúrureið, en að þessu sinni var riðið í Helgadal. Síðan stóð nefndin fyrir vel sóttri 4 daga Kjósareið, hátt í 30 knapar og 50 hross fóru í þá ferð. Í fyrsta legg var riðið úr hverfinu og að Skrauthólum á Kjalarnesi, annar leggur var frá Skrauthólum að Miðdal, þriðji leggur frá Miðdal að Hrosshóli í Kjós og í fjórða og síðasta legg var riðið frá Hrosshóli í heimahagana um Svínaskarð. Skemmtilegur viðburður sem þátttakendur voru sammála um að bæri að festa í sessi.
Umsýsla félagshesthúss hefur tekið breytingum síðustu ár vegna dræmrar þátttöku. Fyrirkomulaginu var breytt, þannig að styrkurinn skyldi ekki að einskorðast við leigu á plássi í Blíðubakkahúsinu heldur mátti sækja um sambærilegan styrk til leigu á plássi annarsstaðar í hverfinu. Engin umsókn barst eftir að sú breyting var gerð. Það er erfitt að segja til um hvers vegna áhugi á félagshúsi fer svona minnkandi, en stjórn er að skoða aðrar leiðir til að sinna þessu mikilvæga starfi. Það verður kynnt þegar komin er mynd á það. Það verður að minnsta kosti haldið áfram að bjóða upp á þennan kost í einhverri mynd sem hentar og Mosfellsbær styrkir það verkefni sérstaklega.
Hópur heldri hestamanna og kvenna er að vanda öflugur og vel sóttir allir þeirra viðburðir.
Fasteignir
Rekstur reiðhallarinnar gengur vel og var töluverð útleiga á henni síðasta vetur, FMos með kennslu líkt og áður og námskeiðahald fyrir félagsmenn. Hópur félagsmanna stundaði nám í Reiðmanninum hérna og er þegar orðið framhald á því námi. Gólfið fékk heildar yfirhalningu nú á haust mánuðum, eldra gólfefni var mokað í burtu, bæði sandi og skeljasandi keyrt inn og þar ofan á gólfflís. Jafnframt voru dúkur á böttum endurnýjaður og þrifnir sérstaklega. Það er samróma álit allra að loftgæðin í höllinni hafi batnað mikið við þessa framkvæmd og gólfið sé mjög gott til þjálfunar.
Rukkað var fyrir auglýsingaskilti í reiðhöllinni samkvæmt samningum. Virkir lyklar að reiðhöllinni eru um það bil 150 og aðsókn á námskeið skiptist nokkuð jafnt niður á aldurshópa.
Um 70 fullorðnir sóttu námskeið og ríflega 50 börn og unglingar.
Meistaradeild æskunnar hélt gæðingalistar mót deildarinnar hér og fór það vel fram, væntanlega viðburður sem kominn er til að vera og þykir reiðhöllin okkar henta vel til þessa móts. Jafnframt hélt Meistardeild ungmenna T2 mót og fór það fram með miklum glæsibrag. Það er gaman að fá þessar tvær deildir í heimsókn til okkar og þar sést krafturinn og fagmennskan vel í ungum og efnilegum knöpum.
Til að tryggja aðgengi lyklahafa að reiðhöllinni á háannatímum var leitast við að halda allri höllinni opinni milli 17-19 og var mikil ánægja með þá tilhögun, sem og með svokallaða fókustíma. Auðvitað kallar þetta á að sum námskeið fóru fram seinna en áður, en stjórn taldi mikilvægt að tryggja aðgengi lyklahafa á háanna tíma í svartasta skammdeginu. Jafnframt var reiðskemman hjá Blíðubakkahúsinu leigð, bæði fyrir kennslu og opna tíma og léttir það á stóru höllinni okkar.
Harðarból var í útleigu líkt og áður og smálegu viðhaldi þar sinnt. Nú standa yfir framkvæmdir við uppsetningu a loftadúk, sem bæta a hljóðvist í salnum og ætlunin að klára loft i viðbyggingu nú fyrir Hrossakjötsveislu Áttavilltra.
Umhverfi
Stjórn samþykkti að fela Ingibjörgu Ástu og Marteini Magnússyni að vinna úttekt og tillögur að því hvernig mætti fegra umhverfið okkar hérna í hverfinu. Miðar þeirri vinnu vel og verður kynnt félagsmönnunum fljótlega.
Beit var úthlutað venju samkvæmt, um 90 aðilar eru með beitarhólf á vegum félagsins. Eitt hólf var girt nýtt, annars hefur hólfum ekki verið breytt frekar en undanfarin ár. Beitargjald var það sama og í fyrra. Skil á hólfum voru í ágætu lagi, einhverjar smá athugasemdir en leyft var að hefja beit fyrr en oft áður. Sú óvenjulega staða kom upp að allir sem vildu fengu hólf, enginn biðlisti þegar lokið var við úthlutun.
Það gætir ennþá hjá sumum misskilnings með að beitarhólf á vegum félagsins séu sumarbeit fyrir alla hesta viðkomandi og geti farið stækkandi með fjölgun hrossa, það getur aldrei orðið. Hólfin eru ætluð undir reiðhesta, að ákveðnu marki, til að fólk geti nýtt hrossin sín hér í nágrenninu að sumarlagi. Við úthlutun er reynt að höfða til þess að við sem samfélag njótum þessara hlunninda sem flest, þó takmörkuð séu. Það er forgangsmál að skaffa fleirum beit en ekki að auka við beit hjá einstaka aðilum.
Vaktaskipting gekk ágætlega, fólk aðeins misduglegt að vera við þegar það er á vakt, sem er bagalegt. Ekkert varð af fyrirhuguðu námskeiði um rafmagnsgirðingar, það kemst kannski seinna á dagskrá en þau mál voru þó í betra lagi en oft áður.
Reiðleiðir
Starfshópur um reiðvegi í Mosfellsbæ.
Í kjölfar bréfs hestamannafélagsins þar sem við fórum fram á að bærinn tæki yfir allt viðhald á reiðvegum í ljósi þess hversu snúin leyfismál eru oft á köflum í slíkum framkvæmdum, var stofnaður starfshópur á vegum Mosfellsbæjar sem hafði það að markmiði að skilgreina reiðstíga og reiðslóða, forgangsraða reiðleiðum með tilliti til viðhalds, meta viðhaldsþörf og skila til bæjarráðs heildarúttekt. Fyrir hönd hestamannafélagsins sat formaður félagsins og formaður reiðveganefndar í nefndinni. Nefndi starfaði allan síðasta vetur og fram á haustmánuði.
Niðurstaðan var sú að reiðvegir voru kortlagðir og þeim forgangsraðað eftir notkun. Í hæsta forgang fóru þær reiðleiðir sem liggja næst hesthúsahverfinu: Tungubakkahringur, Blikastaðanes og reiðleiðin upp að Stekkjaflöt. Forgangur 1 þýðir að þörf er að lýsingu, lámarksbreidd, vetrarþjónustu og reglulegu viðhaldi á yfirborðslagi.
Í flokk tvö voru svo reiðleiðirnar upp í Mosfellsdal, Ístakshringur, leiðin að Hafravatni inn á Hólmsheiði, Skammidalur, og leiðinni frá Blikastöðum áfram til Reykjavíkur.
Í flokk 3 fóru svo aðrar leiðir sem liggja meira í útjaðri bæjarlandsins.
Ætlunin er að halda ítarlegri kynningu á starfi og samantekt starfshópsins innan tíðar.
Merk tímamót áttu sér stað síðasta haust þegar byrjað var á fyrst áfang lýsingar á Tungubakkahringnum. Fyrst áfanginn nær frá hesthúshverfinu og að Tunguvegi. Handsalaði hestmannafélagið og formaður bæjarráðs samkomulag um áframhald þessara framkvæmda, en ráðast átti í næsta áfanga á haustmánuðum 2025. Að þeirri vinnu hefur ekki orðið en, bæjarráð samþykkti á fundi að sínum 16.október að ráðist yrði verðkönnun og í framkvæmd áfanga 2. Í öðrum áfanga verða lagðir ljósastaurar á 1.800 metra kafla frá stígamótum að Leirvogstungu meðfram flugvelli.
Auk hefðbundins viðhalds á reiðleið og lagfæringa vegna mikilla vatnavaxta í febrúar og mars, varð okkur töluvert ágengt í lagningu og lagfæringum á reiðleiðum og var sú vinna leidd af reiðveganefnd. Þar má nefna, nýja reiðleið lögð af Vegagerðinni frá Hafravatnsvegi að Óskotsvegi og er þetta mikið öryggismál fyrir okkur hestamenn, þar sem bundið slitlag var lagt á þennan kafla fyrir nokkrum árum og þar með hefur umferðahraði aukist verulega með tilheyrandi hættum.
Ýmislegt
Skýrslur frá nefndum félagsins eru komnar á heimasíðu félagsins (eða eru á leiðinni), þar verða líka birtir ársreikningar, skýrsla stjórnar og fundargerð aðalfundar að honum loknum.
Hugleiðing formanns
Það hefur verið gott og gaman að vinna með félagsmönnum og stjórn þetta síðasta starfsár. Það er kraftur og þróttur í okkar fólki, þó stundum vinnist þetta á fáum höndum. Það er hlutverk okkar allra að virkja sem flesta til að taka þátt og leggja hönd á plógin í starfinu, því næg eru verkefnin.
Það er vilji okkar í stjórn að halda áfram að styðja við og styrkja það íþróttastarfs sem fram fer í félaginu og lyfta því enn hærra plan . Við viljum sjá meiri samfellu í starfinu okkar og byrja það fyrr á árinu, þannig að hestaíþróttin geti orðið raunverulegt val fyrir börn sem íþrótt, auka samstarfs við reiðskólana okkar svæðinu til að stuðla að nýliðun og horfa breitt yfir sviðið til að styrkja okkar góða sport enn frekar.
Það er klárlega þrengt að okkur á margan hátt, til dæmis að okkar reiðvegum, sem eru okkar íþróttarmannvirki. En það er trú mín að hestmennskan eigi mjög vel heima í þéttbýli og því þurfum að leita allra leið að halda því lofti og tryggja að sjónarmið okkar séu sjáanleg þegar unnið er í breytingum á okkar nærumhverfi.
Félagsstarfið okkar er fjölbreytt og þannig á það líka að vera í okkar öfluga félagi, því eitt hentar ekki öllum og það er nægt rými fyrir alla hestamenn í Mosfellsbæ í hestamannfélaginu Herði.