Gólfið í reiðhöllinni.

Kæru félagar.

Næstkomandi fimmtudag, 21.september verður farið í vinnu við gólfið í reiðhöllinni.  Ætlunin er að byrja klukkan 19, færa hringgerðið aftur út, slétta gólfið og hreinsa og setja svo nýja flís á.

Þetta er átak en margar hendur vinna létt verk, því óskum við eftir aðkomu sem flestra félaga. Fólk komi gjarnan með hrífu með sér.

Reiðhöllin verður eðlilega lokuð fyrir þjálfun þann tíma sem þetta tekur.

Vonumst til að sjá sem flesta!

Stjórnin