Árangur Harðarmanna á Landsmóti er stórkostlegur!!

Harðarmenn hafa staðið sig frábærlega það sem af er á Landsmóti og eru þó ennþá nokkur tromp eftir. Sérstaklega stóðu börnin sig vel, fjögur af þeim eru komin í milliriðil og það fimmta endaði í 22. sæti (20 komast í milliriðil) sem er virkilega vel af sér staðið. Árangurinn er eftir fyrstu tvo daga er þessi: Barnaflokkur Jóhanna Jónsdóttir og Darri í 1-2. sæti Brynhildur Sighvatsdóttir og Léttir í 3. sæti Sebastian Sævarsson og Nökkvi í 18. sæti Þorvaldur A. Hauksson og Kuldi í 20. sæti Ungmennaflokkur Kristján Magnússon og Hrafnar í 7. sæti eftir milliriðil B-flokkur Vignir Jónason og Sólon í 8. sæti Sölvi Sigurðarson og Silfurtoppur í 12. sæti Sigurður Sigurðarson og Skundi í 16. sæti