Aðalfundur Hestamannafélagsins Harðar 2019 - fundargerð

Aðalfundur hestamannafélagsins Harðar haldinn á Varmárbökkum   14. nóvember 2019.

Hákon formaður setur fundinn kl. 20, formaður leggur til Sigurð Guðmundsson frá Flekkudal sem  fundstjóra, það var samþykkt samhljóða, sem fundaritara Önnu Lísu Guðmundsdóttur, einnig samþykkt samhljóða. Sigurður þakkar traustið, fer yfir dagskrá fundarins og  boðun.  Hann fer yfir hvar og hvenær fundurinn var auglýstur og lýsir í framhaldi af því fundinn löglegan.

Dagskrá aðalfundar samkvæmt samþykktum félagsins

EA spurði hvar skýringar væru sem ættu að fylgja með ársreiknigum, svar RT, fylgiskjöl verða birt inn á heimasíðu.

Skýrsla stjórnar og reikningar  samþykkt samhljóða.

Súsanna var ánægð með skýrsluna og reikningana, og vil hrósa stjórn og Rúnari framkvæmdastjóra.  Félagið standi sérstakaleg vel.

Hákon nefndi nokkur atriði s.s. að brotist var inn í dómaragáminn og hljómflutingstækjum stolið,  tryggingatjón.  Að Mosfellsbær kaupi Blíðubakkahúsið og gerir rekstrarsamning við félagið um rekstur félagshesthúss fyrir börn og unglinga sem vilja byrja í hestamennsku.  Einnig mætti nota húsið fyrir reiðskóla fatlaðra o.fl.o.fl.

Stefnumótavinnu er ekki lokið og endurskoða þarf framkvæmdaáætlunina sem gerð var til næstu 5 ára.  Í hestamannafélaginu er almennt mjög góður félagsandi og göngum við samheld til allra verka.

Rúnar G kynnti verkefnið Vini Skógarhóla. Búið er að laga allan útihring skálans, en eftir er að endurbæta salernin, eldhúsið og að mála húsið að utan.  Á næsta ári á að taka salinn í gegn. Óskað er eftir að  fólk skrái sig til starfa í gegnum LH,  Hákon telur málið okkur mjög skylt, þar sem Harðarmenn hafi verið mjög duglegir að nota skálann.

Fleira ekki gert og fundi formlega slitið kl 21.07.